Færslur fyrir nóvember, 2013

Föstudagur 29.11 2013 - 15:20

Páfinn í Róm varar við frjálshyggju

  Francis páfi hefur nýlega sent frá sér mikilvæga hugvekju í bók sem hann kallar Gleðiboðskap guðspjallanna (The Joy of the Gospel). Þar ítrekar páfinn þá sýn sem hann vill að kirkjan standi fyrir. Í bókinni er auðvitað klassískur boðskapur kristinnar kirkju um kærleika, hjálpræði, réttlæti og samstöðu með þeim sem minna mega sín. Góðmennska […]

Fimmtudagur 28.11 2013 - 22:57

Skuldir ríkja – Ísland í sjötta sæti í Evrópu

Um daginn skrifaði ég um það hvernig Evrópuríkin juku skuldir hins opinbera í kreppunni. Írland átti metið, en Ísland var í öðru sæti. Hér að neðan má sjá hver skuldastaða evrópskra ríkja var í lok árs 2012. Heildarskuldir hins opinbera sem % af landsframleiðslu, árið 2012 ((heildarskuldir ríkisins og sveitarfélaga – Heimild: Eurostat)   Ísland er […]

Miðvikudagur 27.11 2013 - 12:12

Svona sigldu Ísland og Írland að hruni

Á morgun fjalla seðlabankamenn Íslands og Írlands um lærdóma af fjármálakreppu landanna. Það verður fróðlegt. Þetta eru þau tvö vestrænu lönd sem sigldu sér inn í stærstu braskbólur sögunnar á árunum fram að kreppu. Þegar bólan sprakk varð fallið því stórt hjá báðum þjóðum. Þetta kom fram í gríðarlegri skuldasöfnun beggja þjóðarbúa á bóluárunum. Erlendar […]

Mánudagur 25.11 2013 - 23:26

Hvaða ríki juku skuldir mest í kreppunni?

Alvanalegt er að skuldir hins opinbera aukast mikið í fjármálakreppum. Það sýna rannsóknir. Almennt mátti búast við að þau ríki  sem verst héldu á málum sínum á bóluárunum í aðdraganda fjármálakreppunnar myndu enda uppi með mesta skuldaaukningu. Ísland og Írland voru með stærstu bóluhagkerfin. Þar var ofþenslan mest í aðdraganda kreppunnar og fallið hæst. Þess […]

Sunnudagur 24.11 2013 - 23:06

Frá Eimreiðinni til öfgastefnu Ayn Rand

Íslenskir frjálshyggjumenn, sem lengi hafa lotið forystu Hannesar Hólmsteins og Eimreiðarhóps Sjálfstæðisflokksins, neita að draga nokkurn lærdóm af hruninu og hlut frjálshyggjunnar í aðdraganda þess. Í staðinn brýna þeir sverð og auka róttækni boðskapar síns. Kjörorðið er væntanlega “sókn er besta vörnin”! Auk þess að vera mikilvirkir í endurskrift sögunnar, þar sem bæði frjálshyggjan og […]

Föstudagur 22.11 2013 - 21:03

Styrmir svaf á vaktinni

Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, var lengi helsti stjórnmálagreinandi landsins, í krafti stöðu sinnar. Hann lagði línur fyrir flokkinn og sagði almenningi hvað væri rétt og rangt – og einkum að öllum væri hollast að lúta forystu Sjálfstæðisflokksins í einu og öllu. Nú gætir mikils óþols hjá Styrmi vegna slæmrar stöðu Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Nýliðið […]

Föstudagur 22.11 2013 - 10:11

Dagur er risinn

Hún er athyglisverð nýjasta könnunin á fylgi flokka í Reykjavík (hér). Björt framtíð, sem verður vettvangur þess sem eftir lifir af Besta flokknum, er með mest fylgi. Síðan koma Sjálfstæðisflokkur og Samfylking. En þegar spurt er hvern fólk vilji helst fá sem næsta borgarstjóra er Dagur B. Eggertsson með yfirburði. Um þriðjungur kjósenda styður Dag. […]

Fimmtudagur 21.11 2013 - 17:07

Djarfur áróður SA gegn kauphækkun

Samtök atvinnulífsins og fleiri hafa barist gegn alvöru kauphækkunum til almennings á síðustu misserum. Þau vilja festa Íslendinga í láglaunafari kreppunnar. Þetta hefur ítrekað komið fram og nú síðast í rándýru áróðursmyndbandi, sem fer fram með ævintýraleg ósannindi um kaupmáttarþróun á Íslandi á síðustu sjö árum. Þar er t.d. sagt að 2% kauphækkun muni bæta […]

Fimmtudagur 21.11 2013 - 14:01

Leiguíbúðir: Dögun í Reykjavík?

Það er athyglisvert að lesa um nýja áætlun Reykjavíkurborgar um mikla fjölgun leiguíbúða á viðráðanlegu verði á næstu misserum (sjá hér). Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, fer fyrir verkefninu, sem sækir fyrirmyndir til hinna Norðurlandanna. Dagur hefur komið að hverju góðu verkefninu á fætur öðru á síðustu misserum. Hann lætur verkin tala. Hugmyndin felur í […]

Miðvikudagur 20.11 2013 - 10:37

Hví er svo mikil andstaða við skuldalækkun?

Það er talsvert undrunarefni hversu mikil andstaða er gegn lækkun skulda heimilanna, bæði meðal stjórnarandstöðufólks og í Sjálfstæðisflokknum. Fólk sem ætti að fagna öllum möguleikum á lækkun skulda heimilanna fer stundum offari í gagnrýni sinni á hugmynd Framsóknar. Ég veit ekki hver útfærslan verður, né hvort hún gengur upp. En ef það tekst að fjármagna […]

Höfundur

Stefán Ólafsson
Ég er prófessor við Háskóla Íslands. Blogga hér til að miðla upplýsingum og taka afstöðu til málefna. Er óflokksbundinn og óháður öllum samtökum.

Helsta áhugamál utan vinnu er listræn
ljósmyndun. Hér er gallerí mitt á netinu:

Nýrra ljósmyndagallerí á 500px

Reykvískar impressjónir – Ljósmyndagallerí

Rökræður við Milton Friedman

Samræður við Egil um ójöfnuð og þjóðmál

Nýrri samræður við Egil Helgason um Ójöfnuð á Íslandi

Ný bók: Ójöfnuður á Íslandi
RSS straumur: RSS straumur

Færslusafn

Fyrri pistlar