VG og Katrín Jakobsdóttir hlýtur að verja vegatolla eins og annað sem kemur úr smiðju Sjálfstæðisflokksins þessa dagana. Svik VG við kjósendur núna trompa sennilega svik Jóhönnu og Steingríms, því aðstæður eru nú aðrar í efnahagsmálum.
Samkvæmt útreikningur FÍB innheimti ríkið árið 2016 um 60 milljarða króna í skatta á bíleigendur, sem með hækkandi skatti á eldsneyti og aukna innheimtu vegna gríðarlegs innflutning á bifreiðum eru væntanlega í dag í það minnsta 80 milljaðar. Aðeins 19,1 milljörðum króna er hins vegar varið til viðhalds og lagningar vega á fjárlögum ársins 2018. Um 9 milljörðum er varið í viðhald vega en nýlega sagði vegamálastjóri að þótt um smá aukningu væri að ræða næðum við ekki að halda í horfinu þegar svo litlir peningar fara í viðhald vega, þ.e. hálfpartinn ónýtt vegakerfi mun halda áfram að versna.
Stór hluti af „viðhaldspeningunum“ fer – skv. Vegagerðinni – í að auka umferðaröryggi. Þannig á að leggja bundið slitlag á síðasta kafla vegarins yfir Fróðárheiði. Auka á umferðaröryggi með því að tvöfalda brýr við Kvíá og við Vatnsnesveg um Tjarnará. Í ljósi þessarar forgangsröðun vekja framkvæmdir sem ráðist er í mikla furðu. Malbika á t.a.m. fáfarna leið um Fróðárheiði á Snæfellsnesi, en flestir taka jú Vatnaleiðina. Samkvæmt talningu á heimasíðu Vegagerðarinnar fóru 64 bifreiðar um bifreiðina á þessum sólarhring. Þegar umferðin var hvað mest á Fróðárheiði í dag milli 15:40-15:50 fóru 5 bílar um heiðina.
Í nýlegu viðtali taldi vegamálastjóri framkvæmdir við Suðurlandsveg milli Hveragerðis og Selfoss, veginn um Gufudalssveit, Dynjandisheiði, Borgarfjarðarveg og Dettifossveg mjög brýnar, þar sem einn og hálfan milljarð vantar upp á fjárframlög. Þessu mati geta held ég flestir verið sammála. Vegamálastjóri minntist ekki einu orði á að klára þyrfti einfalda kafla Reykjanesbrautarinnar, þar sem um tugir banaslysa og alvarlegra umferðarslysa hafa orðið á liðnum árum. Um Reykjanesbrautina fara að meðaltali um 15.000 ökutæki á dag og stefnir í 20.000 ökutækja umferð á þessu eða næsta ári. Í dag 24. janúar, þ.e. umferðin var mest kl.08:40-08:50, fóru 200 bifreiðar á 10 mínútum um Reykjanesbrautina.
Allt tal Alþingis og vegamálastjóra um forgangsröðun í þágu umferðaröryggis er hlálegt þegar málin eru skoðuð nánar. Stjórnarflokkarnir boðuðu stórsókn í samgöngumálum í kosningabaráttunni í vetur og allir hafa þeir svikið kosningaloforð sín.