Föstudagur 08.03.2013 - 12:14 - FB ummæli ()

Hættu að reyna, Árni Páll

Nú ætlar Árni Páll að „reyna að ná fram auðlindaákvæðinu“ fyrir kosningar. Duglegur strákur, ikke?

En ég þori að veðja hverju sem er að ef hann „reynir það“ þá muni það mistakst hrapallega og Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð fara flissandi heim af þingi.

Nei, í stað þess að „reyna það“, þá legg ég eindregið til að Árni Páll bara „geri það“. Það er skýr meirihluti á þingi fyrir auðlindaákvæðinu, það er mjög stór meirihluti meðal þjóðarinnar fyrir því líka, Árni Páll.

Hættu að hugsa bara um hvað Sjálfstæðisflokknum þóknast. Hættu að „reyna“ – gerðu!

Flokkar: Óflokkað

«
»

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Höfundur

Illugi Jökulsson
RSS straumur: RSS straumur

Tímans rás



Hleð...

Eingöngu gamlar fréttir!