Miðvikudagur 25.10.2017 - 00:21 - FB ummæli ()

Að gefnu tilefni: Framboðsræða Jesús Jósefssonar

© Gunnar Tómasson

25. október 2017

Matteusarguðspjall 23

Einn er yðar meistari

1Þá talaði Jesús til mannfjöldans og lærisveina sinna:

2„Á stóli Móse sitja fræðimenn og farísear.

3Því skuluð þér gera og halda allt sem þeir segja yður en eftir breytni þeirra skuluð þér ekki fara því þeir breyta ekki sem þeir bjóða.

4Þeir binda þungar byrðar og leggja mönnum á herðar en sjálfir vilja þeir ekki snerta þær einum fingri.

5Öll sín verk gera þeir til að sýnast fyrir mönnum, þeir breikka minnisborða sína og stækka skúfana.

6Ljúft er þeim að skipa hefðarsæti í veislum og æðsta bekk í samkundum,

7láta heilsa sér á torgum og kallast meistarar af mönnum.

8En þér skuluð ekki láta kalla yður meistara því einn er yðar meistari og þér öll bræður og systur.

9Þér skuluð ekki kalla neinn föður yðar á jörðu því einn er faðir yðar, sá sem er á himnum.

10Þér skuluð ekki heldur láta kalla yður leiðtoga því einn er leiðtogi yðar, Kristur.

11Sá mesti meðal yðar sé þjónn yðar.

12Hver sem upp hefur sjálfan sig mun auðmýktur verða en sá sem lítillækkar sjálfan sig mun upp hafinn verða.


Blindir leiðtogar

13Vei yður, fræðimenn og farísear, hræsnarar! Þér læsið himnaríki fyrir mönnum. Sjálfir gangið þér ekki þar inn og þeim sem inn vilja ganga leyfið þér eigi inn að komast.
14Vei yður, fræðimenn og farísear, hræsnarar! Þér flytjið langar bænir að yfirskini og hlunnfarið ekkjur og hafið af þeim heimili þeirra. Þér munuð fá því þyngri dóm.]
15Vei yður, fræðimenn og farísear, hræsnarar! Þér farið um láð og lög til að snúa einum til yðar trúar og þegar það tekst gerið þér hann hálfu verra vítisbarn en þér sjálfir eruð.
16Vei yður, blindir leiðtogar! Þér segið: Ef einhver sver við musterið þá er það ógilt en sverji menn við gullið í musterinu þá er það gildur eiður.

17Blindu heimskingjar, hvort er meira gullið eða musterið sem helgar gullið?

18Þér segið: Ef einhver sver við altarið þá er það ógilt en sverji menn við fórnina, sem á því er, þá er það gildur eiður.

19Blindu menn, hvort er meira fórnin eða altarið sem helgar fórnina?

20Sá sem sver við altarið sver við það og allt sem á því er.

21Sá sem sver við musterið sver við það og við þann sem í því býr.

22Og sá sem sver við himininn sver við hásæti Guðs og við þann sem í því situr.
23Vei yður, fræðimenn og farísear, hræsnarar! Þér gjaldið tíund af myntu, anís og kúmeni en hirðið ekki um það sem mikilvægast er í lögmálinu, réttlæti, miskunn og trúfesti. Þetta ber að gera og hitt eigi ógert að láta.

24Blindu leiðtogar, þér síið mýfluguna en svelgið úlfaldann!
25Vei yður, fræðimenn og farísear, hræsnarar! Þér hreinsið bikarinn og diskinn utan en innan eru þeir fullir yfirgangs og óhófs.

26Blindi farísei, hreinsaðu fyrst bikarinn innan svo að hann verði líka hreinn að utan.
27Vei yður, fræðimenn og farísear, hræsnarar! Þér líkist hvítum kölkuðum gröfum sem sýnast fagrar utan en innan eru þær fullar af dauðra manna beinum og alls kyns óþverra.

28Þannig eruð þér. Þér sýnist góðir fyrir sjónum manna en eruð að innan fullir hræsni og ranglætis.
29Vei yður, fræðimenn og farísear, hræsnarar! Þér hlaðið upp grafir spámannanna og skreytið leiði réttlátra

30og segið: Ef vér hefðum lifað á dögum feðra vorra hefðum vér ekki átt hlut með þeim í lífláti spámannanna.

31Þannig vitnið þér það sjálfir að þér eruð afkomendur þeirra sem myrtu spámennina.

32Nú skuluð þér fylla mæli feðra yðar.

33Höggormar og nöðrukyn, hvernig fáið þér umflúið helvítisdóm?

34Þess vegna sendi ég til yðar spámenn, spekinga og fræðimenn. Suma þeirra munuð þér lífláta og krossfesta, aðra húðstrýkja í samkundum yðar og ofsækja borg úr borg.

35Þannig kemur yfir yður allt saklaust blóð sem úthellt hefur verið á jörðinni, frá blóði Abels hins réttláta til blóðs Sakaría Barakíasonar sem þér drápuð milli musterisins og altarisins.

36Sannlega segi ég yður: Allt mun þetta lenda á þessari kynslóð.


Þér vilduð eigi

37Jerúsalem, Jerúsalem! Þú sem líflætur spámennina og grýtir þá sem sendir eru til þín! Hversu oft vildi ég safna börnum þínum, eins og hænan safnar ungum sínum undir vængi sér, og þér vilduð eigi?

38Guð mun yfirgefa musteri yðar og það verður lagt í rúst.

39Ég segi yður: Héðan af munuð þér eigi sjá mig fyrr en þér segið: Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins.“

Flokkar: Óflokkað

«
»

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Höfundur

Gunnar Tómasson
Ég er fæddur (1940) og uppalinn á Melunum í Reykjavík. Stúdent úr Verzlunarskóla Íslands 1960 og með hagfræðigráður frá Manchester University (1963) og Harvard University (1965). Starfaði sem hagfræðingur við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn frá 1966 til 1989. Var m.a. aðstoðar-landstjóri AGS í Indónesíu 1968-1969, og landstjóri í Kambódíu (1971-1972) og Suður Víet-Nam (1973-1975). Hef starfað sjálfstætt að rannsóknarverkefnum á ýmsum sviðum frá 1989, þ.m.t. peningahagfræði. Var einn af þremur stofnendum hagfræðingahóps (Gang8) 1989. Frá upphafi var markmið okkar að hafa hugsað málin í gegn þegar - ekki ef - allt færi á annan endann í alþjóðapeningakerfinu. Í október 2008 kom sú staða upp í íslenzka peninga- og fjármálakerfinu. Alla tíð síðan hef ég látið peninga- og efnahagsmál á Íslandi meira til mín taka en áður. Ég ákvað að gerast bloggari á pressan.is til að geta komið skoðunum mínum í þeim efnum á framfæri.
RSS straumur: RSS straumur

Tenglar