Færslur fyrir desember, 2013

Sunnudagur 08.12 2013 - 08:48

Háskólinn og hótelbransinn

Í nýlegri skýrslu frá Landsbankanum segir að ferðaþjónustan sé að verða stærsta útflutningsgrein landsins. Erfitt væri að draga þá ályktun með því að skoða kennsluframboð íslenskar háskóla.  Lítið fer fyrir ferðamennsku þar og enn minn fyrir stjórnendakúrsum í hótelrekstri.  Varla er staðan betri hjá stjórnarráðinu, ekki er til ráðuneyti fyrir stærstu útflutningsgreinina.  Hér er kerfið […]

Laugardagur 07.12 2013 - 09:12

Hlustað á matsfyrirtækin

Nýtt mat Fitch sýnir að Framsókn hlustaði á matsfyrirtækin og lækkaði skuldaniðurfellinguna úr 300 ma í 80 ma kr. Þó skammstöfunarstofnanir séu ekki hátt skrifaðar hjá forsætisráðherra opinberlega er hlustað á þær bak við tjöldin. Í mati Fitch er enn eina ferðina vikið að alvarlegri stöðu ÍLS.  Fitch ráðleggur að takmörk verði sett á endurfjármögnun […]

Miðvikudagur 04.12 2013 - 08:15

PISA og launin

Það er rétt hjá Þorbjörgu Vigfúsdóttur borgarfulltrúa að PISA könnunin kemur ekkert á óvart.  Lestrarvandamál drengja er vel þekkt og fer versandi.  Að bókaþjóðin skuli lenda fyrir neðan meðaltal OECD landanna í lestri er auðvita skandall sérstaklega þegar haft er í huga að kennaranám á Íslandi er 5 ár í háskóla. Því miður má búast […]

Þriðjudagur 03.12 2013 - 11:19

Ekki fyrir alla

Í skýrslu aðgerðahóps um skuldaaðgerðir er tillaga sem gæti breytt forsendum hjá þúsunda heimila um hvort rétt sé að sækja um þessa skuldaleiðréttingu.   En í lok skýrslunnar segir: “Í ljósi greiningarinnar telur hópurinn mikilvægt að benda á að þær aðstæður kunna að skapast að fasteignaeigendur vilji endurfjármagna lán sín hjá Íbúðalánasjóði vegna aukins veðrýmis sem […]

Mánudagur 02.12 2013 - 08:09

Leiðin til Argentínu styttist

Að afnema eignaskatta af eigin eignum en leggja þá á eignir annarra hefur alltaf verið gríðarlega vinsæl aðgerð í suður-Ameríku og nú á Íslandi.  Það er engu líkara en að andi Perónista svífi yfir vötnunum heima á Íslandi.  Það er orðið prinsipp mál að fara eigin leiðir og láta ekki alþjóðlegar skammstöfunarstofnanir segja sér fyrir […]

Sunnudagur 01.12 2013 - 10:50

Sáttmáli kynslóðanna

Af mörgum furðulegum röksemdafærslum í kynningu leiðréttingarhópsin var talið um “sáttmála kynslóðanna” upplýsandi.  Þar endurspeglaðist vel viðhorf núverandi valdakynslóðar Íslands.  En hún skilgreinir sáttmálann á þann veg að forsendubresturinn sé ekki henni að kenna og því eigi allt að renna til hennar. Gamla fólkið fær ekkert og börnin borga brúsann.  Þannig vilja menn hafa það […]

Höfundur

Andri Geir Arinbjarnarson
Höfundur er verkfræðingur.
RSS straumur: RSS straumur