Ég er að sjálfsögðu einn flutningsmanna þessar þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um flugvöllinn, en ályktunin mun koma fram á þingi á morgun. Ég er mjög ánægð með að þetta mál er komið fram og við ætlum ekki að láta valta yfir okkur varðandi þetta mál. Það er alveg öruggt
Frétt um málið á ruv.is:
Ögmundur Jónasson og 24 aðrir þingmenn Vinstri grænna, Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar hafa lagt fram tillögu á Alþingi um þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð Reykjavíkurflugvallar.
Vilja þingmennirnir að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort flugvöllur og miðstöð innanlands- og sjúkraflugs skuli áfram vera í Vatnsmýrinni í Reykjavík.
Spurningin sem þingmennirnir vilja að borin verði upp: vilt þú að flugvöllur og miðstöð innanlands- og sjúkraflugs hér á landi verði áfram í Vatnsmýrinni í Reykjavík? Tveir svarmöguleikar yrðu gefnir, já eða nei.
Flokkar: Óflokkað