Miðvikudagur 02.04.2014 - 10:30 - FB ummæli ()

31. Feminsmi vinnur gegn lýðheilsumarkmiðum

Feminsmi boðar þá hættulegu hugmynd að offita sé ekkert vandamál og jafnvel eitthvað fínt.

Það er í sjálfu sér gott mál að vinna gegn fordómum og benda á að feitt fólk verður fyrir mismunun og vondri framkomu og það er rétt hjá feministum að megrunarbransinn hefur gert allt of mikið úr sambandi líkamsþyngdar og heilsubrests. En hér sem annarsstaðar tekst feministum að eyðileggja það góða markmið sem þeir leggja upp með, með ýkjum, afneitun og blekkingum í þágu málstaðarins.

Fjöldi feitabollubloggara lýsir viðvörunum lækna sem „fat shaming“.  Algengt er að feitabollufeministar fullyrði að ekkert samband sé milli heilbrigðis og ofþyngdar og að þeir sjálfir lifi gríðarlega heilbrigðu lífi þrátt fyrir tugi aukakílóa. Auk þess er málflutningurinn allur á þá leið að valið standi milli offitu og átröskunar.

Hér er ein sem heldur því fram fullum fetum að til þess að halda sér í kjörþyngd þyrfti hún að æfa tvo tíma á dag og neyta ekki meira en 800 hitaeininga.

Á Íslandi eru 20% barna ofalin. Þeim og öðru feitu fólki er enginn greiði gerður með því að afneita vandamálum sem tengjast offitu. Það hlýtur að mega vinna gegn fordómum án þess að telja fólki trú um að það sé áhættulaust að borða meira en maður þarf.

 

femugla31

 

33 ástæður til að uppræta feminisma
1. Við þurfum ekki feminisma til að tryggja jafnrétti
2. Grundvöllur feminismans er lygi
3. Feminismi notar lygar í áróðursskyni
4. Feminisminn lítur á karlmenn sem illmenni
5. Feminisminn lítur á konur sem fórnarlömb
6.  Feminismi firrir konur ábyrgð
7.  Feminisminn er í stöðugri mótsögn við sjálfan sig
8. Feminismi skaðar konur í kynlífsiðnaði
9.  Feministar takmarka sjálfsákvörðunarrétt kvenna
10.  Feminisk áhrif veikja réttaröryggi sakborninga
11. Feministar nota háskóla til að breiða út gervivísindi
12. Feminismi er ríkisstyrkt valdanet
13.  Feministar vilja fá að stunda trúboð í skólum
14.  Feminismi leggur kynhlutverk að jöfnu við kvennakúgun
15. Feminismi er kvennamenningu fjandsamlegur
16. Feminismi er nýhreintrúarstefna
17. Feministar vilja ákveða normin í kynferðismálum
18. Feminismi er að festa sig í sessi sem kennivald
19. Feminismi vinnur gegn kvenréttindum
20. Feminismi er dólgapólitík
21. Feminismi er hugsjónastríð
22. Feministar sinna þjónustu sem ætti að vera í höndum fagfólks
23. Feminismi er fasísk hugmyndafræði
24. Feministar hafa ranghugmyndir um norm samfélagsins
25. Feminismi einkennist af pólitískum rétttrúnaði
26. Feministar rangtúlka listaverk í áróðursskyni
27. Feministar eru með klám á heilanum
28. Feministar vilja ráða því hvað skuli teljast valdeflandi
29. Feministar ýkja tölur um kynbundinn launamun
30 Feministar styðja kynbundna mismunun
31 Feminismi vinnur gegn lýðheilsumarkmiðum
32 Feminismi nærir sorpblaðamennsku
33 Feministar hafa eyðilagt hugtakið feminismi

Flokkar: Allt efni · Kynjapólitík
Efnisorð: , ,

«
»

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Höfundur

Eva Hauksdóttir
er skáld, norn, aðgerðasinni og álitshafi.

Eva hefur áhuga á samfélagsmálum, einkum þeim sem varða hverskyns yfirvaldstilburði hvort heldur er af hálfu stjórnvalda eða annarra. Æskilegt er að þeir sem rata inn á síðuna lesi pistlana áður en þeir tjá sig um efnistök höfundar.

Þessi síða hefur ekki verið uppfærð reglulega mjög lengi en efni frá síðustu árum er birt á norn.is
RSS straumur: RSS straumur

Færslusafn

web analytics