Laugardagur 04.12.2010 - 14:05 - 52 ummæli

Uppreisn – ekkert minna dugar!

Ég held að fólk í minni stöðu, sem enn skrimtir og stendur í skilum, hafi ekki vænst neinnar hjálpar vegna stökkbreyttra lána og okurvaxta. Maður er farinn að venjast óréttlætinu, sem maður hefur búið við um áratuga skeið. Við könnumst við hugtakið heimilsofbeldi, en ég vil kalla þetta samfélagsofbeldi. Á árunum 1983-1986 brann upp mitt fyrsta eigið fé í íbúð og 25 árum síðar gerist það sama aftur. Þannig brennur upp reglulega árangur 20-30 ára strits og sparnaðar. Bjarni Benediktsson lýsti því yfir í gær, að hann væri mjög sáttur við efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar og kemur það ekki á óvart. Sjálfstæðisflokkurinn hefur alla tíð einungis barist fyrir peningamenn og tryggði t.a.m. eignir þess fólks í peningasjóðum og öðrum inneignum í bönkum í hruninu mikla. Bæði ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar og síðan Samfylkingar og VG hafa gjörsamlegga brugðist skuldurum þessa lands. Efnahagsaðgerðir banka, lífeyrissjóða og ríkistjórnarinnar núna felast í að afskrifa skuldir, sem löngu var ljóst að voru gjörsamlega tapaðar og hefði átt að vera búið að afskrifa fyrir löngu. Sömu aðilar eru sammála um að kreysta síðasta blóðdropann úr öllum skuldurum þessa lands. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, lýsti því síðan skýrt og skorinort yfir að engrar frekari hjálpar væri að vænta.

Fólkið sem enginn vill aðstoða á enga aðra leið færa en að yfirgefa landið. Ég á von á að um 20-30.000 manns sé að ræða, ungt og vel menntað barnafólk, sem Norðmenn munu taka fagnandi. Blóðtakan verður gífurleg fyrir okkar litlu þjóð og hugsanlega náum við okkur aldrei aftur á strik. Við hinir eldri ættum reyndar einnig að íhuga þennan möguleika, því eignirnar eru svo að segja farnar og lítil ástæða til að vinna hér á lúsarlaunum og skattpíndur í botn til að greiða skuldir „óreiðumanna“, auk þess sem maður er píndur til að greiða stökkbreytt og verðtryggð húsnæðislán á okurvöxtum þar til maður geyspar golunni. Það væri gaman að sjá hvernig Steingrími, Jóhönnu og Bjarna Ben gengur að reka þetta þjóðfélag þegar 50-60.000 þeirra sem greiða nær alla skatta, borga í lífeyrissjóðina og halda þessu öllu uppi eru bara farin. Hætt er á að hér brotni þá allt saman, bæði velferðar-, mennta- og lífeyrissjóðakerfið. Ég er ekki að mála skrattann á vegginn, heldur að bregða upp sennilegri mynd af því sem gerist á næstu árum. Gjörðir og aðgerðaleysi okkar stjórnmálamanna á þessum erfiðu tímum eru því í besta falli ábyrgðalausar, en í versta falli glæpsamlegar.

Með því að hjálpa aðeins litlum hluta þjóðarinnar, er þessi ríkisstjórn leynt og ljóst að slíta friðinn í þjóðfélaginu og ýta undir úlfúð milli stétta. Annars vegar höfum við hina fjölmennu millistétt – sem enginn vill hjálpa – og hins vegar peningamennina, lífeyrisþega og þá sem minnst bera úr bítum. Millistéttin mun fyrr en síðar sameinast í andófinu gegn ríkisstjórninni og Sjálfstæðisflokknum. Slíkt andóf þyrfti einnig að beinast gegn handbendum ríkisstjórnarinnar, en þar á ég auðvitað við forystu samtaka launamanna: ASÍ, BSRB og BHM. Allt frá hruni hafa samtök launamanna að engu leyti gætt hagsmuna stórs hluta almennings. Aðeins með uppreisn verður forystu samtaka launamanna gert ljóst, hver hefur í raun og veru völdin í samfélaginu. Við neyðumst til að taka völdin og koma þessu úr sér gengna og gamaldags liði úr forystu samtaka launamanna, kasta þeim út úr þeirra fílabeinsturni. Í framhaldi og á sama hátt verður að taka völdin í lífeyrissjóðunum. Við höldum að mestu þessum samtökum uppi og við eigum að ráða áhersluatriðunum. Ég neita því ekki, að ég hef spurt mig að því nær daglega á liðnum tveimur árum, til hvers ég sé að borga þúsundir króna til samtaka launamanna, sem ekki berjast fyrir mínum hagsmunum!

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (52)

  • Genau ins Auge getroffen!

    Mjög góð grein og sönn.

    Millistéttin mun kveðja Flokkinn.

    Hér verða meiriháttar pólitísk umskipti á næstu tí árum eða svo.

    Allt breytist svo hægt í þessu staðnaða og íhaldsama samfélagi.

    En þetta MUN gerast.

  • Óðinn Þórisson

    Ef SF og VG ákveða að sitja út kjörtímabilið gegn vilja þjóðarinnar og ekki efna til kosninga haust 2011 þá geta þessir flokkar búist við afhroði í kosningunum í lok kjörtímabilsins

  • Ríkisstjórnin gleymir veigamiklu atriði. Þeir sem eiga að bera hitann og þungann af þessum 100 milljarða skuld-niðurgreiðslu eru bankarnir. Þeir er fyrst og fremst fjármagnaðir með þeim hætti að þeir fá lánaða peninga frá innlánseigendum, fara síðan með þá peninga niður í Seðlabanka, og leggja þá þar inn á mun hagstæðari vöxtum aka. græða á vaxtamun. Bankarnir fá líka mun hagstæðari yfirdráttarvexti en þeir lána sínum viðskiptavinum á yfirdrætti aka. græða á vaxtamun.

    Hvað ef fjármagnseigendur tækju nú allt í einu upp á því á mánudag, að taka einfaldlega ALLA sína inneign úr bönkunum? Þá er ljóst að t.d. Arion banki væri gjaldþrota. Þá gætu bankarnir ekki staðið við sinn hlut í pakkanum sem ríkisstjórnin er að lofa.

    Mér þykir nokkuð líklegt að millistéttinni á Íslandi, fólkinu í landinu sem er ekki mjög skuldugt, og hefur margt hvert náð að spara saman peningum með útsjónarsemi og ráðdeild sé ekki sátt við allar ákvarðanir ríkisstjórnarinnar. Mælirinn er eiginlega að verða fullur.

    Áhlaup á t.d. Arion banka og þessi áform ríkisstjórnarinnar eru búin að vera.

    Annars sýnir þetta að ríkisstjórnin hefur ágætis hæfileika í að eyða peningum, en er álíka vansköpuð í að afla þeirra með öðru en skattheimtu, og blindur api.

  • Gústaf Níelsson

    Þú þekkir væntanlega „gullnu regluna“ Guðbjörn? En hún er einmitt sett af þeim sem eiga gullið, ekki satt. Þessar niðurstöður ríkisstjórnarinnar, um ekki neitt, er nauðlending óhæfra stjórnmálamanna og ógæfulegt þótti mér þegar formaður Sjálfstæðisflokksins tók undir. Við blasir skelfilegt skuldabasl tugþúsunda Íslendinga um áratugaskeið með tilheyrandi fjöldagjaldþrotum og óhamingju og upplausn heimila og fjölskyldna. En enginn hefur áhyggjur af vandamálum skuldara, nema kannski aðrir skuldar og þeir sem kynnst hafa skuldabasli á lífsleiðinni. Sannleikurinn er sá að við búum í þjóðfélagi kröfuhafanna og við réttarfar kröfuhafanna sömuleiðis. Ríkisvaldið sjálft gengur harðast fram af öllum kröfuhöfum þessa lands, ásamt öðrum opinberum aðilum. Þeir sem með það vald fara starfa í umboði almennings.
    Maður spyr sig: Hvenær ætlar almenningur í þessu landi að taka völdin?

  • Þú talar rösklega, Guðbjörn, og ég er þér oftast sammála. Við eru að kljást um það hvernig á að bæta fólki það, sem ekker er unnt að bæta. Tjónið, sem fólk hefur orðið fyrir er svo stórt, að pólitíkusarnir geta ekki bætt það. Þeir reyna bara að sprikla. – Við höfum orðið fyrir gífurlegu tjóni með hruninu. En hvernig gerðist það? Sigurður Þórðarson, fyrrv. ríkisendurskoðandi minnir mig, hefur metið það svo, að við höfum tapað 10000 milljörðum króna, takk fyrir. Það er sex-sjöföld þjóðarframleiðslan. En hvernig gerðist það? Sumt fólk heldur að það sé bara afturkippurinn, sem allar vestrænar þjóðir hafa orðið fyrir. Bankahrunið, sem byrjaði í Bandaríkjunum. Nei, takk. Okkar tjón er miklu meira en annarra. Af hverju? – Sjáðu fréttirnar í dag um Kaupþing. Þeir lánuðu 800 milljarða til ýmissa eignarhaldsfélaga og skúffufélaga í lokin, Ólafur Ólafsson, Sigurður Einarsson, Hreiðar Már o.s.frv. lánuðu Al Thani, breskum bröskurum, vinum og félögum stjórnarmanna Kaupþings þetta fé í lokin fyrir hrun, aðallega. – Þarna, og hjá Glitni og Landsbanka, má sjá stóru bitana. Af hverju hefur ekki verið fjallað um þá að gagni fyrr? Þarna átti að byrja. Þetta er stolið fé. Menn í kerfinu tala varlega, en ég segi. Þetta er stolið fé, meira eða minna. Útlán án veða til félaga, sem eru ekki í neinum rekstri. Það er málið. Stolið fé. Af þessu 10000 milljörðum er kannski þriðjungur stolið fé. Þarna liggur hundurinn grafinn. Og hluti af þessu fé er niður komið á aflandseyjum og í Luxemburg.

  • Þorleifur Óskarsson

    Sæll Guðbjörn.
    Þakka fyrir góðan pistil. Er þér að öllu leyti hjartanlega sammála. Ummæli þín um verkalýðshreyfinguna eru því miður hárrétt. Verkalýðsrekendur hafa í raun verið í forystu fyrir þeim sem ekkert hafa viljað fyrir almenning gera.

  • Guðbjörn Guðbjörnsson

    Karl:

    Ég er því miður ekki viss um að hér breytist eitthvað, er eiginlega frekar á því að hér breytist ekkert!

    Óðinn:

    Já, ég hélt nú að þessi ríkisstjórn myndi springa, en ég held að þeir þori ekki í kosningar.

    Ekkert er að gerast í atvinnumálum, sem að hluta má rekja til þess að ekki hefur verið leyst úr skuldavanda fyrirtækja og að hluta til þess að það verður að loka Icesave málinu svo hægt sé að fara að virkja og halda áfram með Helguvík.

    Maður finnur að Sjálfstæðisflokkurinn er einnig hræddur við að taka við völdum og þjóðin hefur í raun heldur engan áhuga á að sá flokkur taki við völdum í bráð: Pólitísk pattstaða!

    joi:

    Allt rétt sem þú segir, nema að þarna er um krónur að ræða, sem er hægt að prenta. Gjaldeyrishöftin koma í vega fyrir að krónurnar fari úr landi. Efnahagsleg pattstaða!

  • 1) Það er sorglegt að sjá hve fólki er orðið það tamt um þessar mundir, að skipta íslendingum upp í hópa eftir því í hvaða stétt þeir teljist tilheyra í augum misviturra manna.

    2) Hvernig fór ég að því að sleppa við að horfa upp á eigið fé brenna upp í verðbólgubáli? Ég er líklega lágstéttarmaður í þínum augum, samt hef ég það ágætt þó vissulega ég hafi tapað fé. Hinsvegar legg ég ekki líf mitt í að gráta það.

    3) Ert þú ekki bara að gera eitthvað rangt?
    Hví lendir þú í tvígang í því sem ég get forðast?
    Lærðir þú ekkert af árunum 1983-1986?

    4) Ertu ekki bara að leggja of mikla áherslu á að tilheyra einhverri heimatilbúinni millistétt í stað þess að lifa þínu lífi í samræmi við efnahagslega getu?

  • Guðbjörn Guðbjörnsson

    Gústav:

    Ég vona að það verði brátt og það þarf að gera skipulega og eftir leikreglunum.

    Við þurfum að skipta út forustu samtaka launamanna og í kjölfarið verður að koma heiðarlegu fólki í stjórn lífeyrissjóðanna og ryðja út því gjörspillta liði sem stjórnar þeim.

    Einnig þarf að taka við stjórn landsins og það verður aðeins gert eftir reglunum með því að stofna FLOKK FÓLKSINS í landinu, sem vinnur að hagsmunum þess en ekki að hag annarra.

  • Sigurður Sigurðsson

    Frábær grein. Er ekki rétt að fara að byrja að undirbúa valdatöku millistéttarinnar. Ég er klár í slaginn hvenær sem er. Ég er búin að fá gersamlega upp í kok af þessu rugli sem fjórflokkurinn ber á borð fyrir okkur.

  • „If you tolerate this, then your children will be next.“

    Ef við gerum ekki eitthvað núna, þá gerum við það aldrei.

  • Guðbjörn Guðbjörnsson

    Björn I:

    Bara til að það sé á hreinu, þá tapaði ég ekki krónu á inneignum í verðbréfasjóðum eða í hlutabréfum. Ég er varkár og fjárfesti ekki í hlutabréfum, heldur í fasteign og keypti hana áður en allt hækkaði.

    Þessi eign kostaði 35 milljónir fyrir fimm árum ég þá í henni u.þ.b. 18 milljónir. Eignin hækkaði eitthvað lítillega til 2008, en lánin stökkbreyttust um 25-30% á 5-6 árum eða um 6-7 milljónir. Á sama tíma hef ég greitt skilvíslega af eigninni og nema afborganir um 7 milljónum króna. Nú hefur húsnæðisverð hrunið og húsið líklega bara 30-32 milljóna virði og lánin eru komin í 25-26 milljónir. Á liðnum 5 árum hefur ég skipt um þak og gert upp baðherbergi, en eldhúsið var nýlegt. Allt sem ég gerði í húsinu borgaði ég sjálfur og tók ekki að láni.

    Ég er góðum launum – miðað við ríkisstarfsmann – þótt þau hafi verið lækkuð. Ég hef passað upp á vera ekki með neyslulán þegar ég hef keypt eitthvað og er því góður hvað það varðar.

    Nei, ég lærði ekkert af því að verða fyrir „samfélagsofbeldi“ á árunum 1983 -1986. Ég flutti til Þýskalandi árið 1986 og bjó þar til ársins 1998. Hefði ég lært eitthvað af fyrri mistökum, hefði ég aldrei flutt aftur til Íslands, en það voru líklega stærstu mistökin.

    Ég flutti hins vegar aftur heim og menntaði mig vel og komst í góða stöðu og reyndi að spara peninga og kaupa mér aftur íbúð og síðar hús.

    Þetta er rétt hjá þér, ég lærði ekki af mistökunum: ég hefði aldrei átt að stíga fæti á þetta land aftur!

    Takk fyrir að opna hjá mér augun fyrir þessari staðreynd!

    Kannski hefði verið betra ef við hefðum bara verið öll flutt á Jótlandsheiðar forðum daga…

  • sigthor jonsson

    Ég er sammála þessu 100%, þetta gerðist í færeyjum þegar þeir fengu sitt bankahrun töpuðu stórum hluta unga fólksins úr landi, það er engin ástæða til að ætla að Íslendingar bregðist ekki eins við.

    Það sem stjórnvöldum þó hefur verið mest ábótarvant er að taka á landlægri spillingu og kjördæmapólitík, þar hefur VG þó verið mun öflugara en Samfylking en þó er ég ekki að bera Samfó bót.

    Steingrímur J hefur dælt 40 milljörðum í dauð fyrirtæki, og reyndi að segja fólki að Sjóvá væri svo mikilvægt að það væri verra en fall bankanna…. hversu biluð er þessi setning, VBS er svo dæmi út af fyrir sig, þar sem ég tel hreinlega að Steingrímur J hafi stolið þessum milljörðum af skattborgurum í „desperate“ ástandi til þess að verja sína hagsmuni og kjördæmis síns, en stór hluti af kjósendum í hans kjördæmi voru hluthafa í VBS, það hlýtur að vera saknæmt, að maður tali nú ekki um þessar stórklikkuðu 30 milljónir.

    Í ljósi leka Wikileaks þá hef ég hlustað á margar erlendar debates um lekann og oftar en ekki kemur fram að wikileaks hafi opinberað spillingu á Íslandi sem er alveg rétt, en Wikileak lekinn er slæmur fyrir okkur því að Ísland er nefnt út um allan heim sem stórspillt land samt hefur ríkisstjórnin verið algjörlega lömuð í því að stöðva þessa menn og að koma í veg fyrir að þessi spillingin haldi áfram, þvert á móti hafa þeir einfaldlega tekið þátt í því að viðhalda þessari spillingu.

  • Guðbjörn Guðbjörnsson

    Sigþór:

    Ég er sammála þér að pólitísk spilling er okkar stærsta vandamál!

    Það verður aðeins með einu móti hægt að stöðva þetta og það er með lýðræðislegri bylgingu, þ.e.a.s. með nýju óspilltu stjórnmálaafli, þar sem baráttan gegn hverskonar spillingu verður aðal baráttumálið!

  • Sigurður Sigurðsson

    Björn I. Það er fólk eins og þú sem alið á misréttinu í landinu. Vegna þess að þú tapaðir á árum áður þá eigum við að sætta okkur við það. Það er bara ekki hægt að sætta sig við að tapa þegar ljóst er að tapið er orsakað af glæpsamlegum verknaði bankamanna, handónýtum eftirlitsstofnunum, hriplekri löggjöf og klappstýrum útrásarvíkininga í röðum stjórnmálamanna.

  • Guðbjörn Guðbjörnsson

    Björn I:

    Það má vel vera að ég og 50-60.000 Íslendinga höfum lifað um efni fram á liðnum árum og þetta megi rekja til „slæms uppeldis“.

    Ég vona að þú sofir jafn vel þegar tugir þúsunda Íslendinga eru komnir úr landi og þú skuldlaus maðurinn verður að greiða skattana fyrir alla þá sem eru farnir úr landi.

    Ég fullyrði ekkert um þig og þekki ekkert til þín, en mér finnst einkennilegt að þú dæmir aðra á þann hátt sem þú gerir.

    Ég tek þó eftir hrokanum í skrifum þínum og hversu afskaplega ánægður þú ert með þína stöðu. Þú virðist bókstaflega nærast á óförum annarra og nýtur þess að sofa vært á nóttunni á meðan stór hluti þjóðarinnar sefur vart fyrir áhyggjum.

    Þú ert af nákvæmlega sama sauðahúsi og Bjarni Benediktsson og Pétur Blöndal, sem geta engan veginn sett sig í spor landsmanna sinna. Þú og þínir líkar þekkja ekki til samúðar eða hluttekningar í sorgum og áhyggjum annarra. Allt líf ykkar snýst um ykkur sjálfa, hversu frábærir þið eruð og að ykkur skjátlist aldrei.

    Lifðu þínu lífi áfram á þennan hátt, sama er mér, en ég á von á að þér bregði þegar allt „óreglufólkið“ (30-60.000 manns) eru farin úr landi og þið reglusama fólkið verðið að standa undir öllum pakkanum!

    VERÐI YKKUR AF ÞVÍ!

  • Bara taka stóra pillu og þá læknast bágtið
    eða
    Komið til mín allir þið sem stórum skuldum eruð hlaðnir og ég mun niðurfella.

    Af hverju láta menn í stórum stíl eins og það þurfi bara að ákveða það og þá séum við ekki stórskuldugir lengur? Af hverju ljúga menn að sjálfum sér að niðurfelling sé bara ákvörðun, enginn tapi nema einhverjir sem eiga meira en nóg?

    Þjóðin fór á hausinn þegar lélegir stjórnmálamenn, heittrúaðir á markaðlausnir hættu að reyna að stjórnast í stórkapitalinu. Þar með fengu peninga-siðleysingjar frítt spil í bönkum og fyrirtækjum.

    Það er þetta sem setur þig í erfiða stöðu. Ekki það að lélegir stjórmálamenn sem eru að reyna að moka flórinn smelli ekki puttum og lækni allt.

  • Hreggviður Jónsson

    Guðbjörn!
    Allt er þetta satt og rétt. Ég er búinn, að missa eigið fé mitt a.m.k. í þrígang eða í fjórgang. 1974, var eigið fé mitt mikið miðað við í dag. Þrátt fyrir að hafa ætíð farið vel með fé hafa handhafar samfélagsofbeldisins alltaf fengið að leika lausum hala. Þeir hafa leikið sér að alþýðu manna með ÍSLENSKU KRÓNUNNI. Fellt gengið, vegna útflutningsatvinnuveganna. Þegar stjórnmálamenn eru búnir, að gera í buxurnar fella þeir gengið. Hvorki sveitarstjórnarmenn, né alþingismann hafa sýnt ábyrgð í fjármálum, nema örfáir. Ég verð að segja, að aðeins EVRAN getur komið á þeim stöðuleika, sem þarf hér á landi. Ég hefi haft það í flimmtingu, að ég ætti að fá sendan einn gám af AK47 frá Pútin. Það liggur við að ég haldi, að það sé nauðsynlegt. Aðeins nýtt stjórnmálaafl getur sópað þessum mönnum á brottu.

  • Guðbjörn Guðbjörnsson

    Björn I og fleiri:

    Ég hef nú verið sakaður um margt, en aldrei um að vera „illa gefinn bloggari“.

    Ég held að Björn I. sé í raun Pétur Blöndal og skrifi undir dulnefni!

    Ég man að ég hlustaði einu sinni á Pétur Blöndal fara með þessa ræðu:

    Hann stóð upp á fundi í Njarðvík og sagði að það ætti að banna fólki að taka lán fyrir húsnæði, bílum eða öðru. Reyndar ætti að banna öllum að taka lán. Fólk ætti að nurla sér saman fyrir íbúðum og bílum og öllu öðru sem keypt væri. Fyrirtæki ættu að gera það sama!

    Ég gat auðvitað ekki annað en hlegið og stóð upp og spurði hvað bankarnir ættu þá að gera? Á þá bara að leggja þá alla niður? Allur salurinn hló auðvitað!

    Pétur sagðist bara ekki skilja mig!

    Jú, sagði ég, við þurfum enga banka ef enginn tekur lán, heldur bara eina „ríkisgreiðslustofnun“!

    Jú, sagði Pétur, til að almenningur og fyrirtæki geti lagt sparnað sinn í bankana!

    Ég spurði aftur hvernig væri hægt að borga sparifjáreigendum eða lífeyrissjóðum vexti ef enginn væri lántakinn?

    Allir skellihlógu og Pétur þagði!

    Ég get svo „guðsvarið“ það, að þetta er dagsatt og ekki einu sinni ýkt!

    Pétur – alias Björn I. – það er gaman að ykkar líkum og spurningin hver er illa gefinn!

    Það er hins vegar skelfileg hugsun að menn á borð við Björn I. – afsakið Pétur B. – skuli hafa rekið hér bankakerfið og ráðið til starfa vitleysinga og glæpamenn á borð við Bjarna Ármannsson o.fl.

  • Guðbjörn Guðbjörnsson

    Magnús:

    Fyrri parturinn er hárréttur hjá þér, þ.e.a.s. að lélegir stjórnmálamenn hafi sett hér allt hausinn.

    Síðari hlutinn er hins vegar ekki réttur!

    Nú eru við aftur með lélega stjórmálamenn sem eru að reyna að moka flórinn og kunna það ekki.

    Það er enginn að tala um að hægt sé að „smella puttum og lækna allt“.

    Ég er hér að tala um að pakkanum sé skipt á einhvern hátt, þ.e.a.s. að bankarnir taki að hluta á sig það sem hefur gerst og við lántakar tökum afganginn.

    Núna er þessari stökkbreytingu lána upp á 25-30% velt algjörlega yfir lántakendur og það sem gerist auðvitað er að það sem fólk hefur verið greiða upp af lánunum eða hefur framkvæmt í húsum sínum o.s.frv. hverfur algjörlega.

    Eins og Steingrímur J. Sigfússon talar alltaf um þarf að fara „blandaða leið“.

    Björn I:

    Þú ert dóni og ég mun loka á þig!

    Leitaðu þér hjálpar!

  • Guðbjörn Guðbjörnsson

    Ég fjarlægði ummæli Björns I (bjoddn@internet.is/88.149.40.43) og óska ekki eftir nærveru hans á þessu vefsvæði framar.

  • Góð grein hjá Guðbirni og mér finnst við hæfi að skella inn bréfi mínu til Stínu, eða Jóns og Gunnu svona almennt. Bréfið er efni greinarinnar skylt.

    BRÉF TIL STÍNU

    Sometimes I feel down, on
    the Whipping Post.
    (The Allman Brothers Band)

    Elsku Stína
    Eins og þú veist
    þá hætti ég í lýrík & póesíu
    til að geta átt fyrir gluggunum
    – varkár og með vöðin á hreinu –
    og ég puðaði og puðaði og puðaði
    – eins og allt er þrennt
    og í plati heilagt í puðinu –
    í þúsundir ára í mannkyns-sögunni

    en nú er ekkert að gera í puðinu
    og banka- og ríkis-hirða fjárarnir
    búnir að ræna öllum sparnaðinum
    svo nú á ég ekki fyrir gluggunum
    – og það er hið grátlega fyndna –
    að nú get ég ekkert annað gert
    en að rifja upp eld-gamla takta
    og rissa galdra-rúnir á veggina
    og ljóða og ljóða og ljóða
    á alla þessa glugga-skratta
    húsnæðis-lána-bréfanna
    sem birtast mér sem fjárar
    stökkbreyttir í neðra
    og vafnings-skreyttir
    með verð-tryggðum böndum
    og vaxtaðir út úr öllum kortum
    og þramma nú yfir höfuð mitt
    með bólgu-fótum höfuðstólanna
    í pískandi spotti á allt mitt
    puð eftir puð eftir puð
    – eins og allt er þrennt
    og í plati heilagt í puðinu –

    Nei! Nú rissa ég galdra-rúnir
    á veggina og ljóða á gluggana
    og í spotti
    ríf ég öll bréfin
    og flyt níðvísur mínar
    yfir rifrildunum
    og bölva svo með látum
    langt fram eftir degi
    en undir kvöldið í hljóði

    og í því hljóði spyr ég þig nú
    í þínu basli – elsku Stína mín:
    Hvenær kemurðu með mér?
    Að æpa á ríkishirð fjáranna:
    – Löggjafarvaldið
    – Stjórnsýsluvaldið
    – Ríkis-hirða-valdið
    – Fjár-glæpa-valdið
    Vítis Fokkin valda Fokk!

    Með eld-gamalli baráttukveðju
    þinn vinur, Prómeþeifur í huga,
    sem enn geymir eldglóð í hjarta.

  • sigthor jonsson

    Guðbjörn Guðbjörnsson // 4.12 2010 kl. 15:38

    Tek undir það, raunverulega myndi ég vilja sjá að minnsta kosti 2 ný framboð sem myndu fá sæmilega kosningu, því fleirri sem deila því betri er niðurtaðan yfirleitt fyrir almenning.

    Það er eðlilegt að menn sem eru í stjórnunarstöðum reyni að gera samninga sem gætu fært gæfur til þeirra, það er eðli mannsins, það eru einfaldlega of fáir hugsjónamenn sem þrífast í pólitík, þess vegna tek ég vel undir að þú bjóðir þig fram en þó vil ég sjá eitt framboð í viðbót til þess að opna stjórnmál á Íslandi og koma í veg fyrir að spilling eins og viðgengst núna haldi áfram.

  • Guðbjörn “ Che “ Guðbjörnsson?

  • Þessi málflutningur hjá þér Björn I er fyrst og fremst sorglegur. Þú gerir ráð fyrir að allir sem gera ekki nákvæmlega eins og þú séu að gera eitthvað rangt eða séu vitlausir. En það er einmitt til marks um skort á tilfinningalegri greind að geta ekki sett sig í aðstæður sem eru ekki nákvæmlega eins og þær sem maður sjálfur er í. Það er þín heimska.

    Á öðrum þræði hér á Eyjunni er verið að að lýsa 800 milljarða lánveitingum Kaupthings til skúffufélaga. Af þessum peningum fæst lítið sem ekkert greitt og allt bendir til þess að þarna hafi menn verið að tæma bankann og moka verðmætum ofan í vasa útvaldra. Tilsvarandi þræðir eru til um alla hina bankana. Allir eru sammála um það á þessum þráðum að þetta hafi verið vítaverður rekstur.

    Hér fyrir tveimur mánuðum síðan þá ræddum við líka á nokkrum þráðum ábendingar Gunnars Tómassonar um að bankarnir hefðu skráð gengistryggð lán sem gjaldeyriseign og þannig falsað gjaldeyrisjöfnuð bankana um 2800 milljarða, sennilega með vitund Seðlabanka Íslands. Flestir voru sammála um að þetta væri því sem næst landráða starfshættir enda augljóslega til þess fallið að rústa gjaldmiðlinum með tilheyrandi hörmungum fyrir lántakendur í þessu landi.

    Þegar kemur svo að því að gera upp afleiðingarnar af þessari starfsemi þá er enginn hörgull á mannskap sem heimtar að menn borgi það sem þeir skrifuðu undir og gleyma þá viljandi öllu um þá skipulögðu brotastarfsemi sem varð til þess að skuldir fólks stökkbreyttust.

    Ég minni á að ennþá eigum við eftir að sjá niðurtöður sérstaks saksóknara. Það er raunhæfur möguleiki að þær sýni að bankarnir hafi lánað í vondri trú og forsendur fyrir innheimtu skulda í gegnum nýju bankana því brostnar.

    Gömlu bankarnir eiga bara að bæta það tjón sem þeir hafa valdið lántakendum og þar með talið þeim sem sitja uppi með stökkbreyttar skuldir hjá Íbúðalánasjóði og Lífeyrissjóðum. Það þýðir að kröfuhafar í þrotabú gömlu bankana eiga að fá þeim mun minna af verðmætum úr þeim. Ef stjórnvöld hafa samið um eitthvað annað þá eru það afglöp sem landsmenn allir sitja uppi með.

  • Guðbjörn Guðbjörnsson

    Sigþór:

    Ég tel nokkuð einsýnt að VG klofni og að Lilja Mósesdóttir og félagar bjóði fram og þá hugsanlega með Hreyfingunni – allavega kemur nýtt framboð á vinstri vængnum.

    Síðan er nokkuð ljóst að það er óánægja með gamalla Alþýðuflokksmanna og hluta Framsóknarflokks og síðan þessi 10-12% sem eru búin að yfirgefa Sjálfstæðisflokkinn. Það er eins víst að það spretti fram einhver frjálslyndur miðjuflokkur, hvort sem það verður á mínum vegum eða annarra, því eftirspurnin er einfaldlega þarna.

    Í mínum augum er það ekki sáluhjálparatriði að ég sé þarna í forustu, heldur hitt að málefnin séu í lagi.

    Við verðum að taka á spillingunni og moka út!

    Við verðum að taka á fjármálakerfinu, sem enn er fullt af gjöspilltu liði!

    Við verðum að taka á stjórnkerfinu, þar sem allt of margir gamlir pólitískir hundar ráða enn ríkjum!

    Við verðum að reyna að ná ásættanlegum samningi við ESB og taka upp evru, en að öðrum kosti – þ.e.a.s. ef samningurinn er ómögulegur – að taka upp evruna einhliða og það þrátt fyrir andstöðu sambandsins!

  • Svo langar mig að benda á grein af Svipunni sem heitir:

    „Öll íslensk bankalán eru ólögleg“

    http://www.svipan.is/?p=19898

    Hún mun vera eftir fyrrverandi dómara.

  • sigthor jonsson

    Tek vel undir, og vona svo innilega að þetta komi til með að verða rauninn, maður er hræddastur um það að menn af kjarkleysi hoppi aftur á gamla hræðsluáróðurinn og þori ekki að kjósa neitt nýtt….

    En eins og einhver sagði, þar sem er líf, þar er von…

    Og það er svo sannarlega líf í Íslenskum jaðarstjórnmálum í dag.

  • Guðbjörn Guðbjörnsson

    Sigþór:

    Þetta er hárrétt hjá þér og þetta sáum við í síðustu kosningum.

    Þessi hugsunarháttur almennings – að þora ekki að kjósa ný framboð – er helsta ástæðan fyrir því að engar breytingar verða á íslenskum stjórnmálum.

    Nær allir segja það sama við mig, þ.e.a.s. að þetta sé vonlaus barátta hjá mér, Íslendingar kjósi alltaf þegar til kemur gamla góða fjórflokkinn!

    Ef það er rétt, þá mun ég alfarið hætta afskiptum af stjórnmálum eftir næstu kosningar og snúa mér að öðru!

  • Ég gat svo sem ekki vitað að ummæli þín yrðu fjarlægð á meðan ég skrifaði mín Björn I.

    Þetta er hins vegar sú áhætta sem þú tekur með svona ritsóðaskap. Það er ekki hægt að gera ráð fyrir að maður fái hann alltaf birtann.

    En ef þig langar í rökræður þá getur þú dundað þér við að fara í gegnum röksemdafærslur dómarans í greininni á svipunni. Sjáðu hvað þú kemst langt með það.

  • Friðrik Sig

    Frjálslyndur miðjuflokkur er líklegur til árangurs. Hann þarf að vera án vafninga og kúlulánakónga. Hann þarf líka að setja sér það markmið að þingmenn sitji ekki nema hámark tvö kjörtímabil. Það mun draga úr og vonandi útrýma spillingu í íslenskum stjórnmálum að setja hámark á setu alþingismanna. Vona að það verði tillaga stjórnlagaþings að svo verði.

  • Íslendingur.

    7 Des. http://www.bankrun2010.com/

    Hvað skiptir máli lengur hvort það séu bankar eða ekki.
    Eina leiðin út úr ruglinu er að taka af þeim völdin sem hafa og byrja upp á nýtt.

    Við vorum kannski of herskáir hér á árum áður, og skömmust okkar fyrir að sýna reiði. En ég held að reiðinn verði að koma út og ljúka þessum málum.

  • Guðbjörn. Það er verðugt verkefni að sameina allar þessar ónægjuraddir undir eitt merki, Lýðveldið Island. ESB er engin lausn. En eins og þú bendir réttilega á flytja Islendingar helst til Noregs, það mætti bæta við Færeyjum og Grænlandi. Allt góð lönd laus við ESB sýkilinn.

  • Það munu fara miklu fleiri en 20,000 til 30,000 manns flytja frá Íslandi. Ætli talan verði ekki nær því að vera 40,000 til 60,000 manns þegar upp verður staðið.

    Þetta mun verða rúmlega 2/3 hlutar af því unga fólki sem býr á Íslandi í dag. Þar sem ástandið mun sýst batna á Íslandi á næsta ári, og meirihluti þjóðarinnar vill ekki breyta neinu á Íslandi til lengri tíma (andstaða við ESB aðild osfrv.).

    Á Íslandi býr þjóðfélag á hallandi fæti og mun verða það svo lengi sem sjálfshagsmuna-hugmyndafræðin ræður ríkjum á Íslandi.

  • Margrét S.

    Frábær grein hjá þér Guðbjörn eins og alltaf.
    Það sem þú segir um verkalýðshreyfinguna er hárrétt. Hún hefur eingöngu unnið fyrir peningaöflin, fjármagnseigendur. Þeir segjast alltaf þurfa að passa upp á lífeyrissjóðina. Skítt með þá sem vinna og sjá ekki fram úr neinu vegna óréttlátrar verðtryggingar sem tryggir það að sjóðirnir tapa aldrei. Þeir geta verið með sjimpansa apa sem framkvæmdstjóra vegna þess að það er alveg sama hvað gerist, þeir fá allt bætt með vaxtavöxtum, jafnvel þegar áfengi og tóbak hækkar. Já eða einhverjir skattar hækka, þá þarf að hækka höfuðstól allra íbúðalána líka. Hversu lengi eigum við að sætta okkur við þetta? Ég er í sömu stöðu og þú Guðbjörn, búin að tapa tvisvar, er á miðjum aldri og er gjörsamlega búin að fá nóg af þessu þjóðfélagi, hvernig menn geta hugsað sér að koma fram við fjölskyldufólk sem gerði það eitt af sér að leggja sparnaðinn í fasteign og lifa spart til að eignast eitthvað. Ég vil hreinsa út úr verkalýðsfélögum og lífeyrissjóðum. Nema Villi á Akranesi, ég vil sjá fleiri eins og hann, raunverulegan mann fólksins. Mikið vildi ég sjá nýtt stjórnmálaafl sem gæti kannski með Hreyfingunni komið á fót ríkisstjórn sem gæti verið raunveruleg ríkisstjórn fólksins, ekki gjörspillt lið sem er eins og erfðaprinsar á alþingi að verja hagsmuni ættar, venslafólks og klíkunnar. Burt með fjórflokkinn!

  • Launsir ríkisstjórnarinnar á skuldavanda eru sanngjarnar ! Vissulega var innistæðum bjargað enda var slíkt mögulegt á sínum tíma. Þær eru nú skattlagðar með eignasköttum og neikvæðum raunvöxtum. Aðrar fjárfestingar sbr. steypa og hlutabréf eru ekki vernduð og ekki raunhæft að ganga lengra í því. Hinsvegar er stóra vandmálið almenn lífskjör, atvinnu og vaxtastig. Í raun eru heimilin eftir þetta að greiða minna en kostanður við að byggja er. Slíkt mun leita jafnvægis og verður það einungis gert með sterkara gengi og lægri launum sem gengur ekki. Því þarf að einbeita sér að því sem máli skiptir svo lífskjör geti haldis á vestrænum standard og verður það ekki gert nema með erlendri fjárfestingu og nýjum störfum

  • Takk fyrir dúndurgóða grein.
    Mín staða hefur verið þannig að annaðhvort vera í skilum með lánin eða eiga fyrir mat. Þori ekki að bæta innheimtukostnaði við óðaverðtryggðu lánin mín og á því 18.000 til að lifa af mánuðinn. Eignin mín í íbúðinni er gufuð upp. Er farin að sjá mig meira og meira sem launaþræl og finnst því að það myndi einfalda málin að krafan væri: HÚSNÆÐI OG FÆÐI!
    Þetta er staðan hjá láglaunafólki.

  • Tumi Kolbeinsson

    Þarna er ég algjörlega sammála þér Guðbjörn og það gerist nú ekki á hverjum degi.

  • Eins gott að vera hættur að drekka. Það bjargar manni frá TOTALY F***** ástandinu. Maður trúir varla því sem er að gerast hérna. Í nafni Guðanna gerum eitthvað!

  • Aðskilnaðarstefna staðfest.

  • Jón Gunnarsson

    Takk Guðbjörn fyrir góða grein!
    Er ekki nó komið af þessu vælubílsbulli! Það þarf að hlynna að þeim atvinnugreinum sem búa til gjaldeyrir fyrir þjóðarbúið og skera niður afætustofnanir sem skyla engu eins og nýja Harpan sem verður sjálfsagt tveggja miljarða rekstrardæmi (tap og aftur tap fyrir þjóðarbúið) ásamt mörgum öðrum gæluverkefnum fyrir svonefnda listamenn þjóðarinnar. Umhverfismat hvað gerir það fyrir framkvæmdir í almannaþágu? Gerir framkvæmdir tuttugu til þrjátíuprósent dýrari og skaffar háskólaliði atvinnubótavinnu sem skylur ekkert eftir nema tafir og meiri skattpíning fyrir almenning. Svo kæra þeir hver fyrir annan svo hægt sé að framkvæma nýtt mat með tilheyrandi kosnaði.

  • Margrét S.

    SAS hvernig getur þú sagt að þetta sé sanngjarnar lausnir?

    Tökum dæmi:

    Fjölskylda 1 sparaði og nurlaði, vann mikið og leyfði sér ekkert, keyrði um á gömlum bíl, fór í ódýr frí og keypti ódýr IKEA húsgögn. Þessi fjölskylda átti 10 milljónir í eigið fé í byrjun árs 2006 og keypti sér 4ra herbergja íbúð á 25 milljónir. Tók 15 milljónir verðtryggt lán.

    Fjölskylda 2 sparaði ekkert, lifði hátt, keyrði um á lúxusbílum, fór í skíðaferðir og sólarlandaferðir og keypti dýrustu og fínustu húsgögnin.
    Þessi fjölskylda keypti sér sambærilega íbúð í byrjun árs 2006 á 25 milljónir. Þar sem fjölskyldan átti ekkert eigið fé þá tók hún 100% lán, 25 milljónir.

    Hver er svo staðan eftir „aðgerðir“ ríkisstjórnarinnar:

    Fjölskylda 1, lánið stendur í 22,5 milljónum, íbúðin metin á 22 milljónir og 10 milljóna sparnaðurinn er HORFINN. Þessi fjölskylda fær enga leiðréttingu.

    Fjölskylda 2, lánið stendur í 37,5 milljónum, íbúðin metin á 22 milljónir. Þessi fjölskylda fær afskrifaðar 13,5 milljónir.

    Þessar tvær fjölskyldur standa sem sagt nánast jafnfætis í dag. Önnur fjölskyldan, sú sem sýndi ráðdeild og var sparsöm TAPAR ÖLLU SÍNU EIGIN FÉ.

    Hvernig getur nokkur maður sagt að þetta sé sanngjarnt?

  • Guðbjörn Guðbjörnsson

    Seiken:

    Takk fyrir tengilinn á þessa grein eftir dómarann, en allir sem hafa áhuga á þessum málum ættu að lesa hana:

    http://www.svipan.is/?p=19898

    Friðrik Sig.:

    Þú getur reitt þig á að ég verð aðeins í og kýs óspilltan stjórnmálaflokk í næstu kosningum, sem er laus við frambjóðendur, sem tengjast vafningum eða kúlalánastarfsemi.

    Við getum hins vegar ekki bannfært allt þetta fólk um alla framtíð og einnig það þarf að fá uppreisn æru, en í pólitík mun þetta fólk aldrei hafa neitt að gera framar. Við þurfum hins vegar á þessu fólki að halda við uppbygginguna, því margt að því eru bestu dætur og synir þessa lands, sem lendu í höndunum á siðspilltum glæpamönnum og létu blekkjast. Hinum siðspilltu sjálfum ber hins vegar að refsa og gera útlæga úr íslensku fjármálalífi um alla tíð!

    Íslendingur:

    Reiðin birtist stjórnmálamönnunum strax í kjölfar hrunsins, en Samfylkingin og VG halda samt að þeir geit haldið áfram við sama heygarðshornið – „Business as usual“.

    Nei, fólkið vill sjá breytingar og það sést best á því hverjir eru á stjórnlagaþinginu. Reyndar var um gjörsamlega misheppnað kosningafyrirkomulag að ræða. Sjálfur hef ég bent á þessa vankanta við „stjórnlaust persónukjör“ í fjöldanum allum af pistlum.

    Björn E:

    Jú, ESB er hluti af lausninni á vandamálinu og ég bið þig í mesta bróðerni að kynna þér vel rökin með og á móti aðild.

    Ég var harður andstæðingur ESB aðildar fyrir 4-5 árum en skipti um skoðun eftir að hafa skrifað um þetta 150 síðna mastersritgerð og lesið nokkur þúsund síður um málið, auk þess að taka viðtöl við nokkra tugi fylgjenda og andstæðinga ESB.

    Jón Frímann:

    Þetta er einmitt talan, sem ég nefni ef fleiri en unga fólkið fer, en það óttast ég einmitt mest að 40-60.000 manns fari og hér brotni bókstaflega allt saman!

    Margrét S.:

    Já, og það er hægt fyrir okkur að taka völdin í þessum félögum og samtökum ef við viljum það, en það fyrsta eru að skipta um stjórnir í öllum verkalýðs- og stéttarfélögum og síðan að taka restina.

    Þegar við erum komin með stjórnina í félögunum og samböndunum er að taka stjórnina í lífeyrissjóðnum – að svo miklu leyti sem það er hægt vegna þess að atvinnurekendur hafa þar töglin og hagldirnar. Hins vegar væri hægt að gera það í gegnum pólitíkina og koma atvinnurekendum út úr þessu, enda eru þetta okkar peningar en ekki þeirra og því veit ég ekki hvað þeir eru að gera þarna „in the first place!“. Auðvitað voru það fulltrúar atvinnurekenda, sem fyrst og fremst eiga sök á því að svo mikið af peningum úr lífeyrissjóðunum voru fjárfestir í rugluðum útrásarverkefnum, þar sem allir peningarnir töpuðust. Þarna er um hundruð milljarða að ræða eða mörgum sinnum stærri upphæð en í þessum húsnæðislánum.

    Kona í skilum:

    Þú ert ekki ein á báti, heldur erum við að tala um tugþúsundir manna, sem basla eins og þú. Reyndar eru mínar ráðstöfunartekjur mikið hærri eftir að ég er búinn að greiða alla reikninga. En það er ekki beisið fyrir mig og tvær unglingsstúlkur, sem hjá mér búa!

    SAS:

    Ég er ekki sammála fyrri hlutanum hjá þér, en síðari hlutinn er nákvæmlega eins og ég sé hlutina. Einmitt í þeim hluta er ríkisstjórnin mest að klikka, því ef hjólin kæmust af stað – t.d. með virkjunarframkvæmdum og stóriðju – þá fækkaði fólki á atvinnuleysisskrá og skatttekjur myndu hækka. Þá væri hægt að lækka aftur skatta og fara í framkvæmdir hjá ríkinu, sem myndu þýða enn meiri tekjur hjá ríkinu o.s.frv. Þá væri hægt að hækka laun í einkageiranum og hjá ríkinu, neysla kæmist á stað, sem myndi enn auka peningaflæðið og inntekts skatta.

    Þetta er gamla kapítalíska aðferðin, sem byggist á aukinni framleiðslu á vöru til innanlandsbrúks og útflutnings og auðvitað auknum hagvexti, auknum kaupmætti, minnkandi atvinnuleysi, afgangi á rekstri ríkissjóðs, afgangi á viðskiptum við útlönd o.s.frv.

    Þetta gerði Sjálfstæðisflokkurinn alveg rétt á árunum 1991 – 2003! Þeir klikkuðu hins vegar á því að taka upp frjálshyggjuna sem trúarbrögð og afnema nær allt eftirlit og koma hér ekki upp lögum þegar bankarnir voru einkavæddir.

    Spillingin á árunum 1991 – 2008 var hins vegar gífurleg, hvort sem horft er til kvótakerfisins, veitingu opinberra embætta eða einkavinavæðingar fyrirtækja og banka.

    Af þessum sökum verður þjóðin að snúa sér annað til að koma í framkvæmd því blandaða markaðshagkerfi, sem við höfum komið okkur saman um – og er líkt og á Norðurlöndunum og víða í Evrópu – og er blanda að kapítalisma og sósíaldemókratisma!

    Hvorugur ofangreindra „isma“ er góður í óhófi!

    Tumi:

    Gott að við erum þó einu sinni sammála – ekki satt!

    Gorgeir:

    Já, gerum eitthvað!

    Erum við menn eða mýs?

    Björn:

    Já, því miður er sú stefna staðfest með þessu og lítið annað að gera en að taka þá stríðið við ríkisstjórnina og peningamennina, því ekki ætla ég að fara níða skóinn af lífeyrisþegum og þeim sem minnst bera úr bítum. Þeir eiga annað og betra skilið af okkur en það!

  • Guðbjörn Guðbjörnsson

    Margrét S:

    Ég hef nú kannski ekki verið sá sparsamasti – viðurkenni það – en ég var heldur enginn bruðlari.

    Ég stend samt sem áður í sporum fjölskyldu 1.

    Stærstur hluti af mínu eigin fé er að þurrkast út.

    Árið 2005 átti ég 50% í húsinu en nú á ég – ef húsið selst á annað borð – 20%!

    Og SAS kallar þetta bara sisona RÉTTLÆTI!

  • Mér varð það ljóst fljótlega eftir kosningar 2009 að ekkert minna dyggði til. Hvenær fólk almennt áttar sig á því er vandsvarað. Hvort það muni svo gerast getur tíminn einn svarað en það er einnig undir okkur sjálfum komið.
    Kveðja að norðan.

  • Sævar Már Gústavsson

    Guðbjörn:

    Mér sýnist þú vera koma einhverjum straumum í samfélaginu í gang. Allavega virðast netheimar fjalla mikið um þín skrif.

    Alls staðar sem ég fer og ræði við fólk um pólitíkina í dag þá kemur alltaf það sama upp. Spilling, spilling og spilling. Hin almenni borgari virðist vera átta sig á þessu, hann er að fá ógeð.

    Núna er ég að lesa bókina Löglegt en siðlaust sem fjallar um stjórnmálasögu Vilmundar Gylfasonar. Það sem mér finnst sorglegast við lesturinn er að núna 27 árum eftir andlát hans, þá hafa hlutirnir í flokkunum breyst ömurlega lítið. Flokkarninr eru ennþá hagsmunasamtök fyrir ákveðna aðila sem eru af réttum ættum.

    Við verðum að koma sterkir fram. Flokkur fólksins getur mögulega verið leiðinn út úr þessu ógeði. Ísland hefur alla tíð verið fast í kreddum og íhaldssemi. Núna er tíminn til að koma landinu áfram og búa til samfélag byggt á mannauði, þekkingu og frjálsri hugsun. Veitum fólkinu hjálp til sjálfshjálpar.

    P.s.
    Tumi, ef þú værir oftar sammála honum Guðbirni þá hefðum við ekki fengið jafna skemmtilegar rökræður í gegnum tíðina og raun ber vitni.

  • Viðar Ingvason

    Það er löngu ljóst að á Íslandi mun ekkert breytast fyrr enn mafían fer að sjá uppþot og óeirðir með almennri þáttöku borgaranna.

  • Guðbjörn Guðbjörnsson

    Arinbjörn & Sævar:

    Ef það er eitthvað sem þarf að berjast á móti í þessu þjóðfélagi þá er það hin landlæga spilling, sem hefur fylgt okkur frá ómunatíð.

    Ég fann þetta í grein um daginn á netinu, sem birtist laugardaginn 24. júní, 1995 í menningarblaði/lesbók Morgunblaðsins og heitir „Jónsbókarmenn“ og er eftir Árna Arnarson sagnfræðing:

    Jarðakaup og auðsöfnun voru tómstundagaman íslenskra höfðingja. Brynjólfur biskup Sveinsson safnaði jörðum í klösum og talið var að Oddur biskup:

    „…væri mjög eptir jarðakaupum hvar þau feingjust, þótti sumum erfitt að fá börnum sínum skólaveru eður kenslu nema jarðarpartur eður veð í jörðum, ef jarðir áttu, væru með þeim gefnar eður í té látin ef girnileg voru.“

    Þetta var að mörgu leyti gerspillt samfélag. Spillingin var þó gagnrýnd af ýmsum. Um tilhneigingar Odds biskups segir Jón Halldórsson í Biskupasögum sínum:

    „… þar hann studdi og styrkti til embættis og hinna betri prestakalla ætt- og tengdamenn sína, jafnvel líttlærða og atgervislausa, en lærðir menn og vel að sér útiluktust fyrir hinna skuld;…“

    Hefur hér eitthvað breyst á nokkur hundruð árum?

    Nei, nánast ekkert nema að þetta eru hugsanlega aðrar fjölskyldur og þó sennilega eru þetta bara sömu ættirnar en ný nöfn!

  • Guðbjörn Guðbjörnsson

    Viðar Ingvarsson:

    Það er búið að reyna slíka uppreisn.

    Það sem við þurfum er annarskonar uppreisn og þá á ég við valdayfirtöku á Alþingi og innan verkalýðs- og stéttarfélaga og heildarsamtaka þeirra og í framhaldi valdayfirtaka lífeyrissjóðinna, þar sem 1800 milljarðar króna eru í vörslu manna, sem eru ekki að hugsa um okkar hag, heldur sinn eiginn.

    Atvinnulífið stjórnar „okkar“ lífeyrissjóðum og hefur alltaf gert. Af þeim sökum töpuðust hundruðir milljarða í útrásinni og bólunni, sem hér varð!

    Ég trúi á yfirburði hins þróaða blandaða markaðshagkerfis, en gallinn er sá að hér ríkir ekki slíkt kerfi, heldur spillt klíkukerfi nokkurra fjölskyldna.

    Almenningur þarf að taka völdin og koma hér á blönduðu markaðshagkerfi líkt og gerist á Norðurlöndunum og löndum Mið-Evrópu.

  • Sævar Már Gústavsson

    Maður einhvern veginn á ekki til orð um hvernig þetta land hefur byggst upp. Spillingin virðist vera föst í þjóðarálinni. Það þarf hugarfarsbyltingu hérna. Eina sem virkar. Sjálfstæða hugsun takk fyrir!!

  • Mín tímabunda ráðning rennur út um áramót, veit ekki enn hvort ég fæ framlengingu. Ég fæ fyrirsjáanlega enga leiðréttingu við þessar aðgerðir ríkisstjórnar enda hef ég eins og þú passað mig á að yfirveðsetja mig ekki. Ætli janúar fari ekki í að leita að vinnu í Noregi eða Svíþjóð. Ríkissjóður verður þá af þessum 3 milljónum sem ég hef borgað í skatt.

  • Margrét S.

    Stampur, ég skil það vel að þú ætlir að leita að vinnu annars staðar en á Íslandi. Ég held að við sem eftir verðum hér á skerinu munum sjá á bak margra t.d. iðnmenntaðra og heilbrigðisstarfsfólks t.d. hjúkrunarfræðinga og lækna á komandi misserum. Þessar stéttir eiga auðveldara með að finna sér vel launað starf í Noregi og Svíþjóð.

    Annað, hvers vegna er fólk svona hrætt við ESB? Eru LÍÚ og bændahöfðingjarnir búnir að heilaþvo okkur? Hvers vegna eru svona margir á móti því að við hin fáum að sjá samninginn? Hvers vegna er Sjálfstæðisflokkurinn svona mikið á móti ESB? Ég get ekki séð að þau lönd sem eru aðilar að ESB séu neitt að missa sjálfstæði sitt.
    Ekki langar mig til að hafa krónuna sem mynt áfram, hún er tæki til að lækka laun okkar reglulega og hækka lánin okkar. Tæki sem tryggir að skóflupakkið heldur áfram að moka fyrir fjármagnseigendur.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af sex og tveimur? Svar:

Höfundur