© Gunnar Tómasson
29. janúar 2015.
Heimkoma Ganglera
Inngangsorð.
Snorri Sturluson og Gylfaginning hafa verið mér umhugsunarefni í 40 ár. Allt frá upphafi taldi ég líklegt að Gylfaginning væri nokkurs konar andleg sjálfsævisaga Snorra – að umbreytingu Gylfa konungs í Ganglera væri ætlað að vísa til þeirrar myndbreytingar á andlegum þroska Snorra sem kallast metamorphosis.
Í Njálu eru bústaðaskipti Björns Kaðalssonar og Þorgeirs skorargeirs að boði Kára Sölmundarsonar tákn myndbreytingar úr Homo Anatomicus – Birni – í Homo Sapiens – Þorgeir.
Gylfaginning er því ekki einungis andleg sjálfsævisaga Snorra Sturlusonar, heldur tel ég hana endurspegla dæmi úr raunheimi um andlega þróunarkenningu löngu fyrir daga Darwins.
Í dag rann upp fyrir mér ljós að Táknmálslykill Reykholtsmáldaga býður heim túlkun á lokakafla Gylfaginningar sem kemur heim og saman við tilgátuna. Texti hans er eftirfarandi:
Því næst heyrði Gangleri dyni mikla hvern veg frá sér ok leit út á hlið sér. Ok þá er hann sést meir um, þá stendr hann úti á sléttum velli, sér þá enga höll ok enga borg. Gengr hann þá leið sína braut ok kemr heim í ríki sitt ok segir þau tíðendi, er hann hefir sét ok heyrt, ok eftir honum sagði hverr maðr öðrum þessar sögur.
En æsir setjast þá á tal ok ráða ráðum sínum ok minnast á þessar frásagnir allar, er honum váru sagðar, ok gefa nöfn þessi in sömu, er áðr eru nefnd, mönnum ok stöðum þeim, er þar váru, til þess, at þá er langar stundir liði, at menn skyldu ekki ifast í, at allir væri einir þeir æsir, er nú var frá sagt, ok þessir, er þá váru þau sömu nöfn gefin. Þar var þá Þórr kallaðr, ok er sá Ása-Þórr inn gamli.
Ég tel hugmyndafræði Gylfaginningar byggja á hugmynd Platons um Heimssál, en tölugildi hennar er 105,113. (Sjá bloggfærslu mína, Heimssál Platons – I, dags. 24. ágúst 2014.)
***
I. Heimkoma Ganglera
(Gylfaginning, 54. k.)
14393 = Því næst heyrði Gangleri dyni mikla
16178 = hvern veg frá sér ok leit út á hlið sér.
27381 = Ok þá er hann sést meir um, þá stendr hann úti á sléttum velli,
10406 = sér þá enga höll ok enga borg.
21510 = Gengr hann þá leið sína braut ok kemr heim í ríki sitt
19469 = ok segir þau tíðendi, er hann hefir sét ok heyrt,
24372 = ok eftir honum sagði hverr maðr öðrum þessar sögur.
133709
II. Holdtekning Monads
(Túlkun GT)
105113 = Heimssál Platons
-1 = Monad holdtekinn
5596 = Andlig spekðin
11359 = Snorri Sturluson
4642 = Mörðr gígja
7000 = Microcosmos – Maður sem Ímynd Guðs
133709
III. At menn skyldu ekki ifast í, at allir væri einir…
(Gylfaginning, 54. k.)
18465 = En æsir setjast þá á tal ok ráða ráðum sínum
24629 = ok minnast á þessar frásagnir allar, er honum váru sagðar,
17554 = ok gefa nöfn þessi in sömu, er áðr eru nefnd,
21706 = mönnum ok stöðum þeim, er þar váru, til þess,
22723 = at þá er langar stundir liði, at menn skyldu ekki ifast í,
26231 = at allir væri einir þeir æsir, er nú var frá sagt, ok þessir,
13744 = er þá váru þau sömu nöfn gefin.
21356 = Þar var þá Þórr kallaðr, ok er sá Ása-Þórr inn gamli.
166408
IV: Lífshlaup Mann-Skepnu
(Túlkun GT byggð á RÍM Einars Pálssonar)
Forsjónin
6306 = Prometheus
Sköpun Veraldar/Manns
1000 = Heimsljós
5003 = Þrídrangr
Njáluvangur
7196 = Bergþórshváll
6067 = Miðeyjarhólmr
3027 = Helgafell
Heimkoma
4000 = Logandi Sverð
133709 = Heimkoma Ganglera
100 = Sögulok
166408
***
Reiknivél sem umbreytir stöfum í tölugildi er á netinu:
http://www.light-of-truth.com/ciphersaga.htm