Miðvikudagur 28.01.2009 - 00:38 - 1 ummæli

Vantar okkur hryðjuverkalög?

Hvernig væri að við kæmum okkur upp hryðjuverkalögum til að geta komið lögum yfir þá menn sem áttu bankana gömlu? Sú hugsun kemur æ oftar upp í huga mér hvort það séu kannski einu lögin sem geta náð yfir starfsemi þeirra.

Nánast daglega berast fréttir af ótrúlegum æfingum þessara manna. Og flutning peninga í reiðufé til eyja hingað og þangað á meðan bankarnir sáu fram á peningaþurð. Kannski áttu Bretar ekki annarra kosta völ…

Hitt er allavega alveg ljóst að rekstur þeirra og aðferðir hafa skilið landið eftir eins og við höfum orðið fyrir hryðjuverkaárás.

Röggi.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (1)

  • Anonymous

    Allar siðmenntaðar þjóðir eru með lög um kyrrsetningu eigna – nema við.Þetta eru auðvitað ekkert annað en hryðjuverk sem þessir auðmenn hafa stundað – og það ættu að vera til staðar sérstök hryðjuverkalög sem næðu til þeirra.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af sjö og þremur? Svar:

Höfundur

Rögnvaldur Hreiðarsson
Nánar um höfundinn......Hann er faðir og afi. hann er rakari og hann elskar golf og dæmir körfubolta ef hann er ekki úti að hjóla. Maðurinn hefur skoðanir á flestu og hefur á stundum þörf til þess að koma þeim á framfæri. Hann er kristinnar trúar, hvítasunnumaður, og lætur það skipta miklu máli..

Og hann er allskonar auðvitað....
RSS straumur: RSS straumur