Miðvikudagur 01.05.2013 - 17:53 - FB ummæli ()

SSRI þunglyndislyfin auka líkur á alvarlegum aukaverkunum við stórar skurðaðgerðir

ssri_major_brands.ashxNý vísindagrein sem vakið hefur heimsathygli, birtist í fyrradag í rafrænni útgáfu JAMA, læknavísindatímariti bandarísku læknasamtakanna, um áhættu svokallaðra SSRI þunglyndislyfja gagnvart hættulegum aukaverkunum sem geta komið upp í og eftir stórar skurðaðgerðir. Sérstaklega blæðingaáhættu, en líka öðrum hættulegum uppákomum svo sem hjartsláttartruflunum og samsvarar aukningin allt að 20% í fjölda tilvika. Aukningin samsvarar rúmlega 10% hækkaðrar tíðni á alvarlegum blæðingum einum og sér, eftir að leiðrétt hefur verið fyrir öðrum áhættum sem fylgja þunglyndi svo sem offitu og tengdum sjúkdómum sem og lungnasjúkdómum.

Vitað er að SSRI lyfin geta haft áhrif á blóðfögur og skert storkun blóðs, en einnig var vitað um  hugsanleg áhrif SSRI lyfja varðandi að koma af stað lífshættulegum hjartsláttartruflunum. Minni rannsóknir hafa þó aldrei getað metið áhættuna vel hingað til.

Greint er frá rannsókninni nú í JAMA á Medscape vefnum og rætt m.a. við ritstjóra tímaritsins. Um verulega stóra afturvirka rannsókn var að ræða sem náði til 375 stærstu sjúkrahúsa í Bandaríkjunum á árunum 2006-2008 og til rúmlega hálfs milljón sjúklinga sem þar höfðu farið í aðgerðir. Sérstaklega mældist áhættan meiri við hjartaaðgerðir og stærri bæklunaraðgerðir.

Talið er að að meira en 10% fullorðinna Íslendinga taki SSRI lyf inn við kvíða og þunglyndi á hverjum tíma svo niðurstöðurnar koma okkur vissulega mikið við. Eins er þá núna um staðfesta aukaverkun að ræða sem skiptir enn meira máli vegna hugsanlegrar ofnotkunar á þessum annars þýðingarmiklu lyfjum fyrir þá sem eiga við alvarlegan kvíða eða slæmt þunglyndi að stríða og sem gagnast lyfjameðferðin vel undir eðlilegum kringumstæðum. Algengustu lyfirn hér á landi eru Sertral, Zoloft, Cipramil, Cipralex, Fluexitin, Effexor, Venlafaxin, Cymbalta og önnur sambærileg sér- og samheitalyf.

Rannsakendurnir, Auerbach og félagar, og ritstjórar JAMA telja fulla ástæðu til að vera vel á verði gagnvart SSRI þunglyndislyfjum og aukaverkunum ef sjúklingar þurfi geðheilsunnar vegna að vera á slíkum lyfjum fyrir stórar aðgerðir. Ekki hins vegar endilega að hætta meðferðinni, enda komi margt annað til, ekki síst betri almenn andleg líðan í flestum tilvikum fyrir og eftir aðgerð. Varhugavert getur líka verið að hætta snögglega á þessum lyfjum. Í sumum tilfellum væri þó vert að endurmeta vel ástæður SSRI þunglyndislyfjameðferðar fyrir stórar skurðaðgerðir.

http://archinte.jamanetwork.com/article.aspx?articleid=1682366

http://blog.dv.is/vilhjalmurari/2013/04/12/vakna-thu-nu-thjod-min/

Flokkar: Óflokkað · Bloggar · Dægurmál · heilbrigðismál

«
»

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Höfundur

Vilhjálmur Ari Arason
Höfundur er heimilislæknir (1991) en starfar nú á Slysa- og bráðamóttöku LSH. Doktorspróf frá Læknadeild HÍ 2006 og klínískur dósent við Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins frá 2009 - 2015. Sérstaklega annt um gott og réttlátt heilbrigðiskerfi og skynsamlega notkun lyfja. Hef átt sæti í Sóttvarnaráði sem fulltrúi LÍ, skipaður af heilbrigðisráðherra árið 2013 og 2017.
RSS straumur: RSS straumur

Færslusafn