Færslur fyrir febrúar, 2014

Fimmtudagur 27.02 2014 - 13:04

Styrkur Bjarna Benediktssonar

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármála- og efnahagsráðherra, hefur staðið í ströngu að undanförnu. Honum hefur þó tekist að sýna með mjög sannferðugum hætti að það sé rétt af Sjálfstæðisflokknum, og eina rétta leiðin, að hætta þessum aðlögunarviðræðum formlega. Öðruvísi geta þingmenn ekki snúið sér að þarfari verkefnum og öðruvísi getur þjóðin ekki snúið sér […]

Miðvikudagur 26.02 2014 - 13:20

Undanhald VG

Það er brostinn á flótti í liði þeirra sem hafa viljað toga okkur Íslendinga að og inn í ESB. Nýjasta dæmið um þetta er breytt afstaða Vinstri grænna sem fram kemur í þeirri ályktun sem þau lögðu fyrir Alþingi í gær. Nú vilja Vinstri græn gera hlé á aðildarviðræðum og jafnframt ekki taka þær aftur […]

Mánudagur 24.02 2014 - 11:15

Afturköllun umsóknar er hið eina rétta í stöðunni

Bjarni Benediktsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og flokkar þeirra hafa sýnt mikinn styrk með því að taka ákveðið og örugglega á ESB-málinu. Umsóknin verður afturkölluð.  Það er það eina rétta í stöðunni miðað við vilja þjóðarinnar gagnvart inngöngu og stefnu stjórnarflokkanna sem nýtur mikils meirihlutastuðnings. Það eru nokkur atriði sem skipta miklu í þessu máli: Meirihlutavilji […]

Fimmtudagur 20.02 2014 - 10:44

Fölsk umsókn, ábyrgðarleysi að halda áfram

Í umræðum á Alþingi í gær um aðlögunarferlið að ESB kom fram að umsóknin að ESB hafi verið á fölskum forsendum. ESB ætlast til þess að þau stjórnvöld sem sækja um aðild vilji gerast aðilar. Svo hafi ekki verið því Vinstri græn í ríkisstjórn voru á móti aðild og Samfylkingin vildi bara kíkja í pakkann. […]

Miðvikudagur 19.02 2014 - 08:40

Árni Páll les ekki rétt

Árni Páll Árnason hélt því fram, ranglega,  í samtali við Heimi Karlsson á Bylgjunni rétt í þessu að í gjaldmiðlaskýrslu Seðlabankans frá haustinu 2012 væri bent á eina lausn í gjaldmiðlamálum. Þetta er ekki rétt hjá Árna Páli. Nægir í því sambandi að benda á lokaorð seðlabankastjóra í fyrsta kafla skýrslunnar. Þar segir hann á síðu […]

Þriðjudagur 18.02 2014 - 19:18

Umsóknin verður afturkölluð

Fram kom í Bylgjufréttum rétt í þessu að tillaga um afturköllun umsóknar að ESB muni verða lögð fram á Alþingi á næstu dögum. Fyrri ríkisstjórn hafði allt síðasta kjörtímabil til að koma Íslandi inn í ESB en mistókst það, enda fór hún í verkið á fölskum forsendum. Össur, Jóhanna, Árni Páll, Baldur Þórhallsson og fleiri […]

Þriðjudagur 18.02 2014 - 17:25

Evrusvæðið ekki hagkvæmt segir ESB-skýrslan

Í skýrslu Hagfræðistofnunar um ESB-málin kemur fram að evrusvæðið uppfyllir á engan hátt þau skilyrði sem gera þarf til myntsvæðis. Í skýrslunni kemur fram að vegna menningaráhrifa flytjist fólk af atvinnuleysissvæðum ekki til þeirra svæða þar sem atvinnu er að fá. Í þessum efnum er reginmunur á Evrópu og Bandaríkjunum eða Kanada. Þetta er eitt þeirra […]

Þriðjudagur 18.02 2014 - 09:50

Afturköllum umsóknina að ESB

Það var áfangasigur að aðlögunarviðræðurnar við ESB voru stöðvaðar. Samtökin Nei við ESB efna til baráttufunda til að fylgja því eftir að umsóknin verði endanlega afturkölluð. Næstu mánuðir geta skorið úr um hvort ríkisstjórn og Alþingi geri það eina sem réttast er – afturkalla umsóknina. Öllum er nú fullljóst að ESB veitir engar varanlegar undanþágur […]

Mánudagur 17.02 2014 - 18:37

Svona verður skýrslan um ESB

Nú er komið að því. Skýrsla með úttekt um stöðu aðildarviðræðna við Evrópusambandið og þróun þess verður birt á morgun. Þá  fáum við vita nánar um Evrópusamrunann og þróun ESB í átt til sambandsríkis. Jafnframt fáum við að vita nánar um bág kjör ungs fólks, kvenna og fólks á jaðarsvæðunum. Skýrslan verður lögð fram á […]

Mánudagur 03.02 2014 - 16:05

Það er eðlilegt að Alþingi afturkalli nú umsóknina að ESB

Í ljósi þeirrar þróunar sem átti sér stað allt síðasta kjörtímabil, þegar þáverandi stjórn klúðraði því tækifæri sem hún hafði á að koma Íslandi inn í ESB, og í ljósi síðustu kosninga og núverandi stjórnarsamstarfs er alveg ljóst að það er sjálfsögð og eðlileg krafa að stjórnarflokkarnir ljúki ferlinu formlega með því að draga umsóknina […]

Höfundur

Nei við ESB - vefrit
Þau samtök sem standa að Nei við ESB eru Heimssýn, hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, Ísafold, félag ungs fólks gegn ESB-aðild, Herjan, félag stúdenta í H.Í. gegn aðild að ESB, Vinstrivaktin gegn ESB og Þjóðráð.

Slóðin að vefnum Nei við ESB er www.neiesb.is

Ábyrgðarmaður er Jón Bjarnason.
RSS straumur: RSS straumur