Mánudagur 22.12.2014 - 21:34 - FB ummæli ()

„Mamma – hvernig væri heimurinn ef kommúnismi væri ekki til?“

Ég er með hugmynd að sjónvarpsþætti sem væri vel við hæfi að sýna í barnatíma RÚV.

Barn á grunnskólaaldri spyr foreldra sína og kennara; „hvernig væri heimurinn ef kommúnismi væri ekki til?“  Fullorðna fólkið upplýsir barnið um að heimurinn væri þá eitt stórt alræðisríki þar sem hugmyndin um manngildi væri ekki til, flestir lifðu við sárafátækt, þrælkaðir í þágu auðvaldsins, bæru númer í stað nafna og hefðu engar skoðanir á eigin aðstæðum.

Er nokkur ástæða til annars en að ríkið innprenti börnum þá hugmynd að allar tækniframfarir og allar hugmyndir um frelsi, mannúð og jöfnuð séu kommúnismanum að þakka, án þess að nefna það einu orði að reyndar hafi margháttuð kúgun og viðbjóður þrifist í nafni kommúnisma?

Þetta sjónvarpsefni þyrfti ekki einu sinni að kosta neitt, það eina sem þyrfti að gera væri að talsetja þetta myndskeið upp á nýtt og nota orðið kommúnismi í stað kristindóms.

Flokkar: Allt efni · Fjölmiðlar · Menning og listir · Stjórnmál, trúmál og þjóðarsálin
Efnisorð:

«
»

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Höfundur

Eva Hauksdóttir
er skáld, norn, aðgerðasinni og álitshafi.

Eva hefur áhuga á samfélagsmálum, einkum þeim sem varða hverskyns yfirvaldstilburði hvort heldur er af hálfu stjórnvalda eða annarra. Æskilegt er að þeir sem rata inn á síðuna lesi pistlana áður en þeir tjá sig um efnistök höfundar.

Þessi síða hefur ekki verið uppfærð reglulega mjög lengi en efni frá síðustu árum er birt á norn.is
RSS straumur: RSS straumur

Færslusafn

web analytics