Færslur fyrir janúar, 2014

Þriðjudagur 28.01 2014 - 04:00

Afnám verðtryggingar – flókið en áríðandi mál.

Afnám verðtryggingar er flókið mál en það réttlætir ekki aðgerðaleysi. Helztu rökin gegn afnámi eru þau að lánastofnanir myndu hækka nafnvexti að sama skapi. Að óbreyttu er það e.t.v. rétt, en krefst viðeigandi viðbragða. Kjarni málsins er þessi: Fjármálakerfi sem sviptir þrjár fjölskyldur þaki yfir höfuðið dag hvern er helsjúkt. Slíkt ástand er ekki náttúrulögmál. En það tæki tíma að knýja fram […]

Laugardagur 25.01 2014 - 00:10

Tilefni að kveðja landsdóm saman að nýju?

Í Morgunblaðinu í dag, 24. janúar 2014. birti Víglundur Þorsteinsson (BM Vallá) opið bréf til forseta Alþingis um atriði í sambandi við leynilega samninga íslenzkra stjórnvalda við erlenda kröfuhafa bankanna árið 2009. Þann 13. desember sl. úrskurðaði Úrskurðarnefnd um upplýsingamál að afhenda bæri Víglundi ákveðin skjöl sem málið varða, og byggir Víglundur grein sína á […]

Mánudagur 20.01 2014 - 23:26

Er ríkisstjórn XB og XD lýðræðisleg?

Er það lýðræði að vinna kosningar með endemis bulli um 300 milljarða niðurfellingu skulda án þess að ríkissjóður taki á sig neinar byrðar – og bjóða síðan upp á 20 milljarða á næsta fjárlagaári samtímis því sem halli á ríkissjóði er talinn verða umtalsvert hærri?

Miðvikudagur 15.01 2014 - 17:45

Meint peningaþvætti íslenzkra banka fyrir hrun

Tölvupóstur dags. 15. janúar 2014. Ágætu alþingismenn. I. Dr. Gary K. Busch er bandarískur prófessor sem hefur rannsakað fjárstreymi frá Rússlandi til annarra landa. Í þessu sambandi heimsótti Dr. Busch Ísland stuttu eftir bankahrunið í október 2008. Í grein dags. 17. febrúar 2009 vék Dr. Busch að niðurstöðum rannsókna sinna á Íslandi. Upphaf og niðurlag […]

Mánudagur 13.01 2014 - 14:42

Lífeyrissjóðakerfið eykur skuldsetningu heimila

Ríkisstjórn XB og XD er umhugað um að létta skuldabyrði heimilanna. En fer í geitarhús að leita ullar – í séreignasparnað heimilanna og fugla í skógi en ekki löngu tímabæra breytingu á öfugsnúnu lífeyrissjóðakerfi. Greiðsla iðgjalda laumþega og atvinnurekenda til lífeyrissjóðanna lamar eftirspurn eftir vörum og þjónustu sem launþegar geta staðið undir með atvinnutekjum sínum. […]

Fimmtudagur 02.01 2014 - 22:34

Vaxtagreiðslur eða fjármagnsflótti?

1. Í færslu 17. febrúar 2009 (http://vald.org/greinar/090217/) vísaði Jóhannes Björn til innleggs míns á bloggi Egils Helgasonar þar sem vikið var að (meintri) þróun vergra vaxtagreiðslna þjóðarbúsins frá 2004 til 2008 skv. hagtölum Seðlabanka Íslands. Þar segir m.a.: „Aukning vaxtaútgjalda þjóðarbúsins úr 1/25 hluta vergrar landsframleiðslu 2004 í 1/3 hluta árið 2008 jafngildir blóðmjólkun samfélagsins. […]

Höfundur

Gunnar Tómasson
Ég er fæddur (1940) og uppalinn á Melunum í Reykjavík. Stúdent úr Verzlunarskóla Íslands 1960 og með hagfræðigráður frá Manchester University (1963) og Harvard University (1965). Starfaði sem hagfræðingur við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn frá 1966 til 1989. Var m.a. aðstoðar-landstjóri AGS í Indónesíu 1968-1969, og landstjóri í Kambódíu (1971-1972) og Suður Víet-Nam (1973-1975). Hef starfað sjálfstætt að rannsóknarverkefnum á ýmsum sviðum frá 1989, þ.m.t. peningahagfræði. Var einn af þremur stofnendum hagfræðingahóps (Gang8) 1989. Frá upphafi var markmið okkar að hafa hugsað málin í gegn þegar - ekki ef - allt færi á annan endann í alþjóðapeningakerfinu. Í október 2008 kom sú staða upp í íslenzka peninga- og fjármálakerfinu. Alla tíð síðan hef ég látið peninga- og efnahagsmál á Íslandi meira til mín taka en áður. Ég ákvað að gerast bloggari á pressan.is til að geta komið skoðunum mínum í þeim efnum á framfæri.
RSS straumur: RSS straumur

Tenglar