Færslur fyrir júlí, 2018

Fimmtudagur 26.07 2018 - 11:54

SIÐFERÐISLEGT GJALDÞROT

Ung móðir, heimilislaus og með langveikan son sinn og þreytt börn, dvelur í tjaldi. Staðan er sorgleg og hún er í kapphlaupi við heilsu, veður, og andlega og líkamlega líðan. Baklandið og öryggið er brostið! Reykjavíkurborg og stjórnvöld hafa opinberlega fengið áfellisdóm yfir margra ára aðgerðaleysi yfir skelfilegri stöðu heimilislausra, stöðunni og á því hvernig […]

Miðvikudagur 18.07 2018 - 11:04

Að fagna með hégómanum: Aldarafmæli fullveldis Íslands á Þingvöllum

Í dag mun alþingi fagna 100 ára afmæli fullveldi Íslands í einkaveislu á Þingvöllum og þjóðin er ekki með. Á Þingvöllum mun ríkisstjórn Íslands fagna hégóma sínum og sýndarmennsku í verki og viti. Undanfarnar vikur hefur altari Mammon verið reist upp, þyrlur flogið með tæki og tól á viðkvæmt svæði Þingvalla og ágangur verið mikill. […]

Höfundur

Sveinn Hjörtur Guðfinnsson er fæddur 2. maí 1971 í Reykjavík. Hann starfaði í mörg ár sem varðstjóri og sérfræðingur í áfallahjálp hjá Neyðarlínunni og er einn af þeim sem mótuðu framtíð Neyðarlínunnar. Í dag er hann markþjálfi og athafnamaður til ýmissa verka sem reynsla hans nýtist í. Meðal félags- og trúnaðarstarfa sem að Sveinn Hjörtur gegnir eru að vera fulltrúi í Hverfisráði Breiðholts, vera í Heimaleikjaráði handknattleiksdeildar ÍR, í stjórn Foreldrafélags Hólabrekkuskóla ásamt því að sinna sjálfboðavinnu og vera í stjórn Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur, en með því er Sveinn Hjörtur fyrsti karlmaðurinn sem gerir það. Sveinn Hjörtur hefur einnig setið í Mannréttindaráði Reykjavíkur og Heilbrigðisnefnd Reykjavíkur.
Sveinn Hjörtur er einn af stofnendum Miðflokksins og skipar 3. sæti hjá Miðflokknum í Reykjavík í komandi sveitastjórnarkosningum.
Sveinn Hjörtur flutti í Breiðholt árið 1979 og hefur látið sig hverfið varða með ýmsum hætti og var m.a. tilnefndur sem einn af hverfishetjum Breiðholts fyrir vinnu sína er viðkemur hverfarölti ásamt samvinnu foreldra og íbúa í hverfinu. Sveinn Hjörtur er einhleypur og á þrjú börn sem eru í grunnskólum í Breiðholti. Sveinn er þekktur fyrir léttleika og þegar kemur að hverfinu þá er metnaður hans mikill. Áhugamál mál hans eru fluguveiði, ljóðagerð og lestur, mótorhjól, tónlist og handbolti.
RSS straumur: RSS straumur

Flokkar