Þriðjudagur 20.09.2016 - 09:42 - FB ummæli ()

Misskilningur á misskiptingu

Einhver þrálátasti misskilningur vinstri manna er að misskipting auðs (ekki bara tekna) sé meginástæða þess að hinir efnaminni séu efnaminni. Sú kenning byggir á þeirri grunnforsendu að auður eins sé annars manns tap – að auður sé fasti sem hvorki vex né dragist saman og að ef auður eins aukist, hljóti hann að minnka hjá öðrum.

Engu er líkara en að sögurnar af nískustu önd allra tíma,  Jóakim hafi verið lagðar til grundvallar en peningar auð-andarinnar enduðu allir í peningatanki og urðu engum til gagns nema Jóakim til baðferða.Jóakim önd

Samt var peningatankur andarinnar í Andabæ en ekki í Karíbahafi.

Sem dæmi þá myndi framangreind bábiljukenning gera ráð fyrir að sú verðmætaukning sem varð á óáþreifanlegum eignum Marc Zuckenberg hafi ollið því að hinir efnaminni í heiminum hafi það verr, óháð því hvort þeir hinir sömu noti eða hafi gagn af samfélagsmiðlinum Facebook nú eða þeim fjármunum sem frumkvöðullinn gefur til góðgerðarmála.Mark_Zuckerberg_Sold__285_Million_In_Facebook_Stock_In_Past_Month_For_Charity

Ljóst er að Píratar eru lengst til vinstri hér á landi með það meginmarkmið að útrýma eignarrétti alfarið og gildir þá einu hvort um er að ræða sköpunarverk einstaklinga í afþreyingariðnaði, hugbúnaði eða öðru því sem í dag nýtur verndar samkvæmt eignarréttarákvæði stjórnarskrár.

Myndin er án höfundarréttar

Myndin er án höfundarréttar

Þetta kalla píratar ,,afnám eigendavalds“ samfara upptöku ,,borgaralauna“ Flokkurinn telur jafnframt að 40-50% atvinnuleysi sé ákjósanlegt.

Eignfærsla fiskveiðikvóta á efnahagsreikning útgerðarfélaga er augljóst hagsmunamál fyrir hluthafa slíkra félaga.

Það sem kallað er ,,þjóðareign“ á kvóta færir hinum almenna borgara hinsvegar ekki neitt enda ekkert sem einstaklingar geta selt, nýtt eða veðsett sjálfum sér eða öðrum til hagsbóta.

 

Flokkar: Stjórnmál og samfélag

«
»

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Höfundur

Arnar Sigurðsson
Talsmaður einstaklingsfrelsis
RSS straumur: RSS straumur