Færslur fyrir febrúar, 2014

Fimmtudagur 27.02 2014 - 01:54

Gjör rétt, þol ei órétt: Leikreglur lýðræðis eða landráð.

Ágætu alþingismenn. I. Í fyrradag framsendi ég eftirfarandi bloggfærslu mína, Hvert stefna ráðamenn XB og XD?: Af líkum má ráða að slit viðræðna við ESB sé ekki markmið í sjálfu sér. Heldur marki þau áfanga á vegferð til nánari efnahagslegra og pólitískra tengsla við Rússland og Kína. Vegferð sem felur í sér vísvitandi fráhvarf frá samstarfi við […]

Þriðjudagur 25.02 2014 - 10:07

Bréf til alþingismanna – Hvað hangir á spýtunni?

Ágætu alþingismenn. Ég gerði mér ferð til Íslands frá Bandaríkjunum fyrir viku síðan til að kanna hugsanlegan áhuga íslenzkra stjórnvalda á tæknilegri lausn vandamála við uppgjör þrotabúa Glitnis og Kaupþings, sem ég hef áður haft tækifæri til að bera undir íslenzka ráðamenn. Á morgun, þriðjudaginn 25. febrúar, fer ég af landi brott með þungar áhyggjur af því […]

Mánudagur 24.02 2014 - 13:09

Hvert stefna ráðamenn XB og XD?

 Af líkum má ráða að slit viðræðna við ESB sé ekki markmið í sjálfu sér. Heldur marki þau áfanga á vegferð til nánari efnahagslegra og pólitískra tengsla við Rússland og Kína. Vegferð sem felur í sér vísvitandi fráhvarf frá samstarfi við vestrænar lýðræðisþjóðir. Þótt stjórnvöld fullyrði annað. Kúvending í utanríkismálastefnu Íslands var ekki baráttumál XB og XD í síðustu alþingiskosningum. […]

Laugardagur 22.02 2014 - 14:10

Tær snilld!

Ljós rann upp fyrir landsfeðrum og mæðrum: Útilokun aðildar Íslands að ESB gulltryggir fiskimið LÍÚ gegn veiðum ESB. Nema í gegnum veðsetta kvóta í sveiflukenndri atvinnugrein. En snilldin ríður ekki við einteyming. Svo lengi sem XB og XD fá ráðið og Seðlabanki Íslands spilar með, þá felst skjaldborg um fjölskyldusilfrið í gengisfellingu krónunnar. Þetta eru […]

Föstudagur 07.02 2014 - 17:04

Lífeyrissjóðakerfi á villigötum.

Á fundi með Steingrími Hermannssyni, forsætisráðherra, og nokkrum ráðherrum hans haustið 1989 sagði ég það vera mesta glapræði að gera fjármagnsflutninga til og frá Íslandi frjálsa FYRR EN búið væri að taka fyrir þá óhömdu útlánaþenslu sem viðgengst innan íslenzka bankakerfisins. Hér vísaði ég til 3450% aukningar útlána á síðasta áratug og um sömu prósentutölu áratuginn á […]

Mánudagur 03.02 2014 - 23:56

Næsta hrun í boði lífeyrissjóðanna?

Lífeyrissjóðakerfið byggir á ranghugmyndum um peninga/bankainnistæður sem „skapandi“ þátt í hagkerfinu líkt og vinnuafl, aðföng og framleiðslutæki. Uppsöfnun lífeyrissjóðanna á hluta atvinnutekna launafólks til að braska með innanlands minnkar ráðstöfunartekjur og skerðir lífskjör almennings. Innstreymi utanaðkomandi fjármagns gróf undan efnahagslegum og fjármálalegum stöðugleika árin fyrir hrun. Gríðarlegt ráðstöfunarfjármagn lífeyrissjóðanna gerir slíkt hið sama þessa dagana. […]

Höfundur

Gunnar Tómasson
Ég er fæddur (1940) og uppalinn á Melunum í Reykjavík. Stúdent úr Verzlunarskóla Íslands 1960 og með hagfræðigráður frá Manchester University (1963) og Harvard University (1965). Starfaði sem hagfræðingur við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn frá 1966 til 1989. Var m.a. aðstoðar-landstjóri AGS í Indónesíu 1968-1969, og landstjóri í Kambódíu (1971-1972) og Suður Víet-Nam (1973-1975). Hef starfað sjálfstætt að rannsóknarverkefnum á ýmsum sviðum frá 1989, þ.m.t. peningahagfræði. Var einn af þremur stofnendum hagfræðingahóps (Gang8) 1989. Frá upphafi var markmið okkar að hafa hugsað málin í gegn þegar - ekki ef - allt færi á annan endann í alþjóðapeningakerfinu. Í október 2008 kom sú staða upp í íslenzka peninga- og fjármálakerfinu. Alla tíð síðan hef ég látið peninga- og efnahagsmál á Íslandi meira til mín taka en áður. Ég ákvað að gerast bloggari á pressan.is til að geta komið skoðunum mínum í þeim efnum á framfæri.
RSS straumur: RSS straumur

Tenglar