Í upphafi sviðsverksins “Guð blessi Ísland” sitja persónur og leikendur á víð og dreif á hvítum garðstólum, þegja og horfa með alvarlegum augum framan í áhorfendur. Einhver hafði, því miður, hvíslað þögninni að mér og því kom hún mér ekki á óvart. Hitt var þó, að nokkuð óþol safnaðist í líkama og sál, þrátt fyrir […]
Menning er að gera hlutina vel. (Þorsteinn Gylfason) Hvers konar tækni tekur yfir fleiri og fleiri verksvið manna og nú er talað um nýja iðnbyltingu með „kunnáttu“ tölva til að skilja mælt mál. Þá getur hver sem er beðið tækin um eitthvað og spurt tækin spurninga um hvaðeina sem vistað er á tölvuskrám. Ef tæknin […]
Sú var tíð að einn maður ríkti yfir einu landi, þannig að hann setti lögin, lét framkvæma þau og dæmdi, ef út af brá; þetta endaði víða með ósköpum eins og allir vita. Á upplýsinga- og uppljómunartímanun (enlightenment) setti Montesquieu (Charles-Louis de Secondat, Baron de La Brède et de Montesquieu) fram hugmyndir sínar um þrískiptingu ríkisvaldsins og byggði þær á stjórnkerfi Rómverska lýðveldisins til forna og Breska stjórnkerfinu. Montesquieu lést […]