1. Í viðtali við Sigmund Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, á Sprengisandi í morgun – http://visir.is/section/MEDIA98&fileid=CLP19477 – vakti Sigurjón M. Egilsson máls á “umframhagnaði” í sambandi við umræðuna um veiðigjald. (mín. 3:00) 2. “Umframhagnaður” er vel þekkt hagfræðihugtak, sbr. eftirfarandi: A special tax that is assessed upon income beyond a specified amount, usually in excess of a […]
Dómur Hæstaréttar frá 16. júní 2010 í máli nr. 153/2010 byggði á ráðgjöf Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins um vaxtakjör á gengistryggðum krónulánum eftir að þau voru dæmd ólögleg. Ráðgjöfin endurspeglast í forsendum dóms Hæstaréttar: „Þegar virt er að ákvæðið um gengistryggingu í samningi aðilanna er ógilt og bein og órjúfanleg tengsl eru samkvæmt framansögðu milli […]
Í aðdraganda kosninganna 27. apríl sl. leyfði ég mér að kalla hugmyndir XB um fjármögnun leiðréttinga á verðtryggðum húsnæðisskuldum heimilanna „endemis rugl“. Í síðustu viku tjáði annar hagfræðingur sig um málið og sagði hugmyndirnar vera „galnar“. Í beinni útsendingu á Stöð2 daginn fyrir kosningar var Sigmundur Davíð spurður um viðbrögð hans við umsögn minni. Hann […]
Hæstiréttur gerði alvarleg mistök í dómi nr. 471/2010, frá 16. september 2010 um gengistryggingu. Þar var ranglega staðhæft að „fulljóst‟ væri að ólögmæti gengistryggingar krónulána hefði í för með sér að þeir vextir sem tilgreindir væru í viðkomandi lánasamningum hlytu að teljast vera ógildir. Því yrði að líta svo á að slíkir lánasamningar hefðu kveðið […]
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra sátu fyrir svörum í Kastljósi 23. maí. „Á að afnema verðtrygginguna?‟ spurði Helgi Seljan. „Það er rætt um það í stjórnarsáttmálanum að horfa sérstaklega á neytendalánin,‟ svaraði Bjarni, „og það er sérstakt markmið beggja flokka og það var stefnumál hjá okkur að draga mjög úr notkun hennar […]
Skuldaleiðrétting verður ekki afgreidd fyrr en búið er að ákveða hvernig hún verði fjármögnuð. Enn er (væntanlega) langt í land með samninga við kröfuhafa þrotabúa gömlu bankanna og því a.m.k. jafnlangt í „svigrúm“ til fjármögnunar úr þeirri átt. Ef biðin eftir „svigrúmi“ verður of löng, þá verður fjármögnunar leitað annars staðar – þ.e.a.s. hjá Seðlabanka […]