Miðvikudagur 21.04.2010 - 10:44 - 5 ummæli

Góði dátnn Jón Ásgeir

það eru ótrúlegar fréttir að hellast yfir þessa dagana. Einhver maður sem heitir Jón Ásgeir er víst bara bölvaður svikahrappur. Skatturinn ætlar að frysta eigur hans og þingnefnd hefur komist að því að hann er mesti bankaþrjótur sögunnar.

Hann hefur víst sett öll fyrirtæki sem hann hefur komið nálægt svo ótrúlega hraustlega á hausinn að annað eins hefur ekki sést. Grunur leikur á að hann sjálfur hafi hagnast gríðarlega á öllu saman.

þetta er mikil tíðindi því þessi maður hefur víst þurft að þola einelti árum saman af hendi vondra manna. Var meira að segja kallaður götustrákur einu sinni. þetta hljóta því að vera mistök eða misskilningur…

..vegna þess að þessi góði drengur er við það að kaupa Haga aftur fyrir slikk og konan hans ásamt nokkrum þöglum eigendum hefur að sögn önglað saman 1 000 milljónum svo hann geti átt fjölmiðlana sína áfram.

Ekki eru menn að greiða götu hans í dag ef þetta allt er rétt. Er það nokkuð? Hver stjórnar þessu eiginlega?

Röggi

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (5)

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af einum og sjö? Svar:

Höfundur

Rögnvaldur Hreiðarsson
Nánar um höfundinn......Hann er faðir og afi. hann er rakari og hann elskar golf og dæmir körfubolta ef hann er ekki úti að hjóla. Maðurinn hefur skoðanir á flestu og hefur á stundum þörf til þess að koma þeim á framfæri. Hann er kristinnar trúar, hvítasunnumaður, og lætur það skipta miklu máli..

Og hann er allskonar auðvitað....
RSS straumur: RSS straumur