Sunnudagur 12.04.2009 - 19:09 - FB ummæli ()

Góð sambönd gulli betri

Þessi frásögn var í DV 25. febrúar 2006. Þarna eru saman komnir auðmenn, bankamenn, stjórnmálamenn og fjölmiðlamenn. Nú sverja stjórnmálamennirnir af sér öll tengsl við bankana og fyrirtæki auðmanna, hversu trúlegt sem það er. En þeir mega eiga það, banka- og auðmennirnir að þeir virðast hafa undirbyggt fyrirætlanir sínar vel og gætt þess að eiga inni greiða hér og hvar.

Íslenskir milljarðamæringar i Soho - DV 25.2.06

Íslenskir milljarðamæringar i Soho - DV 25.2.06

Flokkar: Eldra

«
»

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Ummæli

  • Hólmdís Hjartardóttir

    Enn og aftur takk

  • Árni H. Kristjánsson

    Takk takk takk,við Gunna þurfum á þér og Agli að halda svo plís ekki fá þér brimbretti og far með ÖLDUNNI .Jón

  • Hildigunnur Rúnarsdóttir

    heh, einhvern veginn skýtur þetta pínu á liðið sem segir Baug vera Samfylkingarmegin. Eða hvað? Man einhver eftir því að Jói í Bónus hefur alla tíð (?) verið flokksbundinn Sjálfstæðismaður, þó hann hafi átt í útistöðum við forystu flokksins?

    NB, ég er ekki fylgjandi Samfó…

  • Lára Hanna Einarsdóttir

    Herbert… þetta kemur mér ekkert í opna skjöldu. Ég er bara að minna á… 😉

    Valsól… næsti pistill á leiðinni. Hafðu opin augun…

  • Rómverji

    Nú fer um Sjálfstæðisflokkinn og Hannes Smárson. Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri er að brýna kutana. Hlýtur að vera.

    Eitt má Sjálfstæðisflokkurinn eiga. Hann hefur tryggt að í íslenskri stjórnsýslu er valinn maður í hverju rúmi. Kemur sér vel þegar á bjátar.

  • Nei nei … og Bjarni Ben á svæðinu .. núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins … sem sagðist engan útrásarvíking hafa séð …

    Þvílíkur lygalaupur … ætlar einhver að kjósa þennan flokk???

  • Ingibjörg Hinriksdóttir

    Þakka þér fyrir þessa upprifjun, sérlega athyglisverð í ljósi ummæla Bjarna Ben um að hafa ekki hitt Hannes Smárason. Tek líka undir með Valsól, það má gjarnan rifja upp REI málið.

  • Bjarni Ben staðhæfði í fréttum stöðvar tvö að hann hefði aldrei hitt Hannes Smárason. Svona eru Sjálfstæðismenn heiðarlegir. Lára Hanna þú mættir alveg koma með eina grein sem segði frá því hvernig REI málið þróaðist, Sjálfstæðismenn eru núna að reyna halda því fram að þeir hafi stoppað söluna á REI. Þetta var hins vegar þannig að þegar allt fór upp í loft út af kaupréttartilboðunum þá vildu svo kallaðir sexmenningar ekki að REI og Orkuvetan væru saman í samstarfi og vildi þess frekar selja REI í heilu lagi til ayuðmanna. Framsóknarmaðurinn Björn Ingi sleyt samstarfinu frekar heldur en að láta eftir sexmenningunum úr Sjálfstæðisflokknum. Núna segja Sjálfstæðismenn að það hafi verið þeir sem komu í veg fyrir að REI lennti í höndum auðmanna og þetta er ógeðsleg sögufölsun. Í fréttum sjónvarpsins í kvöld var sagt frá þessu og frá andsvari samfylkingarinnar, en það sem vantaði í fréttina var það að fréttamenn sjónvarpsins segðu frá því hvað væri rétt í þessu máli. Eftir situr að fullt af fólki er farið að trúa Sjálfstæðismönnum að það hafi verið þeir sem komu í veg fyrir að REI lennti í höndum auðmanna. Þeir eru að ljúga þessu núna svo ekki verði hægt að tengja REI og sjálfstæðisflokkinn saman í mútumáli. Það verður að stoppa þennan óheiðarleika, þetta gengur ekki lengur.

  • Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

    …og Villi borgarstjóri sem veit ekki neitt frekar en Bjarni. Þeir eru utan við sig þessir strákar. Var það ekki Villi sem týndi minnisblaðinu þegar það átti að einkavæða Orkuveituna.

  • Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

    Já þetta eru einhverskonar fjármálamunkar. Sé að Bjarni Ben var í partýinu.

  • Jóhann F Kristjánsson

    Þetta er frábært dig.

    Greinilega skemmtilegur félagsskapur.

    Merkilegt samt að engin kona virðist hafa verið í hópnum, eða hvað ?

    Svo segja menn að stjórnmál og viðskipti séu ekki trúarbrögð

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af einum og tveimur? Svar:

Höfundur



Eldri færslur

Dagatal

apríl 2009
S M Þ M F F L
« mar   maí »
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930