Þriðjudagur 16.11.2010 - 14:18 - Rita ummæli

Eflum líkamsmynd barna og unglinga

fjolbreytileiki

Margskonar áreiti dynja á börnum og unglingum nú til dags sem hafa slæm áhrif á líkamsmynd þeirra. Þau eru alin upp í samfélagi sem lofar grannan vöxt en lítur fitu neikvæðum augum. Hvert sem litið er eru skilaboðin “vertu grannur!” og lítið tillit tekið til þess að við erum mismunandi vaxin frá náttúrunnar hendi.

Það er mikilvægt að taka afstöðu gegn þessum skilaboðum og ýta undir jákvætt viðmót ungmenna til líkama síns. Samband barns við líkama sinn skiptir miklu fyrir líðan þess og heilsu. Rannsóknir hafa t.d. sýnt að slæm líkamsmynd tengist margvíslegum geðrænum vanda, svo sem átröskunum, þunglyndi og jafnvel sjálfsvígstilraunum meðal ungmenna.

Einnig hefur komið í ljós að líkamsmynd hefur áhrif á heilsu þeirra og lífsvenjur. Unglingar sem hafa jákvætt viðhorf til líkama síns hugsa betur um sig, hreyfa sig meira og þyngjast minna með árunum en þeir sem hafa neikvætt viðhorf til eigin líkama. Það ætti því að vera sjálfsagður hluti af heilsueflingu meðal barna og unglinga að stuðla að jákvæðu sambandi þeirra við líkama sinn, hvort sem þau eru grönn eða feit, og vinna gegn neikvæðum viðhorfum, stríðni og fordómum vegna holdafars.

Hér á eftir fara nokkur góð ráð til þess að efla líkamsmynd barna og unglinga:

1. Allir eru öðruvísi

Kenndu barninu þínu að fjölbreytileiki í líkamsvexti sé eðlilegur. Alveg eins og við erum mismunandi á litinn, höfum ólíkt andlitsfall, hárlit og augnlit, þá erum við líka mismunandi í laginu. Þetta er einföld staðreynd sem þarf að virða.

2. Útrýmum fordómum

Kenndu barninu þínu að það sé ekki rétt að stríða eða tala illa um aðra vegna þess hvernig þeir líta út. Fordómar vegna holdafars og útlits eru jafn slæmir og skaðlegir og aðrir fordómar.

3. Elskaðu líkama þinn

Talaðu jákvætt um líkama þinn og hugsaðu vel um hann. Aldrei tala illa um vaxtarlag þitt svo barnið þitt heyri. Lærðu að þykja vænt um líkama þinn þótt hann sé ekki fullkominn og þannig lærir barnið þitt að bera virðingu fyrir sínum líkama. Vertu góð fyrirmynd.

4. Hafnaðu megrunarmenningunni

Hugsaðu þig tvisvar um áður en þú kaupir tískublöð eða tímarit sem innihalda megrunarboðskap. Ræddu opinskátt um óraunhæf útlitsviðmið í samfélaginu og bentu á að allir séu jafnir óháð líkamsvexti. Storkaðu fordómum vegna holdafars hvenær sem þú rekst á þá og skapaðu andrúmsloft mannúðar og virðingar fyrir öllu fólki.

5. Kenndu barninu þínu að líkami þess sé góður líkami

Líkamsmyndin er hluti af sjálfsmynd okkar. Kenndu barninu þínu að vera stolt af sínum sérkennum. Aldrei segja neitt neikvætt um líkama barnsins og taktu hart á því ef einhver annar gerir það. Samband barnsins við líkama sinn er heilagt.

6. Hlustaðu á barnið þitt

Ef barnið lýsir áhyggjum af líkamsvexti sínum er mikilvægt að hlusta. Reyndu að komast að því hvað býr þarna að baki. Varð barnið fyrir neikvæðri reynslu nýlega? Hefur það séð eða heyrt eitthvað sem fékk það til að skammast sín fyrir líkama sinn? Sýndu barninu stuðning og ekki líta svo á að holdafar þess eða útlit sé vandamálið. Ef barnið hefur fengið neikvæð skilaboð eða höfnun vegna þess hvernig það lítur út þá er vandamálið í umhverfinu, ekki hjá barninu, og ber að taka á því í samræmi við það.

7. Hegðun en ekki holdafar

Ef þú hefur áhyggjur af lífsvenjum barnsins þíns skaltu einbeita þér að hegðun þess en ekki holdafari. Skapaðu umhverfi þar sem barnið fær næg tækifæri til að borða hollan mat og hreyfa sig sér til ánægju, hvíla sig, sofa nóg og líða vel en ekki setja þrýsting á barnið og alls ekki hvetja það til að grennast. Hvorki þú né barnið ættuð að líta á heilbrigðar lífsvenjur sem aðferð til að grennast, heldur eitthvað sem allir þurfa að gera til þess að líða vel og halda heilsu. Það skiptir mestu að upplifun barnsins verði jákvæð þannig að það hafi áhuga á því að lifa heilbrigðu lífi til langframa.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af fjórum og fjórum? Svar:

Höfundur

Líkamsvirðing er vettvangur þeirra sem vilja breytt samfélagsviðhorf varðandi útlit, heilsu og holdafar. Við viljum efla heilbrigði í víðum skilningi, vellíðan og virðingu fyrir fjölbreyttum líkamsvexti. likamsvirding@gmail.com