Einhvern tíma …
Ekki strax – ekki núna, meðan undrunin, sorgin, reiðin og hryllingurinn ráða enn ríkjum.
En einhvern tíma … þá geta frjálslyndir jafnaðarmenn kannski fundið örlitla huggun í því að öfgamenn á öllum vængjum, og pólitískir vitfirringar, virðast líta á þá sem sína hættulegustu andstæðinga.
Talsmenn frelsis OG samhjálpar.
Umburðarlyndis OG ábyrgðar.
Þjóðlegra gilda OG alþjóðasamvinnu.