Færslur fyrir febrúar, 2009

Föstudagur 27.02 2009 - 16:53

Björgvin G talar…

Björgvin G upplýsir nú hvernig raunveruleg staða bankanna var þegar sú ákvörðun var tekin að taka Glitni yfir. Þetta er smart hjá honum og staðfestir enn einu sinni að seðlabankinn og ríkisstjórnin voru að gera góða hluti þessa örlagaríku daga. Kannski alger tilviljun að Björgvin kemur þessu frá sér um leið og Davíð er farinn […]

Miðvikudagur 25.02 2009 - 08:28

Hvað sagði Davíð?

það má nánast heyra saumnál detta þennan morgun á bloggi okkar eyjufólks. Fólk sem hefur hamast á Davíð, sumt árum saman, virðist ekki vera búið að melta það sem hann var að segja í gær. Ég held að margir trúi því sem hann sagði. Ekkert af þvi sem hann hafði fram að færa var hrakið […]

Þriðjudagur 24.02 2009 - 11:02

Össur ruglar….

Félagi Össur heldur áfram að vera skemmtilegur mjög. Og taktískur reynir hann líka að vera. Bæði hann og Jóhanna reyna nú að koma því á Sjálfstæðisflokkinn að ekki tekst að koma frumvarpinu um seðlabankann í gegnum viðskiptanefnd. Á meðan Össur telur ekkert óeðlilegt við að Höskuldur stöðvi afgreiðslu málsins skammast hann í Sjálfstæðsiflokknum. Þarna er […]

Mánudagur 23.02 2009 - 16:10

Stjórnin á bláþræði.

Þeir verða varla margir dagarnir enn í lífi þessarar ríkisstjórnar sem nú situr. Þreytan nú þegar orðin yfirþyrmandi og samstarfið við Framsókn lamað. Þriggja flokka stjórnir hafa aldrei virkað og það breytist ekki þó einn flokkurinn vilji ekki hafa nein ráðuneyti. Framsókn hefur lært það á undraskömmum tíma að Samfylkingu er ekki treystandi. Myndun þessarar […]

Fimmtudagur 19.02 2009 - 09:07

Fréttamat stöðvar 2.

það er kannski að æra óstöðugan að vera að skrifa einn ganginn enn um fréttastofu Óskars Hrafns á stöð 2. Læt sama slag standa. Fréttamat Óskars kom berlega í ljós í gærkvöldi. Þá var það það fyrsta og stærsta sem honum datt í hug að skipti þjóðina máli núna, fíkniefnakaup tónlistarmanns sem er hvorki ákærður […]

Mánudagur 16.02 2009 - 20:01

Ráðherraábyrgð Jóhönnu.

það er að sönnu vandlifað. Jóhanna Sigurðardóttir sýndist mér vera í talsverðum vandræðum með Helga Seljan fréttamann í sjónvarpinu mínu í kvöld. Hann var nefnilega að ræða við hana dóm héraðsdóms um að forsætisráðherra hafi brotið stjórnsýslulög. Jóhanna var þurr í munni og vandræðaleg þegar hún reyndi að sannfæra fréttamanninn um að málsbætur hennar væru […]

Föstudagur 13.02 2009 - 13:23

Nú þarf frið um seðlabankann.

Ég er bara þannig gerður að þola illa ofbeldi jafnvel þó það klæðist góðum málsstað blönduðum saman við pólitík. Ekki veit ég hvaðan fólkið sem nú hamast fyrir utan seðlabankann fékk umboð til þess að ákveða hver fer þar inn eða út. Forsprakkinn birtist svo eins og barn í kúrekaleik og segist ætla að koma […]

Fimmtudagur 12.02 2009 - 15:22

Hvað er að vera óstjórntækur?

það fór þó aldrei svo að félagi Össur rumskaði ekki. Hann hefur verið upptekinn við oliuborun og mjúk mál allt frá þvi að kreppan skall á. Allir draumar hans um leiðtogastöðu flokksins nú fyrir bí enda ekkert gaman lengur. Hann er oft klókur hann Össur en kann ekki vel að dylja það þegar honum lýst […]

Miðvikudagur 11.02 2009 - 10:26

Vanhæf ríkisstjórn.

Sem betur fer er nýju ríkisstjórninni ekki ætlaður langur líftími. Flumbrugangur og tilviljanakennd ummæli og aðgerðir eru nánast daglegt brauð. Stóryrt stjórnarandstaðan innblásin af mótmælum situr nú í stjórn til hálfs og rúmlega það og vinnur verkin sem aðrir voru búnir að skipuleggja og ákveða. Steingrímur mun ekki i annan tíma hafa þurft að kokgleypa […]

Mánudagur 09.02 2009 - 09:37

Ætlaði Jóhanna ekki að reka manninn?

Hvurslags rugl er á Jóhönnu forsætisráðherra? Ætlaði hún ekki að reka Davíð úr bankanum? Nú læðist hún um eins og kéttlingur og sendir bréf og fer fram á að hann reki sig sjálfur. Meðferð hennar á þessu máli er í hlægileg. Þetta er allt leikur. Hún er að reyna að mjólka vinsældir út á óvinsældir […]

Höfundur

Rögnvaldur Hreiðarsson
Nánar um höfundinn......Hann er faðir og afi. hann er rakari og hann elskar golf og dæmir körfubolta ef hann er ekki úti að hjóla. Maðurinn hefur skoðanir á flestu og hefur á stundum þörf til þess að koma þeim á framfæri. Hann er kristinnar trúar, hvítasunnumaður, og lætur það skipta miklu máli..

Og hann er allskonar auðvitað....
RSS straumur: RSS straumur