Færslur fyrir júní, 2011

Miðvikudagur 29.06 2011 - 00:54

Um Landsvirkjun, hræGamma og Porter

Í gær kynnti Landsvirkjun nýja framtíðarsýn.  Í stuttu máli er hér lofað gulli og grænum skógum, nánar tiltekið að Landsvirkjun muni skapa tólf þúsund ný störf á næstu árum, að fyrirtækið muni skila ríkissjóði tugum milljarða króna árlega í framtíðinni og að þetta muni „hafa ámóta áhrif á lífskjör á Íslandi og olíuiðnaðurinn í Noregi.“ […]

Sunnudagur 26.06 2011 - 15:59

Þjónkun háskóla við valda- og hagsmunaaðila

Í nýlegri frétt á RÚV er sagt frá athugasemdum Ólínu Þorvarðardóttur við kostun á stöðum starfsmanna háskóla, en hún nefndi sérstaklega stöðu Helga Áss Grétarssonar við Lagastofnun HÍ, sem kostuð er af LÍÚ.  Hér verður ekki rakið það sem Helgi hefur látið frá sér fara um þessi mál í fjölmiðlum, en augljóst er að ýmsar […]

Laugardagur 25.06 2011 - 01:27

Álfatrúartrú Íslendinga

Því er stundum haldið fram að Íslendingar trúi á álfa og huldufólk.  Um þetta má deila, en fæstir vita þó uppruna þessarar trúar á álfatrú landsmanna.  Lausleg athugun leiðir eftirfarandi í ljós (í samræmi við þær hefðir sem virðast gilda í umræðum um þessi mál og skyld verður hér vandlega forðast að geta heimilda eða […]

Sunnudagur 19.06 2011 - 16:17

Stjórnlagaráð, kynjakvótar og jafnt vægi atkvæða

Eins og sjá má í Áfangaskjali stjórnlagaráðs er lagt til að setja megi „í lög ákvæði um lágmarkshlutfall karla og kvenna“ í kosningum til Alþingis.  Svo virðist sem flest stjórnlagaráðsfólk geri sér ekki grein fyrir að með þessu er brotið gegn þeirri grundvallarreglu sem flestir virðast vera sammála um í orði, nefnilega að öll atkvæði […]

Fimmtudagur 09.06 2011 - 14:10

Einn maður eitt atkvæði — en sum atkvæði vega þyngra en önnur

Í þessari frétt segir meðal annars:  „Sú nefnd stjórnlagaráðs sem fjallar um kjördæmaskipan og þingkosningar leggur til talsverðar breytingar á fyrirkomulagi kosninga til Alþingis og vill að atkvæði kjósenda alls staðar á landinu vegi jafnt líkt og þjóðfundur lagði mikla áherslu á.“ Síðar segir svo:  „Þá er lagt til að setja megi í lög ákvæði […]

Þriðjudagur 07.06 2011 - 16:55

Ranghugmyndir um háskólastarf og 2007

Nýlega kom fram þingsályktunartillaga „um sameiningu háskólastofnana og rekstur tveggja öflugra háskóla.“  Fyrir henni talaði Baldur Þórhallsson, varaþingmaður Samfylkingarinnar, og prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.  Þessi tillaga er ansi barnaleg og lýsir auk þess litlum skilningi á góðu háskólastarfi.  Í henni segir meðal annars (og maður spyr sig hvort enn sé árið 2007): „Þannig […]

Höfundur

Einar Steingrímsson
Nánar um höfund ...
RSS straumur: RSS straumur