Færslur fyrir maí, 2013

Fimmtudagur 30.05 2013 - 14:44

Almenn bólusetning ungbarna gegn hlaupabólu í dag?

Ein aðalfrétt og ritstjórnargrein Fréttablaðsins í dag og sagt var frá á Stöð 2 í gærkvöldi snýr að lélegu aðgengi að hlaupabólu-bólusetningu hér á landi. Fullyrt er að margir læknar mæli með bólusetningunni fyrir ungbörn og vísað til úttekta hérlendis og erlendis þar sem kemur fram að almenn bólusetning ungbarna gegn hlaupabólu kunni að vera þjóðhagslega hagkvæm. Ókeypis […]

Mánudagur 27.05 2013 - 16:43

„Kremið hennar Siggu“

Stundum kemur læknisfræðin manni svo sannarlega á óvart, sérstaklega þegar hún flokkast ekki undir hin sannreyndu vísindi. Meðferðir sem þó áttu rætur til alþýðuvísinda gegnum aldirnar. Jafnvel árþúsundir aftur í tímann, en sem við týndum einhvers staðar á leiðinni. Í dag notum við enda oftast lausnir sem vísindin ein segja okkur að séu bestar. Oftast […]

Laugardagur 18.05 2013 - 16:03

Þjóðfélag með steinhjarta!

Það hljóta að vakna upp stórar spurningar varðandi siðfræði- og lagalega þætti starfsemi ÍE, þegar forstjórinn, Kári Stefánsson, tjáir sig með þeim hætti sem hann gerir nú um möguleg not af upplýsingum úr erfðagagnagrunni þjóðarinnar. Nú um áhættuna á að ákveðnar konur kunni að vera með arftengt brjóstakrabbamein. Upplýsingar úr gagnagrunni þar sem hámarks trúnaður […]

Miðvikudagur 15.05 2013 - 22:19

Opnaðir og lokaðir gluggar heilsunnar

Íslensk erfðagreining býr yfir dulkóðuðum gögnum um 2.400 Íslendinga með stökkbreytt krabbameinsgen, BRCA2, eins og segir í frétt frá þeim. Þar af eru um 1.200 konur sem eru þá með yfir 80% líkur á að fá brjóstakrabbamein samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum um þetta stökkbreytta gen og hættunnar á að þróa með sér brjóstakrabbamein. Leyfi þarf hjá Persónuvernd, Landlæknisembættinu […]

Þriðjudagur 14.05 2013 - 22:17

Hjól og hjálmar

Nú eru margir farnir að hlakka til sumarsins og þegar tekið fram hjólin sín úr geymslunum eftir langan vetur, ekki síst börnin. Ekkert kemur hins vegar betur í veg fyrir hjólaslysin en að varlega sé farið fyrstu daganna og að fullorðnir sýni börnunum gott fordæmi. Hjól séu vel yfirfarin og bremsur athugaðar. Hjólreiðar njóta auk […]

Mánudagur 13.05 2013 - 13:31

Ofgnótt lyfja í íslensku gáttinni

Í fréttatíma RÚV í gærkvöldi var fjallað um á fjórða tug athugasemda frá Lyfjastofnun til Landlæknisembættisins vegna lyfjagáttarinnar svokölluðu. Rafræn tölvugátt fyrir lækna til að senda rafræna lyfseðla í apótekin og sem starfrækt hefur verið hér á landi sl. 5 ár og tekur orðið við nær öllum útgefnum lyfjaávísunum á landinu. Hún hefur þó þá annmarka að aðeins […]

Föstudagur 10.05 2013 - 17:42

Heilabólgur (TBE) og liðagigt (Lyme sjúkdómurinn) eftir bit skógarmítla

TBE, MÍTLAHEILABÓLGA Í fyrra var hjá mér íslensk kona á stofunni sem var fædd og uppalin í Eistlandi, en sem hugði nú mörgum árum síðar, að heimsækja æskuslóðirnar ásamt barninu sínu. Hún heyrði hins vegar frá ættingjum og vinum, að ekki væri vogandi að koma að sumri til í heimsókn nema að vera bólusettur gegn […]

Þriðjudagur 07.05 2013 - 17:20

Vafasamt að draga miklar ályktanir um að svefntruflanir valdi blöðruhálskirtilskrabbameini

Stór hluti karlmanna eru komnir með byrjandi breytingar blöðruhálskirtilskrabbameins eftir 60 ára aldur. Svefntruflanir eru mjög algengar hjá fullorðnu fólki (>30%) og yfir 10 % taka svefnlyf reglulega. Krabbamein á mismunandi stigum getur skert lífsgæði, jafnvel löngu áður en þau greinast. Í nýrri íslenskri rannsókn Láru G. Sigurðardóttur og félaga sem er birt í nýjasta hefti í Cancer Epidemiol Biomarkers Prev, […]

Föstudagur 03.05 2013 - 14:06

D vítamínið, hjartað og U-beygjan

Áður hef ég skrifað talsvert um D vítamín og mikilvægi daglegrar inntöku enda sýndu fyrri rannsóknir að allt að þriðjungur landans vantaði D vítamín í kroppinn og suma nær alveg. Beinkröm og alvarleg vannæringareinkenni vegna D vítamínskorts voru farin að skjóta upp kollinum hér á landi, og nú er vitað betur en áður um mikilvægi D vítamíns fyrir […]

Miðvikudagur 01.05 2013 - 17:53

SSRI þunglyndislyfin auka líkur á alvarlegum aukaverkunum við stórar skurðaðgerðir

Ný vísindagrein sem vakið hefur heimsathygli, birtist í fyrradag í rafrænni útgáfu JAMA, læknavísindatímariti bandarísku læknasamtakanna, um áhættu svokallaðra SSRI þunglyndislyfja gagnvart hættulegum aukaverkunum sem geta komið upp í og eftir stórar skurðaðgerðir. Sérstaklega blæðingaáhættu, en líka öðrum hættulegum uppákomum svo sem hjartsláttartruflunum og samsvarar aukningin allt að 20% í fjölda tilvika. Aukningin samsvarar rúmlega 10% hækkaðrar tíðni […]

Höfundur

Vilhjálmur Ari Arason
Höfundur er heimilislæknir (1991) en starfar nú á Slysa- og bráðamóttöku LSH. Doktorspróf frá Læknadeild HÍ 2006 og klínískur dósent við Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins frá 2009 - 2015. Sérstaklega annt um gott og réttlátt heilbrigðiskerfi og skynsamlega notkun lyfja. Hef átt sæti í Sóttvarnaráði sem fulltrúi LÍ, skipaður af heilbrigðisráðherra árið 2013 og 2017.
RSS straumur: RSS straumur

Færslusafn