Þriðjudagur 13.11.2018 - 11:51 - FB ummæli ()

Virðing Alþingis – fólk í lífshættu

Nú á að fjölga aðstoðarmönnum þingflokka á Alþingi um sautján til þess að auka virðingu þingsins, að því er Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, sagði í fréttum í gær.  Virðing Alþingis hefur aldrei verið minni, þannig að er þörf á að auka virðingu þess.  Endurheimt virðingar Alþingis felst hins vegar ekki í því að fjölga aðstoðarmönnum þingflokkanna heldur í því að bæta störf, hegðan og framkomu alþingismanna.

Fækkun alþingismanna

Íslendingar eru fámenn þjóð og mikið vafamál hvort við höfum hæfan mannafla og fjármuni til þess að halda uppi svo fjölmennu þingi – 63 alþingismönnum.  Sé borinn saman fjöldi þingfulltrúa í Danmörku, Noregi og Svíþjóð ættu alþingismenn á Íslandi að vera 10 talsins miðað við fólksfjölda og sé litið til Bretlands og breska fulltrúaþingsins ættu alþingismenn á landinu kalda að vera sjö.

Með því að fækka alþingismönnum um helming og hækka laun þeirra um helming mætti ætla að hæfara fólk fengist til þessara mikilvægu starfa.  Þannig væri auk þess unnt að spara ríkissjóði yfir tvo milljarða króna í rekstrarútgjöldum á ári.  Með fækkuninni væri einnig unnt að hætta við fyrirhugaða skrifstofubyggingu fyrir Alþingi, sem er í burðarliðnum, en í frumathugun Framkvæmdasýslu ríkisins er mælt með því að ráðast í skrifstofubyggingu á Alþingisreitnum.  Samkvæmt þarfagreiningu og húsrýmisáætlun er þörf fyrir um 5.000 m² nýbyggingu ásamt um 750m² bílakjallara – bílakjallara!  Stærð alls um 5.750 m².  Byggingarkostnaður er áætlaður 2.588 milljónir króna, en þá er ekki tekið tillit til verðbóta og kostnaður vegna skrifstofu- og tækjabúnaðar.  Þarna væri því unnt að spara um þrjá milljarða í byggingarkostaði og um einn milljarð á ári í rekstrarkostnað.  Alls nemur árlegur rekstrarkostnaður, sem spara mætti með þessum hætti, um þremur milljörðum króna

Hjálp við fólk í lífshættu

Þessu fé – þremur milljörðum króna á ári – væri unnt að verja til þess að afnema með öllu skatta á lágtekjufólki, fólki sem hefur minna en 400 þúsund krónur í mánaðartekjur, og koma til aðstoðar fólki í lífshættu – í lífshættu vegna notkunar áfengis og annanna vímuefna – og leggja einn milljarð til rekstrar meðferðarstofnunar á Vogi.  Þannig mætti einnig auka virðingu Alþingis, sem er lífsnauðsyn lítilli menningarþjóð.

Tryggvi Gíslason

 

Flokkar: Stjórnmál og samfélag

«
»

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Höfundur

Tryggvi Gíslason
Akureyringur, fæddur á Norðfirði 1938, stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1958, magister í íslensku frá Háskóla Íslands 1968 með málfræði sem sérgrein, fréttamaður við Ríkisútvarpið, lektor við Universitetet i Bergen 1968-1972, deildarstjóri í skóla- og menningarmáladeild Norrænu ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn 1986-1990, skólameistari Menntaskólans á Akureyri 1972-1986/1990-2003. Starfa sem fræðimaður og þýðandi.
RSS straumur: RSS straumur

Tenglar