Þriðjudagur 22.07.2014 - 08:59 - FB ummæli ()

Prófum aðra leið: Slítum stjórnmálasambandi

Undirskriftasöfnunin með áskorun til íslenskra stjórnvalda um að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael hefur farið ótrúlega vel af stað. Frá því síðdegis í gær hafa nærri 3.500 manns skrifað undir.

Ég hvet alla þá sem eru sammála að skrifa undir og dreifa -ég hef engin tök á öðru en svona netsöfnun, en hér er linkinn vonandi að finna.

Ef eitthvað virðist athugavert við linkinn, endilega fara þá fara á Facebook-síðuna mína og finna hann. Textinn sem fylgir undirskriftasöfnuninni er svohljóðandi:

Við undirrituð hvetjum íslensk stjórnvöld til að slíta nú þegar stjórnmálasambandi við Ísrael vegna nýjustu atburða á Gaza.

Jafnvel þótt viðurkenndur sé réttur Ísraels til að snúast til varnar gegn hryðjuverkaárásum þykir okkur augljóst að hernaður Ísraels nú fari langt fram úr því sem eðlilegt getur talist. Með þeim hernaði hafa Ísraelsmenn nú þegar drepið hundruð saklausra óbreyttra borgara. Þar á meðal eru tugir barna.

Framferði Ísraels er ólíðandi, og Ísraelsmenn hafa margoft sýnt að þeir hirða ekkert um ályktanir og fundargerðir. Íslendingar verða að sýna að þeir verða ekki framar þátttakendur í því hálfkáki sem mótmæli gegn hernaðarárásum Ísraels á saklaust fólk eru venjulega.

Hið eina sem hugsanlega gæti sent Ísraelsmönnum nógu sterk skilaboð væri að slíta stjórnmálabandi við þá. Við förum fram á að það verði gert nú þegar.

– – –

Ég veit ekki betur en fundur í utanríkismálanefnd verði um málið á fimmtudag. Það væri gott að geta lagt þessa söfnun fram þar.

Tvær mótbárur gegn slitum á stjórnmálasambandi við Ísrael færði Gunnar Bragi Sveinsson fram í fréttum í gær.

Í fyrsta lagi að einangrun ríkja á alþjóðavettvangi hefði engin áhrif.

Í öðru lagi að betra væri að setjast niður með Ísraelsmönnum og tala við þá til að lýsa hryllingi okkar á framferði þeirra á Gaza (og öðrum hernumdum svæðum).

Hvorug mótbáran er gild.

Í fyrsta lagi hefur einangrun víst haft áhrif. Gott dæmi er Suður-Afríka, þar sem einangrun landsins átti mestan þátt í að hvítir menn gáfust upp á apartheid stefnunni.

Í öðru er orðið sorglega ljóst að það þýðir ekkert að tala við Ísraelsmenn.

Prófum aðra leið – skrifum undir og slítum stjórnmálasambandi við þá.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Höfundur

Illugi Jökulsson
RSS straumur: RSS straumur

Tímans rás



Hleð...

Eingöngu gamlar fréttir!