Sunnudagur 16.02.2014 - 13:48 - FB ummæli ()

Vá!

Ég verð að votta Gísla Marteini Baldurssyni ósvikna aðdáun fyrir frammistöðu sína í viðtalinu við Sigmund Davíð Gunnlaugsson.

Ekki aðeins fyrir það hvernig hann reyndi að halda manninum við efnið.

Og náði reyndar að fá frá ráðherranum ýmsar ansi merkilegar fullyrðingar – ég vona að einhver skrifi viðtalið upp svo hægt verði að rannsaka það nákvæmlega.

En einnig og ekki síður fyrir að halda ró sinni þótt forsætisráðherra sýndi þarna slíkan hroka, yfirgang og dónaskap að ég hef aldrei orðið vitni að öðru eins í sjónvarpsviðtali.

Ekki hefði ég að minnsta kosti getað haldið ró minni andspænis þessu.

Maðurinn var algjörlega stjórnlaus.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Höfundur

Illugi Jökulsson
RSS straumur: RSS straumur

Tímans rás



Hleð...

Eingöngu gamlar fréttir!