Sunnudagur 20.11.2011 - 09:45 - FB ummæli ()

Fækkum umferðarslysunum

Sameinuðu þjóðirnar hafa frá árinu 1993 tileinkað þriðja sunnudag nóvembermánaðar minningu fórnarlamba umferðarslysa. Að því tilefni vill starfshópur innanríkisráðuneytisins um aðgerðir í umferðaröryggismálum hvetja landsmenn til að taka þátt í einnar mínútu þögn klukkan 11:00 í dag, sunnudaginn 20. nóvember.

Alls látast um 20 einstaklingar í umferðarslysum á ári, á Íslandi. Flestir í blóma lífsins. Margfallt fleiri slasast og bíða þess aldrei bætur.

Sumir segja að slys séu bara ákveðin líkindi að óheppni. Að sumu leiti satt en oftar ekki, sérstaklega þegar umferðarslysin eiga í hlut og sem að í flestum tilvikum má koma í veg fyrir. Ekki síst alvarlegustu slysin þar sem hinn slasaði “var jafnvel í rétti”. Þau forðumst við best með því að keyra hægar og sýna aðgát og kurteisi.

„Ef aðstæður hefðu verið aðrar þegar mestu máli skipti í lífi fórnarlambanna. Jafnvel þegar lífið var rétta að byrja og tíminn framundan virtist svo óendanlega langur og bjartur. Ekkert er jafn ömurlegt en að sjá hvað hvað eitt andartak .. getur skipt miklu máli, í lifandi lífi.“

http://blog.eyjan.is/vilhjalmurari/2011/09/07/umferdarhradinn-og-slysin/

Flokkar: Óflokkað · Bloggar · Dægurmál · heilbrigðismál · Stjórnmál og samfélag

«
»

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Höfundur

Vilhjálmur Ari Arason
Höfundur er heimilislæknir (1991) en starfar nú á Slysa- og bráðamóttöku LSH. Doktorspróf frá Læknadeild HÍ 2006 og klínískur dósent við Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins frá 2009 - 2015. Sérstaklega annt um gott og réttlátt heilbrigðiskerfi og skynsamlega notkun lyfja. Hef átt sæti í Sóttvarnaráði sem fulltrúi LÍ, skipaður af heilbrigðisráðherra árið 2013 og 2017.
RSS straumur: RSS straumur

Færslusafn