Laugardagur 16.07.2011 - 01:12 - FB ummæli ()

Drög að nýju stjórnarskránni

Stjórnlagaráð er, með algjörlega ómetanlegu vinnuframlagi starfsmanna ráðsins, búið að semja drög að frumvarpi til nýrrar stjórnarskrár.

Athugið að þetta er ekki endanlegur texti. Næstu tvær vikur verður farið yfir hann, og vafalaust samþykktar ýmsar breytingartillögur.

Sumar þeirra um mjög mikilvæg mál, trúi ég.

En mjög róttækar grundvallarbreytingar verða varla gerðar úr þessu. Þó maður viti aldrei. Svona lítur sem sagt verkið út á þessu stigi, fyrir utan aðfararorðin sem við erum enn að semja.

Ég vona að sem allra flestir lesi þetta í þaula og myndi sér skoðun á plagginu. Greinargerð með þessu frumvarpi verður í dag aðgengileg á veg stjórnlagaráðs – stjornlagarad.is – og hana ætti fólk líka að lesa. Greinargerðir einstakra greina skýra vonandi hver er hugsunin með hverju ákvæði um sig.

En þetta er sem sagt það sem við höfum verið að gera síðustu þrjá og hálfa mánuð!

– – – – –

Drög að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga


Aðfaraorð

I. KAFLI. Undirstöður

1. gr. Handhafar ríkisvalds

2. gr. Yfirráðasvæði

3. gr. Ríkisborgararéttur

II. KAFLI. Mannréttindi

4. gr. Mannleg reisn

5. gr. Jafnræði

6. gr. Vernd réttinda

7. gr. Mannhelgi

8. gr. Friðhelgi einkalífs

9. gr. Réttur barna

10. gr. Eignarréttur

11. gr. Skoðana- og tjáningarfrelsi

12. gr. Upplýsingafrelsi

13. gr. Frelsi fjölmiðla

14. gr. Frelsi menningar og mennta

15. gr. Trúfrelsi

16. gr. Kirkjuskipan

17. gr. Félagafrelsi

18. gr. Fundafrelsi

19. gr. Félagsleg réttindi

20. gr. Heilbrigðisþjónusta.

21. gr. Menntun

22. gr. Atvinnufrelsi

23. gr. Dvalarréttur og ferðafrelsi .

24. gr. Frelsissvipting

25. gr. Réttlát málsmeðferð

26. gr. Bann við ómannúðlegri meðferð

27. gr. Bann við afturvirkni refsingar

28. gr. Bann við herskyldu

29. gr. Menningarverðmæti

III. KAFLI. Náttúra og umhverfi

30. gr. Náttúra Íslands og umhverfi

31. gr. Náttúruauðlindir

32. gr. Upplýsingar um umhverfi og málsaðild

33. gr. Dýravernd

IV. KAFLI. Alþingi

34. gr. Hlutverk

35. gr. Friðhelgi

36. gr. Alþingiskosningar

37. gr. Kjörtímabil

38. gr. Kosningaréttur

39. gr. Kjörgengi

40. gr. Missir kjörgengis

41. gr. Gildi kosninga

42. gr. Starfstími

43. gr. Samkomustaður

44. gr. Þingsetning

45. gr. Eiðstafur

46. gr. Sjálfstæði alþingismanna

47. gr. Friðhelgi alþingismanna

48. gr. Hagsmunaskráning og vanhæfi

49. gr. Styrkir til frambjóðenda og samtaka þeirra

50. gr. Þingforseti

51. gr. Þingsköp

52. gr. Þingnefndir

53. gr. Opnir fundir

54. gr. Flutningur þingmála

55. gr. Meðferð lagafrumvarpa

56. gr. Meðferð þingsályktunartillagna

57. gr. Ályktunarbærni

58. gr. Staðfesting laga

59. gr. Birting laga

60. gr. Lögrétta

61. gr. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd

62. gr. Rannsóknarnefndir

63. gr. Málskot til þjóðarinnar

64. gr. Þingmál að frumkvæði kjósenda

65. gr. Framkvæmd undirskriftasöfnunar og þjóðaratkvæðagreiðslu

66. gr. Frumvarp til fjárlaga

67. gr. Greiðsluheimildir

68. gr. Réttur fjárlaganefndar til upplýsinga

69. gr. Skattar

70. gr. Eignir og skuldbindingar ríkisins

71. gr. Þingrof

72. gr. Ríkisendurskoðun

73. gr. Umboðsmaður Alþingis

V. KAFLI. Forseti Íslands

74. gr. Embættisheiti og þjóðkjör

75. gr. Kjörgengi

76. gr. Forsetakjör

77. gr. Kjörtímabil

78. gr. Eiðstafur

79. gr. Starfskjör

80. gr. Staðgengill

81. gr. Fráfall

82. gr. Ábyrgð

83. gr. Náðun og sakaruppgjöf

VI. KAFLI. Ráðherrar og ríkisstjórn

84. gr. Ráðherrar

85. gr. Ríkisstjórn

86. gr. Hagsmunaskráning og opinber störf

87. gr. Ráðherrar og Alþingi

88. gr. Stjórnarmyndun

89. gr. Vantraust

90. gr. Starfsstjórn

91. gr. Upplýsinga- og sannleiksskylda

92. gr. Skýrsla ríkisstjórnar til Alþingis

93. gr. Ráðherraábyrgð

94. gr. Skipun embættismanna

VII. KAFLI. Dómsvald

95. gr. Skipan dómstóla

96. gr. Sjálfstæði dómstóla

97. gr. Lögsaga dómstóla

98. gr. Hæstiréttur Íslands

99. gr. Skipun dómara

100. gr. Sjálfstæði dómara

101. gr. Lögspurning til Hæstaréttar

102. gr. Ákæruvald og ríkissaksóknari

VIII. KAFLI. Sveitarfélög

103. gr. Sjálfstæði sveitarfélaga

104. gr. Nálægðarregla

105. gr. Kosning sveitarstjórna og íbúalýðræði

106. gr. Samráðsskylda

IX. KAFLI. Utanríkismál

107. gr. Meðferð utanríkismála

108. gr. Þjóðréttarsamningar

109. gr. Framsal ríkisvalds

110. gr. Skyldur samkvæmt alþjóðlegum samningum

X. KAFLI. Lokaákvæði

111. gr. Stjórnarskrárbreytingar

Aðfaraorð

I. KAFLI.

Undirstöður

1. gr.

Handhafar ríkisvalds

Alþingi fer með löggjafarvaldið í umboði þjóðarinnar.

Ráðherrar, ríkisstjórn og önnur stjórnvöld, í umboði Alþingis, fara með framkvæmdarvaldið ásamt forseta Íslands.

Hæstiréttur Íslands og aðrir dómstólar fara með dómsvaldið.

2. gr.

Yfirráðasvæði

Íslenskt landsvæði er eitt og óskipt. Mörk íslenskrar landhelgi, lofthelgi og efnahagslögsögu skulu

ákveðin með lögum.

3. gr.

Ríkisborgararéttur

Rétt til íslensks ríkisfangs öðlast þeir sem eiga foreldri með íslenskt ríkisfang. Ríkisborgararéttur

verður að öðru leyti veittur samkvæmt lögum.

Engan má svipta íslenskum ríkisborgararétti.

Íslenskum ríkisborgara verður ekki meinað að koma til landsins né verður honum vísað úr landi. Með

lögum skal skipað rétti útlendinga til að koma til landsins og dveljast hér, svo og fyrir hvaða sakir sé

hægt að vísa þeim úr landi.

II. KAFLI.

Mannréttindi

4. gr.

Mannleg reisn

Öllum skal tryggður réttur til að lifa með reisn. Margbreytileiki mannlífsins skal virtur í hvívetna.

5. gr.

Jafnræði

Öll erum við jöfn fyrir lögum og skulum njóta mannréttinda án mismununar, svo sem vegna kynferðis,

aldurs, arfgerðar, búsetu, efnahags, fötlunar, kynhneigðar, kynþáttar, litarháttar, skoðana,

stjórnmálatengsla, trúarbragða, tungumáls, uppruna, ætternis og stöðu að öðru leyti.

Konur og karlar skulu njóta jafns réttar í hvívetna.

6. gr.

Vernd réttinda

Yfirvöldum ber á hverjum tíma að tryggja mannréttindi gegn ágangi ríkisvalds og annarra.

7. gr.

Mannhelgi

Öllum skal tryggð mannhelgi og vernd gegn hvers kyns ofbeldi, svo sem kynferðisofbeldi, innan

heimilis og utan.

8. gr.

Friðhelgi einkalífs

Friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu skal tryggð.

Ekki má gera líkamsrannsókn eða leit á manni, leit í húsakynnum hans eða munum, nema samkvæmt

dómsúrskurði eða sérstakri lagaheimild. Það sama á við um rannsókn á skjölum og póstsendingum,

símtölum og öðrum fjarskiptum, svo og hvers konar sambærilega skerðingu á einkalífi manns.

Þrátt fyrir ákvæði fyrstu málsgreinar má með sérstakri lagaheimild takmarka á annan hátt friðhelgi

einkalífs, heimilis eða fjölskyldu ef brýna nauðsyn ber til vegna réttinda annarra.

9. gr.

Réttur barna

Öllum börnum skal tryggð í lögum sú vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst.

Það sem barni er fyrir bestu skal ávallt hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir í málum sem það

varðar.

Barni skal tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í öllum málum sem það varðar og skal tekið

réttmætt tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska.

10. gr.

Eignarréttur

Eignarrétturinn er friðhelgur. Engan má skylda til að láta af hendi eign sína nema almenningsþörf

krefji. Þarf til þess lagafyrirmæli og komi fullt verð fyrir.

Eignarrétti fylgja skyldur, svo og takmarkanir í samræmi við lög. Nýting eignarréttar skal ekki ganga

gegn almannahag.

11. gr.

Skoðana- og tjáningarfrelsi

Öll erum við frjáls skoðana okkar og sannfæringar og eigum rétt á að tjá hugsanir okkar.

Stjórnvöld skulu tryggja aðstæður til opinnar og upplýstrar umræðu. Óheftur aðgangur að netinu og

upplýsingatækni skal tryggður.

Ritskoðun og aðrar sambærilegar tálmanir á tjáningarfrelsi má aldrei í lög leiða. Þó má setja

tjáningarfrelsi skorður með lögum til verndar börnum, öryggi, heilsu, réttindum eða mannorði

annarra, svo sem nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi.

Hver og einn ber ábyrgð á framsetningu skoðana sinna.

12. gr.

Upplýsingafrelsi

Öllum er frjálst að safna og miðla upplýsingum.

Stjórnsýsla skal vera gegnsæ og halda til haga gögnum, svo sem fundargerðum, og skrásetja og

skjalfesta erindi, uppruna þeirra, ferli og afdrif. Slíkum gögnum má ekki eyða nema samkvæmt lögum.

Upplýsingar og gögn í fórum stjórnvalda skulu vera tiltæk án undandráttar og skal með lögum tryggja

aðgang almennings að öllum gögnum sem opinberir aðilar safna eða standa straum af. Listi yfir öll

mál og gögn í vörslu hins opinbera, uppruna þeirra og innihald, skal vera öllum aðgengilegur.

Afhendingu gagna, geymslu þeirra og birtingu þeirra má aðeins setja skorður með lögum í

lýðræðislegum tilgangi, svo sem vegna friðhelgi einkalífs, öryggis ríkisins eða lögbundins starfs

eftirlitsstofnana. Um gögn sem lögbundin leynd hvílir yfir skulu liggja fyrir upplýsingar um ástæður

leyndar og takmörkun leyndartíma.

13. gr.

Frelsi fjölmiðla

Frelsi fjölmiðla, ritstjórnarlegt sjálfstæði þeirra og gegnsætt eignarhald skal tryggja með lögum.

Vernd blaðamanna, heimildarmanna og uppljóstrara skal tryggja í lögum. Óheimilt er að rjúfa

nafnleynd án samþykkis þess sem veitir upplýsingar nema við meðferð sakamáls og samkvæmt

dómsúrskurði.

14. gr.

Frelsi menningar og mennta

Tryggja skal með lögum frelsi vísinda, fræða og lista.

15. gr.

Trúfrelsi

Öllum skal tryggður réttur til trúar og lífsskoðunar, þar með talinn rétturinn til að breyta um trú eða

sannfæringu og standa utan trúfélaga.

Öllum er frjálst að iðka trú, einslega eða í samfélagi með öðrum, opinberlega eða á einkavettvangi.

Stjórnvöldum ber að vernda öll skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög.

Frelsi til að rækja trú eða sannfæringu skal einungis háð þeim takmörkunum, sem lög mæla fyrir um

og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi.

16. gr.

Kirkjuskipan

Í lögum má kveða á um kirkjuskipan ríkisins.

Nú samþykkir Alþingi breytingu á kirkjuskipan ríkisins og skal þá leggja það mál undir atkvæði allra

kosningarbærra manna í landinu til samþykktar eða synjunar.

17. gr.

Félagafrelsi

Öllum skal tryggður réttur til að stofna félög í löglegum tilgangi, þar með talin stjórnmálafélög og

stéttarfélög, án þess að sækja um leyfi til þess. Félag má ekki leysa upp með ráðstöfun stjórnvalds.

Engan má skylda til aðildar að félagi. Með lögum má þó kveða á um slíka skyldu ef það er nauðsynlegt

til að félag geti sinnt lögmæltu hlutverki vegna almannahagsmuna eða réttinda annarra.

18. gr.

Fundafrelsi

Öllum skal tryggður réttur til að safnast saman án sérstaks leyfis, svo sem til fundahalda og mótmæla.

Réttur þessi skal ekki háður öðrum takmörkunum en þeim sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í

lýðræðislegu þjóðfélagi.

19. gr.

Félagsleg réttindi

Öllum skal með lögum tryggður réttur til lífsviðurværis og félagslegs öryggis.

Öllum, sem þess þurfa, skal tryggður í lögum réttur til almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar, svo

sem vegna atvinnuleysis, barneigna, elli, fátæktar, fötlunar, veikinda, örorku eða sambærilegra

aðstæðna.

20. gr.

Heilbrigðisþjónusta

Allir eiga rétt til að njóta andlegrar og líkamlegrar heilsu að hæsta marki sem unnt er.

Öllum skal með lögum tryggður réttur til aðgengilegrar, viðeigandi og fullnægjandi

heilbrigðisþjónustu.

21. gr.

Menntun

Öllum skal tryggður í lögum réttur til almennrar menntunar.

Öllum skal standa til boða grunnskólamenntun án endurgjalds.

Menntun skal miða að alhliða þroska hvers og eins, gagnrýnni hugsun og vitund um lýðræðisleg

réttindi og skyldur.

22. gr.

Atvinnufrelsi

Öllum er frjálst að stunda þá atvinnu sem þau kjósa. Þessu frelsi má þó setja skorður með lögum ef

almannahagsmunir krefjast.

Í lögum skal kveða á um rétt til mannsæmandi vinnuskilyrða, svo sem hvíldar, orlofs og frítíma. Öllum

skal tryggður réttur til sanngjarnra launa og til að semja um starfskjör og önnur réttindi tengd vinnu.

23. gr.

Dvalarréttur og ferðafrelsi

Allir skulu ráða búsetu sinni og vera frjálsir ferða sinna með þeim takmörkunum sem eru settar með

lögum.

Engum verður meinað að hverfa úr landi nema með ákvörðun dómstóla. Stöðva má þó brottför

manns úr landi með lögmætri handtöku.

Með lögum skal kveða á um rétt flóttamanna og hælisleitenda til réttlátrar og skjótrar

málsmeðferðar.

24. gr.

Frelsissvipting

Engan má svipta frelsi nema samkvæmt heimild í lögum.

Hver sá sem hefur verið sviptur frelsi á rétt á að fá að vita tafarlaust um ástæður þess.

Hvern þann sem er handtekinn vegna gruns um refsiverða háttsemi skal án undandráttar leiða fyrir

dómara. Sé hann ekki jafnskjótt látinn laus skal dómari, áður en sólarhringur er liðinn, ákveða með

rökstuddum úrskurði hvort hann skuli sæta gæsluvarðhaldi. Gæsluvarðhaldi má aðeins beita fyrir sök

sem fangelsisvist liggur við. Með lögum skal tryggja rétt þess sem sætir gæsluvarðhaldi til að skjóta

úrskurði um það til æðra dóms. Maður skal aldrei sæta gæsluvarðhaldi lengur en nauðsyn krefur.

Hver sá sem af öðrum ástæðum en í tengslum við sakamál er sviptur frelsi á rétt á að dómstóll kveði á

um lögmæti þess svo fljótt sem verða má. Reynist frelsissvipting ólögmæt skal hann þegar látinn laus.

Hafi maður verið sviptur frelsi að ósekju skal hann eiga rétt til skaðabóta.

25. gr.

Réttlát málsmeðferð

Öllum ber réttur til að fá úrlausn um réttindi sín og skyldur eða um ákæru á hendur sér um refsiverða

háttsemi með réttlátri málsmeðferð innan hæfilegs tíma fyrir óháðum og óhlutdrægum dómstóli.

Dómþing skal háð í heyranda hljóði nema dómari ákveði annað lögum samkvæmt til að gæta

allsherjarreglu, öryggis ríkisins eða hagsmuna málsaðila og vitna.

Hver sá sem er borinn sökum um refsiverða háttsemi skal talinn saklaus þar til sekt hans hefur verið

sönnuð.

26. gr.

Bann við ómannúðlegri meðferð

Í lögum má aldrei mæla fyrir um dauðarefsingu.

Engan má beita pyndingum né annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu.

Nauðungarvinnu skal engum gert að leysa af hendi.

27. gr.

Bann við afturvirkni refsingar

Engum verður gert að sæta refsingu nema hann hafi gerst sekur um háttsemi sem var refsiverð

samkvæmt lögum þegar hún átti sér stað, eða má fullkomlega jafna til þeirrar háttsemi. Viðurlög

mega ekki verða þyngri en þá voru leyfð í lögum.

28. gr.

Bann við herskyldu

Herskyldu má aldrei í lög leiða.

29. gr.

Menningarverðmæti

Dýrmætar þjóðareignir sem heyra til íslenskum menningararfi, svo sem þjóðminjar og fornhandrit,

má hvorki eyðileggja né afhenda til varanlegrar eignar eða afnota, selja eða veðsetja.

III. KAFLI.

Náttúra og umhverfi

30. gr.

Náttúra Íslands og umhverfi

Náttúra Íslands er undirstaða lífs í landinu. Öllum ber að virða hana og vernda.

Öllum skal með lögum tryggður réttur á heilnæmu umhverfi, fersku vatni, ómenguðu andrúmslofti og

óspilltri náttúru. Í því felst að fjölbreytni lífs og lands sé viðhaldið og náttúruminjar, ósnortin víðerni,

gróður og jarðvegur njóti verndar. Fyrri spjöll skulu bætt eftir föngum.

Nýtingu náttúrugæða skal haga þannig að þau skerðist sem minnst til langframa og réttur

náttúrunnar og komandi kynslóða sé virtur.

Með lögum skal tryggja rétt almennings til að fara um landið í lögmætum tilgangi með virðingu fyrir

náttúru og umhverfi.

31. gr.

Náttúruauðlindir

Auðlindir í náttúru Íslands, sem ekki eru í einkaeigu, eru sameiginleg og ævarandi eign þjóðarinnar.

Enginn getur fengið þær, eða réttindi tengd þeim, til eignar eða varanlegra afnota og því má aldrei

selja þær eða veðsetja.

Til auðlinda í þjóðareign teljast náttúrugæði, svo sem nytjastofnar, aðrar auðlindir hafs og hafsbotns

innan íslenskrar lögsögu, vatns- og virkjunarréttindi og jarðhita- og námaréttindi. Með lögum má

kveða á um þjóðareign á auðlindum undir tiltekinni dýpt frá yfirborði jarðar.

Við nýtingu auðlindanna skal hafa sjálfbæra þróun og almannahag að leiðarljósi.

Stjórnvöld bera, ásamt þeim sem nýta auðlindirnar, ábyrgð á vernd þeirra. Stjórnvöld geta á

grundvelli laga veitt leyfi til afnota eða hagnýtingar þeirra, gegn fullu gjaldi og til tiltekins hóflegs tíma

í senn. Slík leyfi leiða aldrei til eignarréttar eða óafturkallanlegs forræðis yfir auðlindunum.

32. gr.

Upplýsingar um umhverfi og málsaðild

Stjórnvöldum ber að upplýsa almenning um ástand umhverfis og áhrif framkvæmda á það. Stjórnvöld

og aðrir skulu upplýsa um aðsteðjandi náttúruvá, svo sem umhverfismengun.

Með lögum skal tryggja almenningi aðgang að undirbúningi ákvarðana sem hafa áhrif á umhverfi og

náttúru, svo og aðild að tengdum dómsmálum.

Við töku ákvarðana um náttúru Íslands og umhverfi skulu stjórnvöld byggja á lögbundnum

meginreglum umhverfisréttar.

33. gr.

Dýravernd

Með lögum skal kveðið á um vernd dýra gegn illri meðferð og dýrategunda gegn útrýmingu.

IV. KAFLI.

Alþingi

34. gr.

Hlutverk

Alþingi fer með löggjafarvald og fjárstjórnarvald ríkisins og hefur eftirlit með framkvæmdarvaldinu

svo sem nánar er mælt fyrir um í stjórnarskrá þessari og öðrum lögum.

35. gr.

Friðhelgi

Alþingi er friðheilagt. Enginn má raska friði þess né frelsi.

36. gr.

Alþingiskosningar

Á Alþingi eiga sæti 63 þjóðkjörnir þingmenn, kosnir leynilegri kosningu til fjögurra ára.

Atkvæði kjósenda alls staðar á landinu vega jafnt.

Heimilt er að skipta landinu upp í kjördæmi. Þau skulu flest vera átta.

Samtök frambjóðenda bjóða fram lista, kjördæmislista eða landslista eða hvort tveggja.

Frambjóðendur mega bjóða sig fram samtímis á landslista og einum kjördæmislista sömu samtaka.

Kjósandi velur frambjóðendur af kjördæmislista eða landslista sömu samtaka, eða af þeim báðum.

Honum er og heimilt að merkja í stað þess við annan listann og hefur hann þá valið alla

frambjóðendur listans jafnt. Heimilt er að mæla fyrir um í lögum að kjósandi geti valið frambjóðendur

af listum fleiri en einna samtaka.

Þingsætum skal úthluta til samtaka frambjóðenda þannig að hver þeirra fái þingmannatölu í sem

fyllstu samræmi við heildaratkvæðatölu. Þau samtök koma ein til álita við úthlutun þingsæta sem

hlotið hafa minnst fjögur af hundraði af gildum atkvæðum á landinu öllu.

Í lögum skal mælt fyrir um hvernig þingsætum skuli úthlutað til frambjóðenda út frá atkvæðastyrk

þeirra.

Í lögum má mæla fyrir um að tiltekinn fjöldi þingsæta sé bundinn einstökum kjördæmum, þó ekki

fleiri en 30 alls. Tala kjósenda á kjörskrá að baki hverju bundnu sæti skal ekki vera lægri en meðaltalið

miðað við öll þingsætin.

Í kosningalögum skal mælt fyrir um hvernig stuðla skuli að sem jöfnustu hlutfalli kvenna og karla á

Alþingi.

Breytingar á kjördæmamörkum og tilhögun á úthlutun þingsæta, sem fyrir er mælt í lögum, verða

aðeins gerðar með samþykki 2/3 atkvæða á Alþingi.

37. gr.

Kjörtímabil

Reglulegar alþingiskosningar skulu fara fram eigi síðar en við lok kjörtímabils.

Kjörtímabil er fjögur ár.

Upphaf og lok kjörtímabils miðast við sama vikudag í mánuði, talið frá mánaðamótum.

38. gr.

Kosningaréttur

Kosningarétt við kosningar til Alþingis hafa allir sem eru 18 ára eða eldri þegar kosning fer fram og

hafa íslenskan ríkisborgararétt. Lögheimili á Íslandi, þegar kosning fer fram, er einnig skilyrði

kosningaréttar, nema undantekningar frá þeirri reglu verði ákveðnar í lögum um kosningar til

Alþingis.

Nánari reglur um alþingiskosningar skulu settar í kosningalögum.

39. gr.

Kjörgengi

Kjörgengur við kosningar til Alþingis er hver sá ríkisborgari sem kosningarrétt á til þeirra og hefur

óflekkað mannorð.

Hæstaréttardómarar eru þó ekki kjörgengir.

40. gr.

Missir kjörgengis

Glati alþingismaður kjörgengi missir hann þann rétt sem þingkosningin veitti honum. Varamaður

tekur þá sæti hans á þingi.

41. gr.

Gildi kosninga

Alþingi kýs landskjörstjórn til þess að úrskurða um gildi forsetakosningar, kosninga til Alþingis svo og

þjóðaratkvæðagreiðslna.

Landskjörstjórn gefur út kjörbréf forseta og þingmanna og úrskurðar hvort þingmaður hafi misst

kjörgengi. Um störf landskjörstjórnar fer eftir nánari fyrirmælum í lögum.

42. gr.

Starfstími

Alþingi kemur saman eigi síðar en tveimur vikum eftir hverjar alþingiskosningar.

Í lögum skal kveðið á um samkomudag reglulegs Alþingis og skiptingu starfstíma þess í löggjafarþing.

43. gr.

Samkomustaður

Alþingi kemur að jafnaði saman í Reykjavík en getur þó ákveðið að það komi saman á öðrum stað.

44. gr.

Þingsetning

Forseti Íslands stefnir saman Alþingi að loknum alþingiskosningum og setur reglulegt Alþingi ár hvert.

Forseti stefnir einnig saman og setur Alþingi að tillögu forseta þess eða þriðjungs þingmanna.

45. gr.

Eiðstafur

Sérhver nýr þingmaður undirritar eiðstaf að stjórnarskránni er kosning hans hefur verið tekin gild.

46. gr.

Sjálfstæði alþingismanna

Alþingismenn eru eingöngu bundnir við sannfæringu sína, en ekki við nein fyrirmæli frá öðrum.

47. gr.

Friðhelgi alþingismanna

Ekki má setja alþingismann í gæsluvarðhald eða höfða sakamál á hendur honum án samþykkis

þingsins nema hann sé staðinn að glæp.

Alþingismaður verður ekki krafinn reikningsskapar utan þings fyrir það sem hann hefur sagt í þinginu

nema Alþingi leyfi.

Alþingismanni er heimilt að afsala sér friðhelgi.

48. gr.

Hagsmunaskráning og vanhæfi

Alþingismanni er óheimilt að taka þátt í meðferð þingmáls sem varðar sérstaka og verulega hagsmuni

hans eða honum nákominna. Um hæfi þingmanna skal mælt fyrir í lögum. Vanhæfi þingmanns hefur

ekki áhrif á gildi settra laga.

Í lögum skal kveðið á um skyldu þingmanna til að veita upplýsingar um fjárhagslega hagsmuni sína.

49. gr.

Styrkir til frambjóðenda og samtaka þeirra

Upplýsingar um framlög til frambjóðenda sem bjóða fram í almennum kosningum svo og samtaka

þeirra skulu vera aðgengilegar almenningi svo fljótt sem auðið er.

50. gr.

Þingforseti

Alþingi kýs sér forseta með 2/3 hlutum atkvæða í upphafi hvers kjörtímabils. Sitji forseti ekki út

kjörtímabil skal sami háttur hafður á við kosningu nýs forseta.

Forseti stýrir störfum Alþingis. Hann ber ábyrgð á rekstri þingsins og hefur æðsta vald í stjórnsýslu

þess. Með forseta starfa varaforsetar sem eru staðgenglar hans og mynda ásamt honum

forsætisnefnd. Um kosningu þeirra skal mælt fyrir um í lögum.

Forseti Alþingis lætur af almennum þingstörfum og hefur ekki atkvæðisrétt. Varamaður hans tekur

sæti á þingi á meðan hann gegnir embættinu.

51. gr.

Þingsköp

Þingsköp Alþingis skulu sett með lögum.

52. gr.

Þingnefndir

Alþingi kýs fastanefndir til að fjalla um þingmál og sérnefndir eftir því sem við á.

Um störf þingnefnda skal mælt fyrir í lögum.

53. gr.

Opnir fundir

Fundir Alþingis eru haldnir í heyranda hljóði.

Þingnefnd getur ákveðið að fundur hennar sé opinn almenningi.

54. gr.

Flutningur þingmála

Alþingsmenn hafa rétt til að flytja frumvörp til laga, tillögur til ályktana og önnur þingmál.

55. gr.

Meðferð lagafrumvarpa

Frumvörp alþingismanna og ríkisstjórnar eru tekin til athugunar og meðferðar í þingnefndum áður en

þau eru rædd á Alþingi. Sama á við um þingmál að tillögu kjósenda.

Mat á áhrifum lagasetningar skal fylgja frumvörpum samkvæmt nánari ákvæðum í lögum.

Tillögur um vantraust á ríkisstjórn eða ráðherra eru ræddar og afgreiddar við eina umræðu.

Lagafrumvarp má ekki samþykkja fyrr en eftir tvær umræður á Alþingi.

Frumvörp sem hafa ekki hlotið lokaafgreiðslu falla niður við lok kjörtímabils.

56. gr.

Meðferð þingsályktunartillagna

Tillögur ríkisstjórnar eru teknar til athugunar og meðferðar í þingnefndum áður en þær eru ræddar á

Alþingi.

Tillögu til þingsályktunar má ekki samþykkja fyrr en eftir tvær umræður á Alþingi. Sama á við um

heimild til fullgildingar þjóðréttarsamnings sem kallar á breytingu á lögum eða er að öðrum ástæðum

mikilvægur.

Tillögur til þingsályktana sem hafa ekki hlotið lokaafgreiðslu falla niður við lok löggjafarþings.

Tillögur um þingrof eða vantraust á ríkisstjórn eða ráðherra eru ræddar og afgreiddar við eina

umræðu.

Að öðru leyti skal kveðið á um meðferð þingmála í lögum.

57. gr.

Ályktunarbærni

Alþingi getur því aðeins gert samþykkt um mál að meira en helmingur þingmanna sé á fundi og taki

þátt í atkvæðagreiðslu.

58. gr.

Staðfesting laga

Er Alþingi hefur samþykkt lagafrumvarp undirritar forseti Alþingis það og leggur innan tveggja vikna

fyrir forseta Íslands til staðfestingar, og veitir undirskrift hans því lagagildi.

Forseti Íslands getur ákveðið innan viku frá móttöku frumvarps að synja því staðfestingar. Skal sú

ákvörðun vera rökstudd og tilkynnt til forseta Alþingis. Frumvarpið fær þá engu að síður lagagildi, en

bera skal lögin innan þriggja mánaða undir þjóðaratkvæði til samþykktar eða synjunar. Ræður

einfaldur meirihluti hvort lögin halda gildi sínu. Atkvæðagreiðsla fer þó ekki fram felli Alþingi lögin úr

gildi innan fimm daga frá synjun forseta. Um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslu skal að öðru leyti

mælt fyrir í lögum.

Heimild til synjunar á ekki við um fjárlög, fjáraukalög og lög um skattamálefni, lög um ríkisborgararétt

og lög sem sett eru til að framfylgja þjóðréttarskuldbindingum.

59. gr.

Birting laga

Birta skal lög, stjórnvaldsfyrirmæli og þjóðréttarsamninga sem ríkið hefur fullgilt. Lögum og

stjórnvaldsfyrirmælum má aldrei beita með íþyngjandi hætti fyrr en eftir birtingu þeirra. Um

birtingarháttu og gildistöku fer að landslögum.

60. gr.

Lögrétta

Alþingi kýs í Lögréttu fimm menn til fimm ára.

Þingnefnd eða fimmtungur alþingismanna getur óskað eftir áliti Lögréttu um hvort frumvarp til laga

samrýmist stjórnarskrá og þjóðréttarlegum skuldbindingum ríkisins. Ekki má afgreiða frumvarpið fyrr

en álit Lögréttu liggur fyrir.

Um störf Lögréttu skal mælt fyrir í lögum.

61. gr.

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis kannar hvers kyns athafnir og ákvarðanir ráðherra eða

stjórnsýslu þeirra eftir því sem hún telur efni til. Skylt er nefndinni að hefja slíka könnun að kröfu

þriðjungs þingmanna.

62. gr.

Rannsóknarnefndir

Alþingi getur skipað nefndir til að rannsaka mikilvæg mál er almenning varða.

Nánari reglur um hlutverk, rannsóknarheimildir og skipan rannsóknarnefnda skulu settar með lögum.

63. gr.

Málskot til þjóðarinnar

Nú hefur Alþingi samþykkt lagafrumvarp og getur þá þriðjungur þingmanna ákveðið innan þriggja

daga að leggja það undir atkvæði allra kosningabærra manna til samþykktar eða synjunar.

Áður en fimm dagar eru liðnir frá því að slíkt erindi kom fram getur Alþingi samþykkt með meirihluta

atkvæða að frumvarpið verði fellt niður.

Þjóðaratkvæðagreiðslan skal fara fram innan árs frá samþykkt frumvarpsins. Verði frumvarpið

samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu skal það staðfest af forseta Íslands innan þriggja daga og veitir

staðfestingin því lagagildi.

Lög sem Alþingi hefur samþykkt skal bera undir þjóðaratkvæði til samþykkis eða synjunar ef fimmtán

af hundraði kjósenda krefjast þess innan þriggja mánaða frá samþykkt þeirra. Lögin falla úr gildi, ef

samþykkis er synjað, en ella halda þau gildi sínu. Alþingi getur þó með meirihluta atkvæða ákveðið að

fella lögin úr gildi áður en til þjóðaratkvæðis kemur.

64. gr.

Þingmál að frumkvæði kjósenda

Tveir af hundraði kjósenda geta lagt fram þingmál á Alþingi.

Fimmtán af hundraði kjósenda geta lagt frumvarp til laga fyrir Alþingi. Alþingi getur lagt fram

gagntillögu í formi annars frumvarps. Hafi frumvarp kjósenda ekki verið dregið til baka skal bera það

undir þjóðaratkvæði svo og frumvarp Alþingis komi það fram. Alþingi ákveður hvort

þjóðaratkvæðagreiðslan skuli vera bindandi eða ráðgefandi.

Atkvæðagreiðsla um frumvarp að tillögu kjósenda skal fara fram innan tveggja ára frá því málið hefur

verið afhent Alþingi.

65. gr.

Framkvæmd undirskriftasöfnunar og þjóðaratkvæðagreiðslu

Mál sem lagt er í þjóðaratkvæðagreiðslu samkvæmt ákvæðum þessa kafla skal varða almannahag.

Hvorki er hægt að krefjast atkvæðagreiðslu um fjárlög, fjáraukalög, lög sem sett eru til að framfylgja

þjóðréttarskuldbindingum né heldur um skattamálefni og ríkisborgararétt.

Heimilt er að vísa frá málum sem uppfylla ekki ofangreind skilyrði eða eru ekki þingtæk að öðru leyti.

Í lögum skal kveðið á um framkvæmd málskots eða frumkvæðis kjósenda, svo sem um form og

fyrirsvar fyrir kröfunni, tímalengd til söfnunar undirskrifta og um fyrirkomulag þeirra, hverju megi til

kosta við kynningu, hvernig afturkalla megi kröfuna að fengnum viðbrögðum Alþingis svo og um

hvernig haga skuli atkvæðagreiðslu.

66. gr.

Frumvarp til fjárlaga

Fyrir hvert reglulegt Alþingi skal, þegar er það er saman komið, leggja frumvarp til fjárlaga fyrir það

fjárhagsár, sem í hönd fer, og skal í frumvarpinu fólgin greinargerð um tekjur ríkisins og gjöld eftir því

sem nánar er ákveðið í lögum.

67. gr.

Greiðsluheimildir

Enga greiðslu má inna af hendi nema heimild sé til þess í fjárlögum.

Að fengnu samþykki fjárlaganefndar Alþingis getur fjármálaráðherra þó innt greiðslu af hendi án

slíkrar heimildar, til að mæta greiðsluskyldu ríkisins vegna ófyrirséðra atvika eða ef

almannahagsmunir krefjast þess. Leita skal heimildar fyrir slíkum greiðslum í fjáraukalögum.

68. gr.

Réttur fjárlaganefndar til upplýsinga

Fjárlaganefnd Alþingis getur krafið stofnanir ríkisins, ríkisfyrirtæki og þá aðra, sem fá framlög úr

ríkissjóði, um upplýsingar sem tengjast ráðstöfun þess fjár.

69. gr.

Skattar

Skattamálum skal skipað með lögum. Engan skatt má á leggja né breyta né af taka nema með lögum.

Ekki má fela stjórnvöldum ákvörðun um hvort leggja skuli á skatt, breyta honum eða afnema hann.

Enginn skattur verður lagður á nema heimild hafi verið fyrir honum í lögum þegar þau atvik urðu sem

ráða skattskyldu.

70. gr.

Eignir og skuldbindingar ríkisins

Ekki má taka lán eða undirgangast ábyrgðir er skuldbinda ríkið nema með lögum.

Stjórnvöldum er óheimilt að ábyrgjast fjárhagslegar skuldbindingar einkaaðila. Með lögum má þó

kveða á um slíka ríkisábyrgð vegna almannahagsmuna.

Ekki má selja eða láta með öðru móti af hendi fasteignir ríkisins né afnotarétt þeirra nema samkvæmt

heimild í lögum. Um ráðstöfun annarra eigna ríkisins fer að lögum.

71. gr.

Þingrof

Forseti Íslands skal rjúfa Alþingi að ályktun þess. Skal þá efnt til nýrra kosninga eigi fyrr en sex vikum

og eigi síðar en níu vikum frá þingrofi. Alþingismenn halda umboði sínu til kjördags.

72. gr.

Ríkisendurskoðun

Alþingi kýs ríkisendurskoðanda til fimm ára. Hann skal vera sjálfstæður í störfum sínum. Hann

endurskoðar fjárreiður ríkisins, stofnana þess og ríkisfyrirtækja í umboði Alþingis eftir því sem nánar

er mælt fyrir um í lögum.

Endurskoðaðan ríkisreikning næstliðins árs ásamt athugasemdum ríkisendurskoðanda skal leggja fyrir

Alþingi til samþykktar samhliða frumvarpi til fjárlaga.

73. gr.

Umboðsmaður Alþingis

Alþingi kýs umboðsmann Alþingis til fimm ára. Hann skal vera sjálfstæður í störfum sínum. Hann

gætir að rétti borgaranna og hefur eftirlit með stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga. Hann gætir þess að

jafnræði sé í heiðri haft í stjórnsýslunni og að hún fari að öðru leyti fram í samræmi við lög og

vandaða stjórnsýsluhætti.

Ákveði ráðherra eða annað stjórnvald að hlíta ekki sérstökum tilmælum umboðsmanns skal tilkynna

forseta Alþingis um ákvörðunina.

Um starfsemi umboðsmanns og hlutverk hans skal nánar mælt fyrir í lögum, þar á meðal um

þingmeðferð slíkrar tilkynningar ráðherra eða annars stjórnvalds.

V. KAFLI.

Forseti Íslands

74. gr.

Embættisheiti og þjóðkjör

Forseti Íslands er þjóðhöfðingi lýðveldisins. Hann er þjóðkjörinn.

75. gr.

Kjörgengi

Kjörgengur til forseta er sérhver ríkisborgari sem fullnægir skilyrðum um kjörgengi til Alþingis og er

orðinn 35 ára.

76. gr.

Forsetakjör

Forseti er kosinn í leynilegri atkvæðagreiðslu þeirra er kosningarrétt hafa til Alþingis. Forsetaefni skal

hafa meðmæli minnst eins af hundraði kosningarbærra manna og mest tveggja af hundraði.

Kjósendur skulu raða frambjóðendum, einum eða fleirum að eigin vali, í forgangsröð. Sá er best

uppfyllir forgangsröðun kjósenda, eftir nánari ákvæðum í lögum, er rétt kjörinn forseti. Ef aðeins einn

maður er í kjöri, er hann rétt kjörinn án atkvæðagreiðslu. Að öðru leyti skal ákveða með lögum um

framboð og kosningu forseta.

77. gr.

Kjörtímabil

Kjörtímabil forseta hefst 1. ágúst og endar 31. júlí að fjórum árum liðnum. Forsetakjör fer fram í júní-

eða júlímánuði það ár, er kjörtímabil endar. Forseti skal ekki sitja lengur en þrjú kjörtímabil.

78. gr.

Eiðstafur

Forseti Íslands undirritar eiðstaf að stjórnarskránni er hann tekur við störfum.

79. gr.

Starfskjör

Forseta Íslands er óheimilt að hafa með höndum önnur launuð störf á meðan hann gegnir embætti.

Sama gildir um störf í þágu einkafyrirtækja og opinberra stofnana þó ólaunuð séu. Ákveða skal með

lögum greiðslur af ríkisfé til forseta. Óheimilt er að lækka greiðslur þessar til forseta kjörtímabil hans.

80. gr.

Staðgengill

Geti forseti Íslands ekki gegnt störfum um sinn vegna heilsufars eða af öðrum ástæðum fer forseti

Alþingis með forsetavald á meðan.

81. gr.

Fráfall

Falli forseti frá eða láti af störfum áður en kjörtímabili er lokið skal kjósa nýjan forseta til 31. júlí á

fjórða ári frá kosningu.

82. gr.

Ábyrgð

Forseti verður ekki sóttur til refsingar nema með samþykki Alþingis.

Forseta má leysa frá embætti áður en kjörtímabili er lokið, ef það er samþykkt með meirihluta

atkvæða við þjóðaratkvæðagreiðslu sem til er stofnað að kröfu Alþingis, enda hafi hún hlotið fylgi 3/4

hluta þingmanna. Þjóðaratkvæðagreiðslan skal þá fara fram innan tveggja mánaða frá því að krafan

um hana var samþykkt á Alþingi, og gegnir forseti ekki störfum, frá því að Alþingi gerir samþykkt sína,

þar til úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar eru kunn.

83. gr.

Náðun og sakaruppgjöf

Forseti Íslands getur náðað menn og veitt almenna uppgjöf saka að tillögu ráðherra. Ráðherra getur

hann þó ekki leyst undan refsingu, sem dómstólar hafa dæmt vegna ráðherraábyrgðar, nema með

samþykki Alþingis.

VI. KAFLI.

Ráðherrar og ríkisstjórn

84. gr.

Ráðherrar

Ráðherrar eru æðstu handhafar framkvæmdarvalds hver á sínu sviði. Þeir bera hver fyrir sig ábyrgð á

málefnum ráðuneyta og stjórnsýslu sem undir þá heyrir.

Geti ráðherra ekki fjallað um mál vegna vanhæfis, fjarveru eða annarra ástæðna felur

forsætisráðherra það öðrum ráðherra.

Enginn getur gegnt sama ráðherraembætti lengur en 8 ár.

85. gr.

Ríkisstjórn

Ráðherrar sitja í ríkisstjórn. Forsætisráðherra boðar til ríkisstjórnarfunda, stýrir þeim og hefur

yfirumsjón með störfum ráðherra.

Ríkisstjórnarfundi skal halda um frumvörp og tillögur til Alþingis, önnur mikilvæg stjórnarmálefni og

til samráðs um störf og stefnumál ríkisstjórnarinnar. Þá skal halda ríkisstjórnarfund ef ráðherra óskar

þess.

Ríkisstjórn tekur ákvarðanir sameiginlega um mikilvæg eða stefnumarkandi málefni samkvæmt

nánari ákvæðum í lögum. Meirihluti ráðherra þarf að vera á fundi þegar slíkar ákvarðanir eru teknar.

Bóki ráðherra andstöðu við ákvörðun ríkisstjórnar ber hann ekki ábyrgð á henni.

Stjórnarráð Íslands hefur aðsetur í Reykjavík.

86. gr.

Hagsmunaskráning og opinber störf

Ráðherra er óheimilt að hafa með höndum önnur launuð störf á meðan hann gegnir embætti. Sama

gildir um störf í þágu einkafyrirtækja og opinberra stofnana þó ólaunuð séu.

Í lögum skal kveðið á um skyldu ráðherra til að veita upplýsingar um fjárhagslega hagsmuni sína.

87. gr.

Ráðherrar og Alþingi

Ráðherrar mæla fyrir frumvörpum og tillögum frá ríkisstjórn, svara fyrirspurnum og taka þátt í

umræðum á Alþingi eftir því sem þeir eru til kvaddir, en gæta verða þeir þingskapa.

Ráðherrar hafa ekki atkvæðisrétt á Alþingi.

Sé alþingismaður skipaður ráðherra víkur hann úr þingsæti á meðan hann gegnir embættinu og tekur

varamaður þá sæti hans.

88. gr.

Stjórnarmyndun

Alþingi kýs forsætisráðherra.

Eftir að hafa ráðfært sig við þingflokka og þingmenn gerir forseti Íslands tillögu til þingsins um

forsætisráðherra. Er hann rétt kjörinn ef meirihluti þingmanna samþykkir tillöguna. Að öðrum kosti

gerir forseti Íslands nýja tillögu með sama hætti. Verði sú tillaga ekki samþykkt fer fram kosning í

þinginu milli þeirra sem fram eru boðnir af þingmönnum, þingflokkum eða forseta Íslands. Sá er flest

atkvæði hlýtur er rétt kjörinn forsætisráðherra.

Hafi forsætisráðherra ekki verið kjörinn innan tíu vikna skal Alþingi rofið og boðað til nýrra kosninga.

Forsætisráðherra ákveður skipan ráðuneyta og tölu ráðherra og skiptir störfum með þeim, en

ráðherrar skulu ekki vera fleiri en tíu.

Forseti Íslands skipar forsætisráðherra í embætti og veitir honum lausn. Forsætisráðherra skipar aðra

ráðherra og veitir þeim lausn.

Ráðherrar undirrita eiðstaf að stjórnarskránni er þeir taka við embætti.

89. gr.

Vantraust

Leggja má fram á Alþingi tillögu um vantraust á ráðherra. Í tillögu um vantraust á forsætisráðherra

skal felast tillaga um eftirmann hans.

Ráðherra er veitt lausn úr embætti ef tillaga um vantraust á hann er samþykkt. Ríkisstjórn er veitt

lausn ef tillaga um vantraust á forsætisráðherra er samþykkt.

90. gr.

Starfsstjórn

Eftir að forsætisráðherra hefur verið veitt lausn ásamt ríkisstjórn sinni situr hún áfram sem

starfsstjórn uns ný ríkisstjórn er skipuð. Sama gildir ef þing er rofið. Ráðherrar í starfsstjórn taka

aðeins þær ákvarðanir sem nauðsynlegar eru til rækslu starfa þeirra.

91. gr.

Upplýsinga- og sannleiksskylda

Ráðherra er skylt að veita Alþingi eða þingnefnd allar upplýsingar, skjöl og skýrslur um málefni sem

undir hann heyra, nema leynt skuli fara samkvæmt lögum.

Þingmenn eiga rétt á upplýsingum frá ráðherra með því að bera fram fyrirspurn um mál eða óska eftir

skýrslu, samkvæmt nánari fyrirmælum í lögum.

Upplýsingar sem ráðherra veitir Alþingi, nefndum þess og þingmönnum skulu vera réttar, viðeigandi

og fullnægjandi.

92. gr.

Skýrsla ríkisstjórnar til Alþingis

Árlega leggur ríkisstjórn fyrir Alþingi skýrslu um störf sín og framkvæmd ályktana þingsins.

Ráðherra getur gert grein fyrir málefni sem undir hann heyrir með skýrslu til Alþingis.

93. gr.

Ráðherraábyrgð

Ráðherrar bera lagalega ábyrgð á stjórnarframkvæmdum öllum. Ábyrgð vegna embættisbrota þeirra

skal ákveðin með lögum.

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis ákveður, að undangenginni könnun, hvort hefja skuli

rannsókn á meintum embættisbrotum ráðherra. Nefndin skipar saksóknara sem annast rannsóknina.

Hann metur hvort niðurstaða rannsóknarinnar sé nægileg eða líkleg til sakfellingar og gefur þá út

ákæru og sækir málið fyrir dómstólum. Nánar skal kveðið á um rannsókn og meðferð slíkra mála í

lögum

94. gr.

Skipun embættismanna

Ráðherrar og önnur stjórnvöld veita þau embætti er lög mæla.

Með lögum skal koma á skipan sem tryggir að hæfni og málefnaleg sjónarmið ráði við skipun manna í

embætti.

Þegar ráðherra skipar í embætti dómara og ríkissaksóknara skal skipun borin undir forseta Íslands til

staðfestingar. Synji forseti skipun staðfestingar þarf Alþingi að samþykkja skipunina með 2/3 atkvæða

til að hún taki gildi. Ákveða má með lögum að skipun í önnur embætti skuli fara fram með sama

hætti.

Í lögum má kveða á um að í tiltekin embætti megi einungis skipa íslenska ríkisborgara. Krefja má

embættismann um eiðstaf að stjórnarskránni.

VII. KAFLI.

Dómsvald

95. gr.

Skipan dómstóla

Skipan dómstóla, þar á meðal dómstig og fjöldi dómara, skal ákveðin með lögum.

96. gr.

Sjálfstæði dómstóla

Sjálfstæði dómstóla skal tryggt með lögum. Dómstólum verða ekki falin störf sem samkvæmt venju

eða eðli sínu heyra undir aðra valdþætti ríkisins.

97. gr.

Lögsaga dómstóla

Dómstólar skera endanlega úr um réttindi og skyldur að einkarétti, svo og sök um refsiverða háttsemi

og ákveða viðurlög við henni.

Dómstólar skera úr um hvort lög samrýmist stjórnarskrá.

Dómstólar skera úr um hvort stjórnvöld hafi farið að lögum. Hjá ákvörðun stjórnvalds verður ekki

komist í bráð með því að bera lögmæti hennar undir dóm.

98. gr.

Hæstiréttur Íslands

Hæstiréttur Íslands er æðsti dómstóll ríkisins og hefur hann endanlegt vald til að leysa úr öllum

málum sem lögð eru fyrir dómstóla.

Þó má ákveða með lögum að sérstakur dómstóll leysi endanlega úr ágreiningi um kjarasamninga og

lögmæti vinnustöðvana, þó þannig að ákvörðunum hans um refsingu verði skotið til annarra

dómstóla.

99. gr.

Skipun dómara

Dómarar eru þeir sem skipaðir hafa verið ótímabundið í embætti dómara eða settir til að gegna því

um tiltekinn tíma. Til dómstarfa geta dómstólar ráðið eða kvatt aðra eftir því sem mælt er fyrir í

lögum.

Ráðherra skipar dómara og veitir þeim lausn. Dómara verður ekki vikið endanlega úr embætti nema

með dómi, og þá aðeins ef hann hefur glatað hæfi til að gegna embættinu eða sinni ekki skyldum sem

starfanum tengjast.

100. gr.

Sjálfstæði dómara

Dómarar skulu í embættisverkum sínum fara einungis eftir lögum.

101. gr.

Lögspurning til Hæstaréttar

Þingnefnd, þriðjungur þingmanna, eða forseti Íslands, geta vísað til Hæstaréttar að dæma hvort lög,

stjórnarathafnir eða athafnaleysi stjórnvalda samrýmist stjórnarskrá.

102. gr.

Ákæruvald og ríkissaksóknari

Skipan ákæruvaldsins skal ákveðin með lögum.

Ríkissaksóknari er æðsti handhafi ákæruvaldsins. Hann skal í embættisverkum sínum fara einungis

eftir lögum.

Ráðherra skipar ríkissaksóknara og veitir honum lausn. Ríkissaksóknari er sjálfstæður í störfum sínum

og nýtur sömu verndar í starfi og dómarar.

VIII. KAFLI.

Sveitarfélög

103. gr.

Sjálfstæði sveitarfélaga

Sveitarfélög ráða sjálf málefnum sínum eftir því sem lög ákveða.

Sveitarfélög skulu hafa nægilega burði og tekjur til að sinna lögbundnum verkefnum.

Tekjustofnar sveitarfélaga skulu ákveðnir með lögum, svo og réttur þeirra til að ákveða hvort og

hvernig þeir eru nýttir.

104. gr.

Nálægðarregla

Á hendi sveitarfélaga eru þeir þættir opinberrar þjónustu sem best þykir fyrir komið í héraði svo sem

nánar skal kveðið á um í lögum.

105. gr.

Kosning sveitarstjórna og íbúalýðræði

Sveitarfélögum er stjórnað af sveitarstjórnum sem starfa í umboði íbúa og eru kjörnar í almennum,

leynilegum kosningum.

Rétti íbúa sveitarfélags til þess að óska eftir atkvæðagreiðslu um málefni þess skal skipað með lögum.

106. gr.

Samráðsskylda

Samráð skal haft við sveitarstjórnir og samtök þeirra við undirbúning lagasetningar sem varðar

málefni sveitarfélaga.

IX. KAFLI.

Utanríkismál

107. gr.

Meðferð utanríkismála

Utanríkisstefna og almennt fyrirsvar ríkisins er á hendi ráðherra í ríkisstjórn í umboði og undir eftirliti

Alþingis. Forseti Íslands kemur fram fyrir hönd ríkisins sem þjóðhöfðingi í samræmi við þá stefnu.

Ráðherrum er skylt að veita utanríkismálanefnd Alþingis upplýsingar um utanríkis- og varnarmál.

Ráðherra skal hafa samráð við nefndina áður en ákvörðun er tekin um mikilvæg utanríkismál.

Ákvörðun um stuðning við aðgerðir sem fela í sér beitingu vopnavalds, aðrar en þær sem Ísland er

skuldbundið af samkvæmt þjóðarétti, skal háð samþykki Alþingis.

108. gr.

Þjóðréttarsamningar

Ráðherra gerir þjóðréttarsamninga fyrir hönd Íslands. Þó getur hann enga slíka samninga gert, ef þeir

hafa í sér fólgið afsal eða kvaðir á landi, innsævi, landhelgi, efnahagslögsögu eða landgrunni, eða

breytingar á landslögum, eða eru mikilvægir af öðrum ástæðum nema samþykki Alþingis komi til.

109. gr.

Framsal ríkisvalds

Heimilt er að gera þjóðréttarsamninga sem fela í sér framsal ríkisvalds til alþjóðlegra stofnana sem

Ísland á aðild að í þágu friðar og efnahagssamvinnu. Framsal ríkisvalds skal ávallt vera afturkræft.

Með lögum skal afmarka nánar í hverju framsal ríkisvalds samkvæmt þjóðréttarsamningi felst.

Um fullgildingu slíks samnings fer samkvæmt þeim reglum sem við eiga um breytingu á stjórnarskrá

þessari.

110. gr.

Skyldur samkvæmt alþjóðlegum samningum

Öllum handhöfum ríkisvalds ber að virða mannréttindareglur sem bindandi eru fyrir ríkið að

þjóðarétti og tryggja framkvæmd þeirra og virkni eftir því sem samræmist hlutverki þeirra að lögum

og valdmörkum.

Alþingi er heimilt að lögfesta alþjóðlega mannréttindasáttmála og umhverfissamninga og ganga þeir þá framar almennum lögum.

X. KAFLI.

Lokaákvæði

111. gr.

Stjórnarskrárbreytingar

Þegar Alþingi hefur samþykkt frumvarp til breytinga á stjórnarskrá skal það borið undir atkvæði allra kosningabærra manna í landinu til samþykktar eða synjunar. Atkvæðagreiðslan skal fara fram í fyrsta lagi einum mánuði og í síðasta lagi þremur mánuðum eftir samþykkt frumvarpsins á Alþingi.

Hafi fimm sjöttu hlutar þingmanna samþykkt frumvarpið getur Alþingi þó ákveðið að fella þjóðaratkvæðagreiðsluna niður og öðlast þá frumvarpið gildi engu að síður.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Höfundur

Illugi Jökulsson
RSS straumur: RSS straumur

Tímans rás



Hleð...

Eingöngu gamlar fréttir!