Færslur fyrir mars, 2012

Laugardagur 31.03 2012 - 13:33

Meira myrkur!

Gott tækifæri í kvöld til að átta sig á myrkurgæðum og ljósmengun, stjörnuhimni og orkusóun – nú á að slökkva á jörðinni eina klukkustund, milli 20.30 og 21.30 meðan líður „stund jarðar“ – earth hour / jordens time / l’heure de la terre … um allan heim. Borgin ætlar að slökkva á flestum götuljósum – sem vonandi […]

Föstudagur 30.03 2012 - 15:14

„Nasty Party“

Sjálfstæðisflokknum tókst í gærkvöldið að koma í veg fyrir að umræðan um þjóðaratkvæðagreiðsluna kláraðist á réttum tíma. Engum kom á óvart að það gæti tekist, með málþófi þennan eina dag sem var til stefnu – spurningin var bara hvort þeir hefðu lyst á því að beita þessum brögðum gegn jafn-sjálfsögðum áformum, eða tækju kannski þátt […]

Þriðjudagur 27.03 2012 - 12:19

Púertó Ríkó!

Sannarlega fróðlegt að heyra í Norðmönnum á fundi utanríkismálanefndar að segja frá stóru skýrslunni um reynslua af aðild Noregs að EES – núna í maí verða liðnir heilir tveir áratugir síðan samningarnir um Efnahagssvæði Evrópu voru undirritaðir í Óportó (sjá JBH hér í góðum hópi!) og þessir samningar hafa sannarlega reynst vel þeim þjóðum sem […]

Sunnudagur 11.03 2012 - 10:02

Ekkert hægt að gera

Elítuvitnin í Þjóðmenningarhúsinu segja frá því með hryggðarsvip að ekkert hafi verið hægt að gera sirka eftir 2006. Þar með sé fráleitt að Geir Hilmar Haarde hafi brugðist ráðherraskyldum sínum. Og þarmeð séu þau sjálf, hvert og eitt, laus undan ábyrgð, að minnsta kosti eftir 2006 (nema aumingja Baldur …). Af því nokkur þessara vitna […]

Miðvikudagur 07.03 2012 - 18:06

Ábyrgð

Auðvitað er gaman að vita hverjir mæta í Þjóðmenningarhúsið, og sjá fræga fólkið ganga inn og út í allskonar nýjum fötum, og sjá hvað sumir verða vandræðalegir að svara spurningum – og óvenjuskemmtilegir brandarar hjá Davíð um tengda aðila og bankastjórana sem tóku fimm milljarða fyrir að segja góðan daginn (Seðlabankastjórinn hefur vonandi fengið að […]

Þriðjudagur 06.03 2012 - 07:51

Eftir á að hyggja …

Það sem heyrist af málinu gegn Geir H. Haarde gegnum luktar dyr – á þessari öld er varla hægt að kalla þetta annað – er aðallega: Nei, ég heyrði ekki, ég sá ekki, ég vissi ekki. Ég var bara forsætisráðherra. Það er dómaranna að kveða upp úrskurð – en satt að segja var píslarvættisáran kringum Geir […]

Höfundur

Mörður Árnason
sjálfstætt-starfandi íslenskufræðingur og stjórnmálamaður. Netfang: mordurarna@gmail.com. Vinir velkomnir á Fb.:
www.facebook.com/mordurarna.
RSS straumur: RSS straumur