Færslur fyrir apríl, 2011

Laugardagur 30.04 2011 - 01:05

Vinnuhjú

Það virðist sem ríkisstjórnin hafi komist að einhverri niðurstöðu í kvótamálinu. Hún vill ekki segja okkur eigendum kvótans hvað til stendur. Samtök atvinnulífsins vilja semja núna við launþega og er það sennilega vegna þess að kvótamálið er komið höfn að þeirra mati. ASÍ notar tækifærið og rífur kjaft vegna þess að þeir vita að LÍÚ […]

Fimmtudagur 28.04 2011 - 23:22

Að eiga jeppa eða ekki

Þjáningar fátækra hafa náð eyrum landsmanna liðna daga. Mörgum finnst holur hljómur í svörum ráðamanna. Þeim er vorkunn því þeir ráða í raun litlu. Stefna AGS er stefna íslenskra ráðamanna og þeirri stefnu fylgir vaxandi fátækt. Haustið 2010 söfnuðust þúsundir landsmanna á Austurvöll og mótmæltu stefnu ríkisstjórnarinnar. Mótmælin beindust gegn stefnu hennar og AGS í […]

Þriðjudagur 26.04 2011 - 21:51

Hvernig er komið fyrir okkur

Íslensk þjóð er ekkert betri eða verri en aðrar þjóðir. Mörg okkar höfðum bara svo miklar væntingar og þess vegna verða til vonbrigði. Við töldum að viðsýni og óvenjuhátt menntastig og greind myndi gera gæfumuninn, svipað og við héldum um útrásarvíkingana og bankamennina á sínum tíma. Eins og þeir voru bara venjulegir er þjóðin okkar […]

Mánudagur 25.04 2011 - 20:07

LÍÚ og kattasmölun

Vegna mikils atvinnuleysis er mikil harka hjá atvinnurekendum. Í Evrópu eru kröfur um meiri afköst og minni réttindi og helgast það í orðunum að verkamenn Evrópu þurfi að verða samkeppnishæfari en áður. Þá er sennilega verið að miða við ódýrt vinnuafl í Asíu. Með sívaxandi kreppu mun verða auðveldara að minnka þann kostnað sem launamenn […]

Föstudagur 22.04 2011 - 00:21

Að skulda peninga

Mörgum er ljóst að það sem er að gerast í Lettlandi, Grikkland, Írlandi og Portúgal er yfirfærlsa á mistökum einkabanka yfir á skattgreiðendur. Þeir aðilar sem koma þessu í kring eru Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn ásamt ríkisstjórnum í viðkomandi löndum. Fyrst er samþykkt að mistök einkabanka og skuldir séu á ábyrgð skattgreiðenda. Sú ákvörðun er tekin […]

Miðvikudagur 20.04 2011 - 22:46

Karíus og Baktus

Það rekst allt á hvurs annars horn í tilverunni þessa dagana. Kvótaauðvaldið skellti sér ofan á samninga aðila um kaup og kjör á Íslandi. Við viljum fransbrauð sögðu þeir félagarnir um árið en fengu tannbursta í staðinn. Kvótaauðvaldið er hlynnt frelsi til athafna sem afmarkast af fríu fransbrauði og banni á tannburstum. Ríkisstjórnin hefur óbeint […]

Þriðjudagur 19.04 2011 - 21:46

Hvers vegna eru bankarnir skrímsli

Bubbi skrifar grein á Pressuna í dag sem heitir „Stóru bankarnir eru skrímsli“. Þar rekur hann staðreyndir um banka sem hluti þjóðarinnar fær að kenna á . Hinn hlutinn lítur undan frekar en að reyna að skilja. Að lokum spyr Bubbi grundvallarspurningarinnar „Hvernig getum við almenningur knúið bankana til að þjónusta okkur af heiðarleika og […]

Sunnudagur 17.04 2011 - 14:16

Eigum við að byggja brú

Það er mikið rætt stöðnun í þjóðfélaginu. Þá er aðallega átt við skort á atvinnu vegna skorts á verkefnum vegna skorts á lánsfé. Þar kemur umræðan um lánshæfismatið, ef það lækkar þá þarf ríkissjóður að greiða hærri vexti af lánum ef hann fær þá lán yfir höfuð. Þar sem ríkissjóður er svo stórskuldugur nú þegar […]

Miðvikudagur 13.04 2011 - 23:09

Þakkir til forseta Íslands

Stjórn Frjálslynda flokksins þakkar Ólafi Ragnari Grímssyni fyrir frækna framgöngu hans í Icesave málinu. Frá upphafi hefur málsmeðferð stjórnvalda í Icesavemálinu verið með endemum s.s. að ætla að þröngva  Icesavesamningnum ólesnum í gegnum Alþingi og geta ekki skýrt og varið af myndugleika málstað Íslendinga. Sú ákvörðun forsetans að skjóta Icesavemálinu til þjóðarinnar verður vonandi til […]

Mánudagur 11.04 2011 - 21:17

Allt á fullu

Seðlabankastjóri segir að allt sé í góðu með efnahag Íslands og biður sér vægðar hjá matsfyrirtækjunum. Steingrímur segir að Bretar og Hollendingar fái greitt, þrátt fyrir nei. Franek hjá AGS segir að neiið hafi engin áhrif á AGS. Össur og ESB segir að neiið hafi engin áhrif á umsókn Íslands um inngöngu í ESB. Árni […]

Höfundur

Gunnar Skúli Ármannsson
Var læknir á Landspítalanum en starfa núna í Svíþjóð. Kvæntur og á fjögur börn, hund og átti kött. Fæddur dreifbýlismaður-Kópavoginum-flutti síðan til borgarinnar. Bjó um tíma á Patreksfirði og var við sérnám í Svíþjóð um níu ára skeið. Er virkur í  Dögun. Tekið þátt í búsáhaldarbyltingunni síðan hún hófst. Er meðlimur attac samtakanna á Íslandi.
RSS straumur: RSS straumur