Miðvikudagur 23.11.2011 - 13:02 - 2 ummæli

Samvinnurekstur um leikskóla

Samvinnurekstrarformið er í mörgum tilfellum afar hentugt og gott rekstrarform enda viðhaft víða um heim með góðum árangri. Þótt það komi líklega einhverjum á óvart þá eru samvinnufélög líklega algengust í Bandaríkjunum og öflugt rekstrarform á Bretlandseyjum og Norðurlöndunum!

Samvinnurekstrarformið hentar til dæmis vel um rekstur leikskóla enda  víða erlendis mjög algengt að samvinnufélög foreldra sjá um rekstur leikskóla. Til að mynda gekk Magnús minn í slíkan leikskóla í Noregi á sínum tíma.

Er ekki ástæða til þess að íslensk stjórnvöld taki til í lagaumhverfinu og auðveldi stofnun og rekstur samvinnufélaga?

Er ekki líka ástæða til þess að foreldrar og sveitarfélög horfi til samvinnufélagaformsins í rekstri leikskóla?

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (2)

  • Þetta rekstrarform er líka notað í heilbrigðisþjónustu.

  • Saga samvinnureksturs er ekkert allt of falleg á Íslandi. Pólítísk samtvinnun, spilling og taprekstur er líklega fyrstu atriðin sem koma upp í huga Íslendinga þegar minnst er á samvinnurekstur.
    En það þyrfti ekki að koma í veg fyrir að samvinnurekstur ykist á Íslandi ef áhuginn er fyrir hendi. Það er eðlilegt að þeir sem áhuga hafa á slíku rekstrarformi kynni það og vekji áhuga fyrir því.
    Hvað telur þú Hallur að helst standi samvinnurekstri fyrir þrifum í lagaumhverfinu?

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af sex og tveimur? Svar:

Höfundur

Hallur Magnússon
Fjögurra barna faðir "af vondu fólki" og áhugamaður um þjóðmál.

Heldur upp á eftirfarandi vísu:

"Það þarf meiri kjark til að segja satt en ljúga,
sjálfstraust til að efast, er aðrir trúa,
djörfung til að mæla gegn múgsins boðun,
manndóm til að hafa eigin skoðun."

Séra Baldur segir að Hallur sé: "...bæði sviphreinn og tillögugóður"!
RSS straumur: RSS straumur