© Gunnar Tómasson
2. júní 2015.
Inngangsorð
Er rjóminn af fræðimennsku á sviði íslenzkra fræða undanrenna?
Sigurður Nordal taldi svo vera oftar en ekki. Í inngangsorðum að útgáfu hans að Völuspá gagnrýndi hann „ritskýrendur og fornfræðimenn vorra daga” fyrir „skammsýni og hugleysi‟. „Svo mikill ljóður sem það er á fræðimanni að leggja andleysi sjálfs síns inn í annarra rit, þá er hitt engu síður ábyrgðarhluti að eigna verkum löngu liðinna stórmenna sitt eigið andleysi og reyna að hneppa þá í stakk, sem sniðinn er við dverga hæfi. Afleiðingar þessa moldvörpu-hugsunarháttar verða jafnillar fyrir fræðimennina sjálfa og almenning. Enginn er fær um um að rannsaka einstakt svið, svo að fullu gagni komi og ekkert fari til spillis, nema hann kunni að sjá það í sambandi við lífið og menninguna í heild sinni. Og enginn er í raun og veru fær um að skýra alþýðlega frá öðru en því, sem hann þekkir út í æsar. Nú fer svo alltof oft, að mentaður almenningur fælist rit fræðimanna, þykist finna þar steina fyrir brauð. En um leið er hætt við, að viðfangsefnin falli í hendur reyfara, sem krydda þau með ábyrgðarlausu andríki og lesendurnir verða þessum gutlurum að bráð.” (Fylgirit, Árbók Háskóla Íslands, 1922-23, bls. 13-14).
Ritsafn Einars Pálssonar, Rætur íslenzkrar menningar, er nánast alfræðiorðabók um þá hugmyndafræði sem ætla má að hafi mótað rithátt Snorra Sturlusonar og Sturlu Þórðarsonar. Þar sem „forn höfuðskáld‟, sem Snorri nefnir svo í 8. kafla Skáldskaparmála Eddu (sjá hér að neðan) notuðu svokallaða gematríu, þar sem einstakir stafir stafrófsins hafa ákveðið tölugildi, til að „kveða hulit‟ um viðfangsefni goðsagna, þá fannst mér liggja beint við að ætla að Snorri og Sturla hafi gert slíkt hið sama.
Vandinn var hins vegar sá að þess sáust engi merki í verkum þeirra að gematría kynni að búa þar undir. Ég hafði því augun opin fyrir vísbendingum í ritverkum 13. aldar í þá veru. Í ritsafninu Saga Íslands, sem kom út í tilefni 1100 ára Íslandsbyggðar 1974, rakst ég á eftirfarandi setningu í Reykholtsmáldaga frá tíð Snorra Sturlusonar, en máldaginn er elzta skinnhandriti sögunnar:
Skrín þat es stendr á altara meþ helgo domo gefa þeir
Magn oc Snorre at helfninge hvar þeirra oc es þetta
kirkio fé umb fram of þat es áþr es talet.
Hugtökin „skrín‟, „altari‟, „helgir dómar‟ voru hugsanlegar vísbendingar af því tagi sem ég hafði í huga, en vandinn var sá að hér örlar ekki á neinni gematríu. Mér datt hins vegar í hug að kanna hvort hún gæti hugsanlega falist í orðunum sjálfum. Eftir miklar bollaleggingar og tilraunir tókst mér að draga fram það sem ég hef kallað Táknmálslykil Reykholtsmáldaga – Saga Cipher á ensku:
A = 73; B = 116; C = K; D/Ð = 225; E = 228; F = 285; G = 325; H = 376; I/J/Y = 425; K = 449; L = 504; M = 542; N = 569; O = 660; P = 683; Q = 770; R = 821; S = 896; T/Þ = 923; U/V = 949; X = 1018; Z = 1094; W = V + V, og Æ = A + E.
—
I. At kunna skilja þat, er hulit er kveðit.
(Skáldskaparmál, 8. k.)
16349 = En þetta er nú at segja ungum skáldum,
15868 = þeim er girnast at nema mál skáldskapar
16723 = ok heyja sér orðfjölða með fornum heitum
23725 = eða girnast þeir at kunna skilja þat, er hulit er kveðit,
22969 = þá skili hann þessa bók til fróðleiks ok skemmtunar.
19899 = En ekki er at gleyma eða ósanna svá þessar frásagnir
17985 = at taka ór skáldskapinum fornar kenningar,
14787 = þær er höfuðskáld hafa sér líka látit.
19481 = En eigi skulu kristnir menn trúa á heiðin goð
17358 = ok eigi á sannyndi þessa sagna annan veg en svá
12776 = sem hér finnst í upphafi bókar.
197920
Fögr er hlíðin
(75. k. – M)
22833 = „Fögr er hlíðin, svá at mér hefir hon aldri jafnfögr sýnzk,
11702 = bleikir akrar ok slegin tún,
14946 = ok mun ek ríða heim aptr ok fara hvergi.‟
49481
Af Leikvelli Orðanna
4177 = Fiat lux!
7000 = Microcosmos – Örheimr/Maðr Ímynd Guðs
4884 = Reykjaholt
2307 = 23. sept.
1241 = 1241 A.D.
4000 = Logandi Sverð
23609
5902 = Hieros Gamos – Royal Intercourse – Creation
2307 = 23. sept.
1241 = 1241 A.D.
1000 = Kristnitaka
13159 = Ártíð Snorra fólgsnarjarls
23609
1 = Mónad/Guð
11931 = Táknmálslykill Reykholtsmáldaga
11000 = Þorgeirr Tjörvason
677 = EK
23609
Samtals: 197920 + 49481 + 23609 = 271010
II. Egill vaknar – Sturla Þórðarson skilur
271010
(Íslendinga saga 16. k.)
11358 = Maðr hét Egill Halldórsson.
11500 = Hann var af Mýramanna langfeðgum.
26039 = Hann var heimamaðr Snorra, þá er hann var í þessum ráðbrotum.
20797 = Egil dreymdi, at Egill Skalla-Grímsson kæmi at honum,
10288 = ok var mjök ófrýniligr.
21725 = Hann mælti: „Ætlar Snorri, frændi várr, í brott heðan?”
9919 = „Þat er mælt,” segir Egill.
24922 = „Brott ætlar hann, ok þat gerir hann illa,” segir draummaðrinn,
23907 = „því at lítt hafa menn setit yfir hlut várum Mýramanna,
32699 = þá er oss tímgaðist, ok þurfti hann eigi ofsjónum yfir þessu landi at sjá.”
6901 = Egill kvað vísu:
13562 = Seggr sparir sverði at höggva.
10700 = Snjóhvítt es blóð líta.
10436 = Skæruöld getum skýra.
10814 = Skarpr brandr fekk mér landa,
10814 = skarpr brandr fekk mér landa.
14629 = Ok sneri þá í brott. En Egill vaknar.
271010
III. Fögr er hlíðin – Jónas Hallgrímsson skilur
271010
(Gunnarshólmi – Prologus JH)
24031 = „Sunnan á Íslandi, í hjeraði því, sem gjeingur upp af Landeíum
23629 = millum Eiafjalla og Fljótshlíðar, er allmikjið sljettlendi,
14607 = og hefir firrum verið grasi gróið,
23275 = enn er nú nálega allt komið undir eirar og sanda, af vatnagángji;
39739 = á einum stað þar á söndum, firir austan Þverá, stendur efptir grænn reitur óbrotinu,
21501 = og kallaður Gunnarshólmi, því það er enn sögn manna,
33837 = að þar hafi Gunnar frá Hlíðarenda snúið aptur, þegar þeir bræður riðu til skjips,
12340 = eins og alkunnugt er af Njálu.
28379 = Þetta er tilefni til smákvæðis þess, sem hjer er prentað neðan við.”
221338
Platonskur bakgrunnur Njálu – Einar Pálsson skilur
(Rætur íslenzkrar menningar)
11110 = Jörð-Vatn-Loft-Eldr-Tími
14943 = Mörðr-Helgi-Grímr-Skarpheðinn-Kári
10 = Tíu-Mælandi Egilshaus – Tákn Föður
26063
Af Leikvelli Orðanna
(II að ofan)
5902 = Hieros Gamos – Royal Intercourse – Creation
2307 = 23. sept.
1241 = 1241 A.D.
1000 = Kristnitaka
13159 = Ártíð Snorra fólgsnarjarls
23609
Samtals: 221338 + 26063 + 23609 = 271010
***
Reiknivél sem umbreytir orðum í tölugildi er að:
http://www.light-of-truth.com/ciphersaga.htm