Færslur fyrir september, 2010

Miðvikudagur 29.09 2010 - 14:44

Hver plataði hvern í gær á Alþingi?

Féll Samfylkingin fyrir þeirri miklu freistingu að panta þá niðurstöðu sem Alþingi matreiddi í gær?  Hvert 10 ára barn getur reiknað út að Samfylkingin hafði allar aðstæður til að ráða niðurstöðu Alþingis –  þetta var einfalt stærðfræðidæmi.  Það var vitað að allir Sjálfstæðismenn voru á móti og að Hreyfingin og Vinstri grænir voru með.  Þá þurfti […]

Miðvikudagur 29.09 2010 - 08:43

Alþingismenn á síðasta söludegi

Eftir daginn í gær er erfitt að sjá hvernig þeir menn  sem sitja  á Alþingi núna geti unnið saman.  Andrúmsloftið er eitrað, hverjum er hægt að treysta, hverjir eru samstarfsaðilar og á hvaða forsendum vinna menn saman?  Kjósendur hafa fengið sig fullsadda á ástandinu.  Vandamálið er ekki stofnunin Alþingi, heldur þeir einstaklingar sem nú sitja […]

Þriðjudagur 28.09 2010 - 18:24

Hin fullkomna niðurstaða?

Laun heimsins eru vanþakklæti.  Það fær Geir Haarde að upplifa.  Nú þekki ég ekki Geir, en hann virðist vera einstaklega ljúf og hógvær persóna sem lenti í slæmum félagsskap.  Íslensk stjórnmál eru eins og stjórnmál í flestum löndum aðeins fyrir harða og freka nagla, sem þrífast best í alls konar plotti og baktjaldamakki.  Nú ætla ég ekki að gera […]

Mánudagur 27.09 2010 - 18:09

Langtímavextir hækka

Skuldabréfavísitalan lækkaði mikið í dag og nú hefur vaxtakrafan á 10 ára óverðtryggð ríkisskuldabréf hækkað um rúmlega 75 punkta síðan Seðlabankinn lækkaði stýrivexti um 75 punkta.  Það getur því orðið bið á því að almennir vextir lækki. Bankar hafa lítið svigrúm til að lækka innlánsvexti á sama tíma og ávöxtun á ríkisskuldabréf hækkar og þar […]

Mánudagur 27.09 2010 - 09:38

Úr skjalaskáp AGS

Nú þegar líður að þriðju endurskoðun á aðstoð AGS til Íslands er athyglisvert að kíkja á gömul fyrirheit og athugasemdir í skjölum AGS sem finna má á vefsíðu þeirra: www.ifm.org 1. Icesave Um Icesave er þessa mola að finna: AGS segir: „The need to reassess financing assurances contributed to a delay in the second review. […]

Sunnudagur 26.09 2010 - 05:48

Rekstur Reykjavíkur: leikur að skuldatölum OR

Árshlutareikningur Reykjavíkurborgar var lagður fyrir borgarráð á fimmtudaginn.  Fréttir af honum sýna vel hvernig fréttamiðlar standa sig alls ekki þegar kemur að reikningsskilum og láta stjórnmálamenn vaða uppi með alls konar villandi talnaleiki. Á vef mbl.is segir: „Fjármagnsliðir voru jákvæðir um 2.149 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir að þau yrðu neikvæð um 2.367 […]

Laugardagur 25.09 2010 - 11:25

Þak á vexti gerir illt verra

Samtök heimilanna setja fram athyglisverðar tillögur um húsnæðislán og vexti í nýlegu plaggi sem nefnist  „Grunnur að þjóðarsátt“.  Þar eru stjórnvöld hvött til að setja 4% þak á verðbætur og leggja verðtryggingu niður.  Þá eiga óverðtryggð húsnæðislán aldrei að bera hærri vexti en 6% og  5% þak skal sett á vexti ríkisskuldabréfa. Því miður er engar tillögur […]

Föstudagur 24.09 2010 - 14:42

Að ári liðnu – meðaleinkunn: C+

Fyrir nákvæmlega ári síðan skrifað ég eftirfarandi færslu: Dýrmætur tími hefur farið í eintómt rifrildi á síðasta ári.  Við fengum ár hjá AGS til að koma hjólum atvinnulífsins af stað áður en til niðurskurðar og skattahækkana kemur á árunum 2010, 2011 og 2012. Fyrir tæpu ári síðan [2008] var gert ráð fyrir að núna [09/2009] […]

Föstudagur 24.09 2010 - 08:41

Hugmyndaskortur tefur uppbyggingu

Þegar kemur að stjórnun og skipulagi er Ísland einstaklega íhaldssamt og hugmyndasnautt land, ólíkt því sem er á sviði lista og bókmennta. T.d eru róttækar hugmyndir um hvernig við skipuleggjum og stjórnum okkar atvinnulífi eins konar tabú, og hvergi er þetta augljósara en í opinbera geiranum. Flestir geta verið sammála um að hagvöxtur er nauðsynlegur […]

Miðvikudagur 22.09 2010 - 17:08

Már snýr upp á spekúlanta

Í þjálfunarbúðum SAS liðsveitarinnar í breska hernum er sagt að til að sigra andstæðinginn þurfi menn að hafa tvö af hinum þremur essum: „strength, speed, surprise“. Seðlabankinn virðist vera farinn að tileinka sér þetta viðhorf en seðlabankar eru þekktir fyrir allt annað en hraða og að koma á óvart. Markaðurinn átti greinilega ekki von á […]

Höfundur

Andri Geir Arinbjarnarson
Höfundur er verkfræðingur.
RSS straumur: RSS straumur