Færslur fyrir mars, 2013

Miðvikudagur 27.03 2013 - 18:12

Takk Jóhanna Sigurðardóttir

Nú eru margir þingmenn að hætta á Alþingi eftir áralangt illa metið starf. Flestir hafa staðið sig vel – þótt ég sé þeim ekki endilega sammála um allt! Ég vil sérstaklega nefna Siv Friðleifsdóttur sem er í hópi farsælustu þingmanna sem við höfum átt. Einnig Þuríði Backmann sem er með heiðarlegri þingmönnum þótt ég hafi […]

Þriðjudagur 26.03 2013 - 19:27

Dósentinn og dýralæknirinn!

Dósentinn Vilhjálmur Bjarnason frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í Stór-Hafnarfjarðarkjördæminu rembist eins og rjúpa við staur að feta í fótspor hins ættstóra dýralæknis úr Hafnarfirði Árna Matthiesen sem fékk ótrúlegan frama innan Sjálfstæðisflokks Vilhjálms. Dýralæknirinn var ekki einungis þingmaður um langt árabil. Hann var sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra – enda kominn af farsælum útgerðarmönnum í Hafnarfirði – og hann varð fjármálaráðherra Íslands. […]

Mánudagur 25.03 2013 - 22:58

Vilhjálmur B viðutan?

Annað hvort er Vilhjálmur Bjarnason frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins illilega viðutan eða hann er ekki eins vel gefinn og ég hélt. Hvor ástæðan sem er þá á hann ekki erindi á þing andstætt því sem ég taldi lengi vel.  Því grófar rangfærslur í greinum og viðtölum geta einungis átt sér tvær skýringar. Að viðkomandi svo viðutan að […]

Föstudagur 22.03 2013 - 11:46

Öldungadeild á Alþingi?

Það verður spennandi að sjá hvernig Lýðræðisvaktinni mun ganga í komandi kosningum. Það sem einkennir framboð hennar eru margir öflugir en frekar gamlir stjórnmálamenn. Þegar ég tala um stjórnmálamenn þá er ég bæði að tala um gamla fyrrum þingmenn eins og Þórhildi Þorleifsdóttir, harðpólitískan hagfræðiprófessor og ráðherrason eins og Þorvald Gylfason og verulega sjóaðan stjórnmálafræðiprófessur […]

Fimmtudagur 21.03 2013 - 17:37

Þróunarsamvinna er samvinnuhugsjón í framkvæmd

Þróunarsamvinna er einn mikilvægur þáttur samvinnustefnunnar. Þrátt fyrir efnahagslega áföll þá hafa Íslendingar þar harla gott miðað við stóran hluta mannkyns. Þá höfum við yfir þekkingu að ráða sem getur nýst við uppbyggingu fátækra samfélaga víðst vegar um heiminn. Við höfum á undanförnum áratugum miðlað þeirri reynslu með góðum árangri. Þróunarsamvinna á að vera einn af hornsteinum […]

Miðvikudagur 20.03 2013 - 16:27

Ærandi gervifossniður stöðvaður?

Vélrænn dynur frá umferðinni á Miklubraut dró ekki úr ánægjunni á götuhátíð Rauðgerðinga sem haldin var á rólónum í Rauðagerði í gær. En dynurinn – sem reyndar var með mildasta móti þar sem umferð um Miklubraut er frekar í lágmarki á laugardagseftirmiðdögum – var þó nægur til þess að nær allir götuhátíðargestirnir skrifuðu undir áskorun […]

Þriðjudagur 19.03 2013 - 07:56

Öflug miðjustjórn

Það er grundvöllur fyrir öflugri miðjustjórn eftir kosningar. Viðhorfsbreyting almennings gagnvart aðildarviðræðum að Evrópusambandinu þar sem rúm 60% vilja klára aðildarviðræður og tæp 40% slíta þeim gefur Framsóknarflokknum leið til þess að mynda ríkisstjórn með Samfylkingu og Bjartri framtíð undir forsæti Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Framsóknarflokkurinn getur beitt  þeim rökum að rétt hefði verið að kjósa […]

Mánudagur 18.03 2013 - 21:04

400000 stk Boeing 737

Bjórdósir og gosdósir sem Bandaríkjamenn hentu í ruslið á síðasta áratug í stað þess að endurvinna þær hefðu dugað í 400 þúsund Boeing 737 farþegaþotur. Í eina fullkomna farþegaþotu undir hvern og einn lifandi Íslending og Færeying. Það sem meira er. Þessi gegndarlausa sóun kostaði 94% meiri orku við að bræða sambærilegt ál frá grunni en ef […]

Sunnudagur 17.03 2013 - 09:38

Stjórnarskrárumbótum stútað

Farsælar breytingar á stjórnarskrá Íslands er eitt af mikilvægustu verkefnum samtímans. Þjóðin virtist lengst af vera meðvituð um mikilvægi þess. En nú virðist sem lunginn úr þjóðinni hafi gefist upp á stjórnarskrármálinu og telji róttækar breytinga á stjórnarskrá mega bíða enn um sinn. Það er afar slæmt því þörfin á breytingum er svo sannarlega til staðar. […]

Laugardagur 16.03 2013 - 07:33

Björt framtíð Bjartrar framtíðar

Á meðan við horfum á öfgafull viðbrögð viðsterkri stöðu Framsóknarflokksins í viðhorfskönnunum – þar sem stuðningsmenn Framsóknar sem um langt árabil hafa þurft að sæta nánast einelti fyrir stjórnmálaskoðanir sínar geta varla hamið sig af ánægðu og hatrammir andstæðingar Framsóknarflokksins gersamlega missa sig í venjubundnu lítt rökstuddu skítkasti sínu gagnvart Framsóknarflokkum – þá yfirsést flestum merkileg […]

Höfundur

Hallur Magnússon
Fjögurra barna faðir "af vondu fólki" og áhugamaður um þjóðmál.

Heldur upp á eftirfarandi vísu:

"Það þarf meiri kjark til að segja satt en ljúga,
sjálfstraust til að efast, er aðrir trúa,
djörfung til að mæla gegn múgsins boðun,
manndóm til að hafa eigin skoðun."

Séra Baldur segir að Hallur sé: "...bæði sviphreinn og tillögugóður"!
RSS straumur: RSS straumur