Færslur fyrir október, 2010

Sunnudagur 31.10 2010 - 21:34

Ögmundur og tíminn

Ögmundur ráðherra stefnir fram mótrökum gegn hugmyndum fólks um utanþingsstjórn í pistli á heimasíðu sinni. Fyrir einhverjum misserum hefði ég getað tekið undir flest allt sem hann segir. Það sem gefur hugmyndinni um utanþingsstjórn aukið vægi í dag er tíminn, þessi áhrifavaldur sem við höfum ekki mikla stjórn á og fólk hefur svo mismunandi tilfinningu […]

Laugardagur 30.10 2010 - 21:55

Utanþingsstjórn-hvers vegna

Almenningi finnst skjaldborg Jóhönnu og Steingríms snúast um banka og slíkar stofnanir. Sterkustu hagsmunaaðilarnir eins og kvótaeigendur og lífeyrissjóðirnir eiga allt sitt undir óbreyttu kerfi. Almenningur á erfitt með markvissa gagnrýni sökum leyndarhyggju. Við teljum að lífeyrissjóðirnir séu illa farnir eftir samstarf sitt við bankana fyrir hrun. Við finnum það að lífeyrissjóðirnir vilja hala inn […]

Föstudagur 29.10 2010 - 23:42

Er ekki kominn tími til að hugsa hlutina upp á nýtt

Heimilin eru okkur öllum mjög kær. Þau eru það skjól sem við ölum upp komandi kynslóð sem mun taka við kyndlinum. Minningar okkar flestra hringsnúast um bernskuheimili okkar. Þær ákvarða oft á tíðum hvernig við spilum síðan úr lífinu. Um 73.000 heimila skulda í húsnæði sínu. Þeir sem skulda munu eiga í árslok 2011 um […]

Fimmtudagur 28.10 2010 - 20:52

..en ekkert gerist

Það er fátækt á Íslandi í dag. Þetta vita allir og lausnin er einnig þekkt. Þrátt fyrir það gerist ekkert, þeir fátæku eru enn fátækir, svangir og bíða í biðröðum eftir mat. Það á að skera niður hér og þar, menn halda fundi, ráðherrar mæta og hlusta en ekkert gerist. Stjórnvöld ræða um að leiðrétta […]

Sunnudagur 24.10 2010 - 21:27

Joseph Stiglitz og landsbyggðarsjúkrahúsin okkar

Joseph Stiglitz  Nobelsverðlaunahafi í hagfræði skrifar athyglisverða grein í Guardian þann 19. október s.l.. http://www.guardian.co.uk/commentisfree/cifamerica/2010/oct/19/no-confidence-fairy-for-austerity-britain/print Í þeirri grein ræðir hann þá þráhyggju ríkisstjórna að skera niður í kreppu. Hann nefnir ýmis dæmi máli sínu til stuðnings og telur þessa aðferð fullreynda. Afleiðingarnar séu mun verri en hugsanlegur ávinningur. Hann er í raun að andmæla aðferðum […]

Laugardagur 23.10 2010 - 21:35

Evrópusambandið og strákarnir frá Chicago

Í Evrópu gætir vaxandi óróleika og mótmæla. Þar eins og hér er ráðist á velferðakerfið og það er gert í skjóli bankakreppunnar. Eins og við vitum allt of vel þá urðu bankarnir óstarfhæfir vegna skulda. Hinn hluti hagkerfisins var að mjólka beljur, veiða fisk og bræða ál. Þrátt fyrir það sogaðist raunhagkerfið niður með bönkunum. […]

Föstudagur 22.10 2010 - 23:45

Að bölva í kirkjunni

Verkalýðsbarátta gengur út á að bæta kjör. Grunnhugmyndin er að kjör einstaklingsins er ekki einkamál viðkomandi. Þess vegna ákváðu menn að deila kostnaðinum á milli sín. Þegar einhver er veikur og óvinnufær eða lendir í slysi þá slá allir saman í púkkið. Grunnhugmyndin er að jafna kostnaðinum. Áður fyrr var það vandamál einstaklingsins að bjarga […]

Fimmtudagur 21.10 2010 - 20:23

Stjörnurnar og ASÍ

Forustumenn verkalýðshreyfingarinnar eru innmúraðir inní valdaelítu landsins. Það hefur átt sér töluverðan aðdraganda og er því ekkert nýtt. Nýjasta birtingamynd þess í dag er togstreita forystunnar á milli þess að stjórna lífeyrissjóðum eða verkalýðsfélagi. Röksemdarfærslunni er stillt þannig upp að ekki komi til greina að reka afa og ömmu út á gaddinn vegna óráðssíu unga […]

Mánudagur 18.10 2010 - 19:01

Hagsmunir hverra

Í dag fer fram mikil barátta um allan heim. Baráttan snýst um hvort tap banka skuli vera fjármagnað af almenningi eða þeim sem orsökuðu bankahrunið. Það voru bankarnir sem gátu ekki fjármagnað sjálfa sig á gjalddaga og fóru því í gjaldþrot. Afleiðingarnar fyrir almenning  eru vel þekktar og augljóst að hugmynd bankanna er að koma […]

Sunnudagur 17.10 2010 - 00:17

Það virðist allt stefna í tunnurnar-aftur

Það voru kröftug tunnumótmæli mánudagskvöldið 4 október. Ríkisstjórnin túlkaði mótmælin þannig að skuldug heimili væru ekki sátt, í raun mjög ósátt. Ríkisstjórnin steig ofan af stalli sínum og gaf í skyn að hún væri ekki fullkomin, hún hefði verið of fljót á sér að lofa Alþjóðagjaldeyrissjóðnum að gera ekkert frekar fyrir skuldug heimili. Hún meira […]

Höfundur

Gunnar Skúli Ármannsson
Var læknir á Landspítalanum en starfa núna í Svíþjóð. Kvæntur og á fjögur börn, hund og átti kött. Fæddur dreifbýlismaður-Kópavoginum-flutti síðan til borgarinnar. Bjó um tíma á Patreksfirði og var við sérnám í Svíþjóð um níu ára skeið. Er virkur í  Dögun. Tekið þátt í búsáhaldarbyltingunni síðan hún hófst. Er meðlimur attac samtakanna á Íslandi.
RSS straumur: RSS straumur