Færslur fyrir október, 2010

Miðvikudagur 27.10 2010 - 15:19

Hættuleg blanda

Lágt testósterón og hátt kólesteról virðist geta verið hættuleg blanda. Ný rannsókn um efnið  sýnir verndandi þátt testósteróns (karlkynshormónsins) gagnvart kransæðadauða hjá karlmönnum sem eru með staðfestan kransæðasjúkdóm. Um 20% karlmanna yfir 60 ára hafa lækkað frítt testósterón í  blóði svo niðurstöðurnar vekja að vonum mikla athygli. Greint var frá niðurstöðunum í nýjasta hefti læknatímaritsins HEART í vikunni. Niðurstöðurnar vekja […]

Þriðjudagur 26.10 2010 - 17:50

Íslendingar og heimurinn allur

Hvert okkar er einstakt en við myndum fjölskyldur sem ganga saman gegnum sætt og súrt. Í andlit hvers okkar er greypt saga sem fylgir okkur alla ævi, oft saga sem er aldrei sögð en mótar okkur samt og þroskar fyrir lífstíð. Samspilið innan fjölskyldunnar skipir okkur þannig mestu máli. Lífskjör okkar og menntun er að lokum síðasta tækifærið […]

Mánudagur 25.10 2010 - 22:30

Konur til alls vísar

Fyrst kynin eru tvö, karl og kona, hljóta þau að eiga bæta hvort annað upp. Hlutverkaskiptingin hefur bara ekki alltaf verið á hreinu. En eitt er alveg ljóst að hvorugt kynið getur án hins verið. Holl eru kvennaráð og það er betra að hafa ykkur með en á móti. Konur axla að öllum jafnaði miklu […]

Mánudagur 25.10 2010 - 15:11

Vantrú eða trú

Ég ætlaði upphaflega að blogga einhver góð hvatningarorð til kvenna í tilefni að deginum í dag en varð „kjaftstopp“ eftir að hafa heyrt úr predikun biskups, Hr. Karls Sigurbjörnssonar í gær og eftir að hafa séð viðtal við hann í fréttum á Stöð 2. Er maðurinn veruleikafyrtur eða er ég svona blindur að sjá ekki ljósið. Hver er í […]

Laugardagur 23.10 2010 - 13:23

Heilsugæsla með sálina að veði

Mikið er rætt um veikburða ríkisstofnanir þessa daganna. Þær eiga undir högg að sækja enda hefur stjórnunin ekki alltaf verið eins og best verður á kosið og oft vaknað upp spurningar hvaða hagsmuni er verið að verja. Þróun opinberrar þjónustu hefur liðið fyrir vöntun á forgangsröðun en sjónarmið vina og stjórnmálamanna látin ráða í stað bestu fagþekkingar á […]

Fimmtudagur 21.10 2010 - 21:55

Kanntu brauð að baka?

Öll mál eiga sér tvær hliðar. Sérstaklega gildir þetta þegar við deilum hvort við annað. Oft komumst við að einhverri niðurstöðu. Stundum höfum við haft rangt fyrir okkur en erum þá reynslunni ríkari á eftir. Stundum vitum við betur en látum í minni pokann. Allt of oft bökum við samt vandræði eða látum gabba okkur. Ég […]

Þriðjudagur 19.10 2010 - 13:59

Svartari en hrafninn

Við vitum flest að jólasveinninn eins og við þekkjum hann er ekki til og að ímyndinn er kaþólskari en sjálfur páfinn. Íslenski jólasveininn er ekki eins helgur enda fábrotnari og treystir minna á skrautið og brosið. En hvað skyldi liggja þarna að baki og við skulum ekki láta glepjast af góðlátlegu yfirbragðinu. Í dag er jólasveinninn fyrst […]

Mánudagur 18.10 2010 - 01:29

Fljúgum hærra

Nýlega var ég á ferðalagi í Bandaríkjunum. Á langri flugferð með ókunnugu fólki verður maður oft hugsi um nútíðina og hvað augnablikið getur verið afstætt. Til dæmis að líf manns skuli geta verið komið undir góðum flugstjóra og góðri flugvél. Maður verður samt að vera svolítið kærulaus og ef eitthvað gerist að þá tekur þetta […]

Sunnudagur 17.10 2010 - 11:05

Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur

Það er vægt til orða tekið þegar maður segir að það séu blikur á lofti með sama aðgang að heilbrigðisþjónustu hér á landi í náinni framtíð eins og við þekkjum hana í dag. Ógnvænlegur niðurskurður er þegar orðinn og afleiðingarnar er að mörgu leiti duldar. Það sem almenningur sér eða fær að vita er aðeins toppurinn […]

Föstudagur 15.10 2010 - 17:04

Að bjóða framtíðinni birginn

Oft gleymum við því að við getum sýnt fyrirhyggju í lífinu og gert varúðarráðstafanir til að forðast skakkaföll. Margir bíta samt bara í skjaldarrendurnar og bjóða framtíðinni birginn eins og sönnum víkingum sæmir. Þetta þekkjum við Íslendingar vel sem og afleiðingarnar. Nú er byrjað að bólusetja gegn árlegri Inflúensu á flestum heilsugæslustöðvum og stærri vinnustöðum sem talin […]

Höfundur

Vilhjálmur Ari Arason
Höfundur er heimilislæknir (1991) en starfar nú á Slysa- og bráðamóttöku LSH. Doktorspróf frá Læknadeild HÍ 2006 og klínískur dósent við Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins frá 2009 - 2015. Sérstaklega annt um gott og réttlátt heilbrigðiskerfi og skynsamlega notkun lyfja. Hef átt sæti í Sóttvarnaráði sem fulltrúi LÍ, skipaður af heilbrigðisráðherra árið 2013 og 2017.
RSS straumur: RSS straumur

Færslusafn