Laugardagur 22.10.2011 - 11:07 - 7 ummæli

Bjartar vonir brostnar

Þann 6. október 2008 sat ég ásamt manni mínum í sófanum heima og hlustaði á ávarp Geirs H. Haarde. Eftir að orðunum Guð blessi Ísland sleppti sátum við og horfðum hvort á annað og veltum fyrir okkur hvað maðurinn átti eiginlega við. Hvað var að gerast?

Öll vitum við hvað gerðist í framhaldinu. Hrunið var staðreynd. Um 95% af íslenska bankakerfinu fór í þrot, 60% af fyrirtækjum landsins og þriðjungur íslenskra heimila þurftu á fjárhagslegri endurskipulagningu að halda og íslenska ríkið varð að leita á náðir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins til að geta staðið við skuldbindingar sínar.

Íslenskur almenningur sat eftir í brunarústum óhefts kapítalisma. Hin ósýnilega hönd hins frjálsa markaðar var eftir allt saman ekkert ósýnileg, hún var hreinlega ekki til. Sýnin um að sífellt væri hægt að stækka kökuna með því að ýta undir græðgi einstaklinganna reyndist vera tálsýn, fals eitt þar sem engin raunveruleg verðmæti voru sköpuð.

Þetta eru staðreyndir sem munu hafa áhrif á okkur öll um ókomna framtíð.

Um mánuði síðar var ég orðin alþingismaður og var þar með kastað inn í hringiðu daglegra mótmæla Búsáhaldabyltingarinnar á Austurvelli, þar sem kallað var eftir nýju Íslandi.

Íslandi þar sem allt skyldi vera upp á borðum, spillingu væri úthýst og réttlæti og lýðræði virt. Ríkisstjórnin yrði að víkja og boða þyrfti til kosninga. Ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks féll undan þrýstingi fólksins og við tók minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri Grænna sem studd var með hlutleysi Framsóknarmanna.

Skilyrði Framsóknarmanna fyrir stuðningi var að strax yrði farið í aðgerðir til varnar heimilum og fyrirtækjum, komið yrði á stjórnlagaþingi til að breyta stjórnarskránni og að boðað yrði til kosninga. Kosningarnar urðu 29. apríl og allir stjórnmálaflokkar lofuðu bót og betrun og að tekið yrði af festu á vanda heimila og fyrirtækja. Mikil endurnýjun varð meðal þingmanna og fyrsta hreina vinstri stjórnin tók við völdum undir forystu Jóhönnu Sigurðardóttur.

Nú skyldi svo sannarlega tekið til.

Nýtt Ísland?

Af hverju er almenningur þá enn þá að mótmæla? Getur verið að ástæðan sé að fátt eitt hafi í raun breyst? Að í stað þess að nýtt Íslandi risi eins og fuglinn Fönix úr brunarústunum hafi stjórnvöld einhent sér í að endurreisa frekar gamla Ísland?

Út um allan heim er fólk að mótmæla. Það er að mótmæla sömu hlutunum og við mótmæltum í Búsáhaldabyltingunni og mótmælum enn ósanngirni, óréttlæti og ójöfnuði.

Fyrir hrun hrósuðu við okkur af því að hér þrifist engin spilling og bentum á erlendar rannsóknir því til stuðnings. Síðustu mánuðir og ár hafa berlega sýnt hversu illa við blekktum okkur sjálf. Daglega hafa komið fram nýjar upplýsingar um starfshætti íslensku bankanna og útrásarvíkinga sem sýna hvernig þræðirnir liggja út um allt samfélagið og inn í stjórnkerfið.

Rætur spillingar eru oftast taldar fjórar. Í fyrsta lagi þarf tækifæri. Í öðru lagi verða að vera litlar líkur á að upp komist vegna lélegs eftirlits og lítils gagnsæis. Í þriðja lagi þarf að vera ávinningur af spillingunni og í fjórða lagi þurfa aðstæður og almennt viðhorf að hvetja venjulegt fólk til að hunsa lög og reglur.

Þessar aðstæður voru til staðar fyrir hrun og virðast því miður enn vera til staðar. Ef eitthvað er, þá er ljóst að sú upplausn sem ríkt hefur í samfélaginu getur verið jafnvel enn meiri gróðrastía spillingar og vinargreiða en var fyrir hrun.

Þannig hefur fólki ofboðið þegar tugmilljarða skuldir útrásarvíkinga eru felldar niður með einu pennastriki án þess að hróflað sé við lífstíl þeirra á meðan fulltrúar skilanefndanna og nýju bankanna segja okkur að þetta komi okkur ekkert við.

Ósanngirnin og ójöfnuðurinn eru sláandi. Fólk sem gerði ekkert nema reyna að koma sér þaki yfir höfuðið er sagt hafa farið „óvarlega“ í fjármálum og keypt of mikið af flatskjám. Einu úrræðin sem þessu fólki eru boðin eru 110% leiðin eða sértæk félagsleg greiðsluaðlögun hjá Umboðsmanni skuldara.

En er hrunið almenningi að kenna? Ekki segja tölurnar okkur það. Vandamálið var ekki of mikil einkaneysla á lúxusvarningi hjá íslenskum almenningi. Það voru einhverjir aðrir sem sáu um það. Opinberar tölur um neysluhlutföll sýna að þættir líkt og Fatnaður, Hótel og veitingastaðir og Raftæki stóðu nánast í stað eða drógust jafnvel saman. Liðurinn Húsnæði, hiti og rafmagn jókst hins vegar umtalsvert, en hann fór úr því að vera um 21,3% af útgjöldum heimilanna árið 2002 í 28% árið 2007. Kreditkortaskuldir jukust einnig mikið. Á sama tíma urðu skuldir heimilanna við lánakerfið 124% af vergum þjóðartekjum, en almennt er hagkerfi talið gjaldþrota þegar skuldir nema 100%.

Fjármagnseigendur fengu því æ stærri hluta af tekjum fólks í gegnum vexti og verðbætur, enda sterk krafa um ríkulega ávöxtun fjármagnsins. Markmiðið var að hámarka hagnaðinn í þeirri von að nokkrir brauðmolar myndu nú hrynja af borðum hinna fáu útvöldu til almúgans.

Hvað með 99 prósentin?

Fólk mótmælir einnig stjórnmálamönnum sem það telur vera bundna á klafa stórfyrirtækjanna og fjármálakerfisins. Trúin á að lýðræðið virki og eitthvað réttlæti sé að finna dofnar stöðugt. Þetta endurspeglast í að Alþingi Íslendinga mælist með 12-13% traust.

Man einhver eftir hugmyndum um samvinnurekstur í heilbrigðisþjónustu, skólakerfinu eða bönkunum? Skólum sem reknir væru af kennurum og foreldrum? Heilsugæslu þar sem læknar og sjúklingar sameinuðust um reksturinn? Eða lánastofnunum þar sem markmiðið væri að lána peninga til félagsmanna á sanngjörnum kjörum?

Á næstu vikum og mánuðum mun samþjöppun og fákeppni aukast á íslenskum bankamarkaði, allt í nafni hagræðingar og arðsemi eigin fjár. Litlu sparisjóðirnir munu renna saman við stóru bankana þrjá. Samfélagslegt hlutverk fjármálastofnana mun víkja fyrir blindri trú á hagkvæmni stærðarinnar og aukna arðsemi. Almenningur mun ekki eiga neitt val. Ríkisstjórnin fer þarna með ferðina og virðist önnum kafin við að framfylgja þeirri hugmyndafræði sem olli hruninu.

Um allan heim safnast fólk saman á götum úti til að reyna að fá stjórnmálamenn til að leiða hugann að almenningi, en ekki aðeins að þeim sem hefur tekist að sanka að sér stærstum hluta fjármagnsins í heiminum. Og hver eru viðbrögð stjórnmálamannanna? Jú, að leggja frekari álögur á almenning til að safna í sjóði til bjargar bönkunum.

Hvað með okkur hin? Hvað með 99 prósentin?

Ég vonaði innilega að menn meintu eitthvað með því að vilja endurreisa nýtt Ísland, þar sem við myndum ætíð setja manngildi ofar auðgildi. Nýtt Ísland sem hefði samvinnu, sjálfsábyrgð, sjálfshjálp, lýðræði, jafnrétti, sanngirni og samstöðu að leiðarljósi.

Því miður eru þær vonir að bresta.

(Greinin birtist fyrst á visir.is 21. október 2011)

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (7)

  • Jenný Anna

    Ég man hvar ég var þegar Kennedy var myrtur þó smástelpa væri.
    Ég man líka eftir 11.sept. 2011 og hversu hrædd ég varð.
    Ég man svo sannarlega eftir „Guð blessi Ísland“-ávarpinu og varð skelfingu lostin.
    Hvað var að gerast?????
    Takk fyrir þennan pistil.
    More power to you.

  • aagnarsson

    Eygló,
    frjálsar handfæraveiðar leysa byggða, mannréttinda, fátæktar,
    og atvinnuvanda Íslendinga.
    Ýsa 40.000 t. þorskur 170.000 t. Ufsi 50.000 t. = 260.000 t.
    Íslenska þjóðin er eins og þorskur á þurru landi, getur ekki
    bjargað sér.
    Mörghundruð þúsund tonn vantar upp á, að fiskimiðin skili þjóðinni þeim fiskafla sem eðlilegt er.
    Afléttum oki banka og líú af þjóðinni, komum með nýja hugsun
    við fiskveiðarnar og umgengnina um fiskimiðin.
    Eygló, komdu með stuðning við frelsi, til handfæraveiða.

  • Fólk öskrar og trommar á ykkur alþingismenn (margir koma á þing eftir hrun )En endurskoðendafyrirtækin með útlendu flottu nöfnin sleppa.Endurskoðendafyrirtækin sem skoðuðu bankanna og þáðu milljarða fyrir.

  • Haukur Kristinsson

    Eygló, mjög góð grein.

  • S. Guðmunds

    Góð grein hjá þér, Eygló og þörf ábending.

    Annars finnst mér þetta samfélag orði sjúkt og vænisýkin er komin í algjört hámark.

    Alls staðar er reynt að „koma upp“ um meinta spillingu og látið sem að þetta sé mikið vandamál hér á landi.

    Það er orðin einskonar McCarthy stemning hér á landi, bara með öfugum formerkjum.

    Hér leiða vinstrimenn þetta sjúklega ástand og telja sig hafa veiðileyfi á alla andstæðinga sína af því að þeirra fólk er við stjórnvölin.

    Ákveðinn hópur fólks á vinstrivængum er í herför geng andstæðingum sínum.

    Það er ráðist á Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn og verða fyrir ofsóknum.

    Forsetinn verður fyrir hörðum árásum.

    Allstaðar er reynt að finna sökudólga og þeir sem liggja vel við höggi eru látnir finna fyrir því.

    Ráðist er á kirkjuna og starfsemi hennar takmörkuð og gerð tortryggileg.

    Meintir vændiskaupendur eru hundeltir og reynt að leggja líf þeirra í rúst.

    Erlendir fjárfestar eru gerðir tortryggilegir og flæmdir í burtu.

    Áliðnaður eru gerður tortryggilegur og allt gert til að flæma hann af landinu.

    Setja á verulega takmörk við heimsóknum herskipa vinaþjóða og reynt að banna bandalagsþjóðum úr NATO umferð um Íslands.

    Þetta eru ekkert annað en pólitískar nornaveiðar og ofstæki vinstrisinna sem ráða hér ríkjum.

    Hér fara fremstir svokallaðir álitsgjafar, eftiráspekiningar og ofurbloggarar, sem telja sig hafa fengið veiðileyfi á pólitíska andstæðinga af því að þeirrar fólk er við stjórnvölin á Íslandi.

    Þetta er orðið móðursýkislegt ofstopaástand sem ríkir hér á landi.

    Þetta ástand getur bara leitt til eins, mikilla hörmunga og það mun því allt fara á versta veg hér á landi.

    Allir vita hvernig fer fyrir nornaveiðurum. Þeir fara í gleymskunar dá með skít og skömm sem arfleið.

  • Jón Sig.

    Kristinn H segir á bloggi sínu:

    „Verðtrygging býr ekki til neinar skuldir, en tryggir að lántakandinn endurgreiði þau verðmæti sem hann fékk að láni“

    Þegar Jóhanna og Steingrímur hækka álögur á áfengi, tóbak og benzin, hækkar höfuðstóll verðtryggðrar innistæðu Ömmu gömlu í bankanum.

    Nú er spurt hvaða verðmæti hafa orðið til?

    Síðan hækka allar verðtryggðar skuldir heimilanna, að sama skapi.

    Aftur er spurt hvaða verðmæti standa að baki þessari skuld?

    Nú er nóbelsverðlaunahafinn Krugman væntanlegur til landsins, og væri nú ekki rétt að Kristinn H fái aðstoð hjá Krugman, að svara þessum spurningum.

    Allir skinsamir Íslendingar, gera sér grein fyrir því, að við verðum að vera með svipaða hagstjórn og er í nágrannalöndum, og bjóða svipuð vaxtakjör, og þar tíðkast.

  • Þetta er einn besti pistill sem ég hef nokkru sinni lesið (og heyrt).

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af átta og átta? Svar:

Höfundur

Eygló Harðardóttir
og lífið eftir pólitík.
RSS straumur: RSS straumur