Innköllum kvótann,
Hver sveik það risastóra loforð? Og hverjir mótmæltu því ekki……?
Stjórnmálin í kring um ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að slíta viðræðum við ESB er ósköp venjuleg gamaldags íslensk pólitík. Pólitík sem snýst ekkert sérstaklega um ást manna á lýðræðislegum rétti fólks til að tjá sig í þjóðaratkvæðagreiðslum,
Frekar prinsippin um það hvað mér finnst best og hagstæðast akkúrat núna,
Kannski bakkar ríkisstjórnin með málið og finnur þannig skemmtilegt frumkvæði og hlustar á það sem hún heyrir,
Það væri nýtt og styrkur frekar en veikleiki,
Og hugsanlega leið til að snúa knappri vörn í sókn,
Röggi
Alveg rétt en 20% kosningabærra manna eru búinn að skrifa undir áskorun. Ef að þessi ríkistjórn gerir það sama og fráfarandi ríkistjórn með Icesave þ.e.a.s hlustar ekki a fólkið er hún dauðadæmd.