Færslur fyrir mars, 2016

Miðvikudagur 30.03 2016 - 11:17

Hve mikið eiga Íslendingar í skattaskjólum?

Umræðan um eignir Íslendinga í skattaskjólum er að aukast með nýjum upplýsingum um málið. Hún nær væntanlega hámarki þegar Jóhannes Kristjánsson og samstarfsfólk hans birta lista yfir efnaða Íslendinga sem vista eignir í erlendum skattaskjólum. Það ætti þó auðvitað ekki að koma neinum á óvart að íslenskt efnafólk eigi miklar eignir í erlendum skattaskjólum. Íslensku […]

Þriðjudagur 29.03 2016 - 11:42

Gunnar Þórðarson – okkar besti maður

Mikið var gaman að horfa á afmælistónleika Gunnars Þórðarsonar á RÚV í gærkveld. Ég missti því miður af tónleikunum í Hörpu á sínum tíma og beið því spenntur. Það er raunar óhjákvæmilegt að tónleikar þar sem flutt er yfirlit um lög Gunna Þórðar verði góðir, því af slíku perlusafni er að taka. Og það gekk eftir. Frábær […]

Þriðjudagur 22.03 2016 - 14:02

Kári með drottningarstæla

Það er fyndið þegar Kári Stefánsson segir RÚV vera með drottningarstæla. Staðreyndin er nefnilega sú, að það er hann sjálfur sem öðrum fremur er með drottningarstæla! RÚV bauð honum að vera á pallborði á áhugaverðum borgarafundi um heilbrigðismál í Háskólabíói í kvöld – sem einnig verður í beinni útsendingu. Auðvitað hefði Kári átt að vera […]

Sunnudagur 20.03 2016 - 09:12

Gistináttagjald er besta leiðin

Ég tek undir með Jónasi Kristjánssyni þegar hann mælir með gistináttagjaldi og hertri innheimtu á virðisaukaskatti, til að fjármagna umbætur fyrir ferðaþjónustuna. Aðgerðaleysi ráðherra ferðamála er orðið ámælisvert. Eftir að hinni afleitu hugmynd hennar um náttúrupassa var hafnað þá hefur hún ekkert gert í málinu. Á meðan hefur þörfin hlaðist upp. Ferðaþjónustan rekst áfram á […]

Föstudagur 18.03 2016 - 14:10

Heppilegur bakgrunnur forseta?

Það hefur vakið nokkra athygli að Halla Tómasdóttir, fjárfestir og fyrrverandi framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs (2006-2007), hefur ákveðið að bjóða sig fram í forsetakjörinu í júní. Útaf fyrir sig er ekkert að því að Halla Tómasdóttir bjóði sig fram. Hún virðist hæf og geðþekk kona. Það varpar þó óneitanlega skugga á framboð hennar að hún var virkur […]

Laugardagur 12.03 2016 - 15:27

Sýnum þeim hvað samkeppni er

Tryggingafélögin hafa nú látið undan þrýstingi frá almenningi, vegna víðtækrar óánægju með framferði þeirra í iðgjalda og arðgreiðslumálum. Þau ætla að lækka arðgreiðslurnar. En þau ætla ekki að láta viðskiptavini njóta breyttra reglna ESB um bótasjóði né góðrar afkomu af ávöxtun þeirra. Það ætla þau að hafa alfarið áfram fyrir eigendur. Líka ofteknu iðgjöldin. Tryggingafélögin hafa […]

Mánudagur 07.03 2016 - 11:06

Tryggingar: Séríslensk sjálftökuleið?

Það vakti athygli um daginn þegar upplýst var að stærstu íslensku tryggingafélögin greiddu eigendum sínum arð langt umfram hagnað síðasta árs – sem var þó veglegur. Enn meiri athygli vakti þegar rifjað var upp að öll tryggingafélögin höfðu hækkað iðgjöld viðskiptavina sinna fyrir jólin, “vegna lélegrar afkomu” tryggingastarfseminnar á árinu. Viðskiptavinirnir fá hækkun iðgjalda vegna […]

Þriðjudagur 01.03 2016 - 23:45

Karl Garðarsson skorar enn!

Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknar, hefur ítrekað vakið athygli fyrir málefnalegar tillögur á þinginu. Hann tekur á því sem máli skiptir fyrir almenning. Til dæmis skattavikum, bankaokrinu, fjármálakerfinu, kennitöluflakki… svo nokkur nýleg dæmi séu tekin. Karl hefur nýlega lagt fram tillögu, ásamt fulltrúum allra flokka nema Sjálfstæðisflokks, um aðgerðir til að sporna hóflega gegn kennitöluflakki. Það […]

Höfundur

Stefán Ólafsson
Ég er prófessor við Háskóla Íslands. Blogga hér til að miðla upplýsingum og taka afstöðu til málefna. Er óflokksbundinn og óháður öllum samtökum.

Helsta áhugamál utan vinnu er listræn
ljósmyndun. Hér er gallerí mitt á netinu:

Nýrra ljósmyndagallerí á 500px

Reykvískar impressjónir – Ljósmyndagallerí

Rökræður við Milton Friedman

Samræður við Egil um ójöfnuð og þjóðmál

Nýrri samræður við Egil Helgason um Ójöfnuð á Íslandi

Ný bók: Ójöfnuður á Íslandi
RSS straumur: RSS straumur

Færslusafn

Fyrri pistlar