Færslur fyrir júlí, 2013

Miðvikudagur 17.07 2013 - 11:39

Franska leiðin

Umræða um heilbrigðiskerfið er ekki nógu öguð.  Kerfið skiptist upp í tvo megin þætti: 1) tryggingarþátt og 2) þjónustuþátt. Nær öll umræðan er um þáttöku einkaaðila í þjónustuhlutanum en hún er auðvita nú þegar mikil þó einkaspítalar séu enn bannorð á Íslandi. Hinn þátturinn er alveg jafn mikilvægur, þ.e. hvernig staðið er að tryggingarþættinum.  Í […]

Þriðjudagur 16.07 2013 - 14:38

ESB: Framsókn hikar

Ríkisstjórnin byrjaði strax á því að stöðva ESB viðræður og Forsetinn tók heldur betur undir það og sagði að ESB hefði ekki vilja til að ljúka viðræðum.  Utanríkisráðherra var sendur til Brussel til að flytja boðskapinn við góðar undirtektir hér heima. En nú bregður svo við að sjálfur forsætisráðherran hefur tekið sér tíma til að […]

Þriðjudagur 16.07 2013 - 12:00

Að geta sagt NEI

Svo virðist sem Ísland sé komið fram yfir síðasta söludag þegar kemur að helstu innviðum samfélagsins.  Lífeyriskerfið, heilbrigðiskerfið, menntakerfið, stjórnsýslan og húsnæðislánakerfið eru dæmi um kerfi sem þarf að endurnýja. Vandamálið er að flest kerfi hökta enn, þau eru dýr í rekstri, flest of stór og óskilvirk, og alls ekki í takt við stöðu Íslands […]

Þriðjudagur 16.07 2013 - 06:34

Magma stýrt af „kamelljóni“

Landsbréf sem er í eigu Landsbankans gaf nýlega út yfirlýsingu varðandi Magma bréfið, þar sem framkvæmdastjórinn sagði: “Ég fagna því að kauptilboði Landsbréfa hafi verið tekið, en við teljum skuldabréfið spennandi fjárfestingakost.” Hvað er svona spennandi við skuldabréfið og hvað eru fjárfestar að kaupa? Er Landsbréf að selja stöðugt sjóðsflæði eða veðið á bak við […]

Laugardagur 13.07 2013 - 15:23

Besta hagræðingin

Eitt besta hagræðingartækifæri sem Ísland á er 20 ma kr. hagræðing innan grunnskólans og  framhaldsskólans.  Þessar stofnanir eru þær dýrustu innan OECD og kosta um 5% af VLF á meðan meðaltalið innan OECD er um 3.8%.  Ef Ísland setur sér það markmið að grunnskólinn og framhaldsskólinn kosti ekki meira en OECD meðaltalið (sem er kostnaður […]

Föstudagur 12.07 2013 - 15:18

Íslandsbanki bestur

Það er auðvelt að vera sammála Euromoney þegar þeir velja Íslandsbanka sem besta banka á Íslandi. Eftir hrun hefur Íslandsbanki markað sér öfluga og aðgreinda stefnu frá hinum stóru bönkunum og tekist að halda því frumkvæði.  Íslandsbanki hefur iðulega verið fyrstur með nýjungar og unnið fagmannlega að áhættustýringu sem sést best á markaðssetningu Íslandsbanka á […]

Föstudagur 12.07 2013 - 07:19

OR og Goldman Sachs

Líklegt er að Goldman Sachs sé á bak við söluna á Magma bréfi OR.  Goldman veitti nýlega lán til OR á hagstæðum kjörum sem átti að halda leyndu en lak út.  Goldman er einn fremsti fjárfestingabanki heims og afgreiðir varla stök viðskiptalán til félaga eins og OR. Goldman er þekktur fyrir að endurskipulegga efnahagsreikninga hjá […]

Fimmtudagur 11.07 2013 - 20:24

Orðsporsáhætta

Það var mjög athyglisvert að lesa yfirlýsingu Dags B. Eggertssonar um Magma málið. Á visis.is er haft eftir Dag: “Landsbréf leggur fram tilboð með fyrirvara um fjármögnun.  Þeir stofna félag sem ýmsir koma að.  Það er það sem er ófrángengið þeirra megin og þess vegna er málinu ekki lokið heldur var borgarráð að veita Orkuveitunni […]

Miðvikudagur 10.07 2013 - 06:48

„Ekkert bruðl, betri vexti“

Íslenskt fjármálakerfi er rándýr furðufugl og umræðan um ÍLS skýrsluna sýnir það vel.  Í stað þess að horfa heilstætt á málið og fram á veginn er farið í gömlu skotgrafirnar.  Það verður að setja sorgarsögu ÍLS í sitt eðlilega samhengi og þar er ekki hægt að horfa eingöngu á mistök stjórnmálamanna, heldur verður einnig að […]

Fimmtudagur 04.07 2013 - 20:25

Böl 40 ára lána

Nú þegar umræða um fortíðarvanda ÍLS stendur sem hæst er rétt að huga að framtíðinni. Það sem hefur fengið allt of litla umræðu er lengd lánstíma íbúðalána.  Í sveiflukenndu hagkerfi með óstöðugan gjaldmiðil verður 40 ára lánstími að fjárhagslegum myllusteini bæði fyrir lántakandann og lánveitandann.  Og ekkert er verra en 40 ára verðtryggt lán sem […]

Höfundur

Andri Geir Arinbjarnarson
Höfundur er verkfræðingur.
RSS straumur: RSS straumur