Ég held að gangandi vegfarendur sem hafa tekið upp með sér lærdóm rjúpunnar um að vera alltaf í felulitunum séu ekki alveg með þetta.
Gjörsamlega óendanlega óþægilegt að keyra að heiman í morgun í stormi og myrkri og allir gangandi vegfarendur í svörtu frá toppi til táar.
Það var nánast að maður sæi þá ekki fyrr en þeir voru komnir á bílhúddið hjá manni.
Persónulega finnst mér að löggan ætti að sekta alla gangandi vegfarendur í svörtu, án endurskinsmerkis, með álíka gjaldþrota valdandi sektum og bílamenn eru sektaðir fyrir að stíga aðeins of fast á bensíngjöfina á sólríkum sumardegi.
Nýlegar athugasemdir