Sunnudagur 28.02.2010 - 23:42 - 1 ummæli

Skemmtilegur landbúnaðarráðherra

Mér fannst landbúnaðarráðherrann skemmtilegur þegar hann fann að auglýsingu Símans þar sem nokkrir lopapeysuklæddir karlmenn leggja ekki í þorrabakkann. Ætli þetta hafi verið lattelepjandi lopapeysukarlar? Mér finnst auglýsing Símans mjög skemmtileg líka, ekki síðri en ráðherrann.

Ætli það séu engar landbúnaðarafurðir í pizzum?

Annars er myndin hérna í hausnum af Snæfjallaströndinni norðan Ísafjarðardjúps.

Flokkar: Spaugilegt

«
»

Ummæli (1)

  • Makrílinn mun án efa verða mikil búbót, á komandi árum,en til að svo megi verða þarf ráðherra að setja í reglugerð,að nokkur tonn úr hverjum farmi, fari á fiskimarkað, þá gætu smá fyrirtæki boðið í makrílinn, flutt hann til Ísafjarðar í frystigámum, og unnið hann þar til
    manneldis,þetta gæti orðið mikil búbót fyrir margar sjávarbyggðir.

Rita ummæli

Þú verður að vera innskráð/ur til að rita ummæli.

Höfundur

Halldór Halldórsson
Talsmaður málefnalegrar umræðu.
RSS straumur: RSS straumur