Það er byrjað að gerast sem spáð var – hver Íslendingurinn á fætur öðrum er kominn í þrot. Ein fjölskylda á dag flýr land, ein búslóð á dag flutt burt eins og sagt var í fréttum í vikunni. Og hvað er verið að gera til að hindra þetta eða hjálpa fólki? Sumir segja ekkert – aðrir heilmikið, þá aðallega stjórnarflokkarnir. Ja… verðtryggingin er á sínum stað og enn er ekki búið að breyta myntkörfulánum í lán í íslenskum krónum. Öll lán hækka enn með stjarnfræðilegum hraða og ótalmargir komnir í neikvæða eiginfjárstöðu og sjá enga leið út úr skuldafeninu.
Hagsmunasamtök heimilanna ætla að halda samstöðufund á morgun, laugardag. Hér er tilkynningin frá samtökunum. Ég hvet alla sem hafa áhyggjur af efnahag heimilanna til að mæta og sýna samstöðu.
(sjá nánar um ræðumenn ofl. hér: http://www.heimilin.is)
Í ljósi þess neyðarástands sem ríkir á Íslandi boða Hagsmunasamtök heimilannatil samstöðufundar á Austurvelli laugardaginn 23.5.2009 kl. 15.00.
Við teljum að þær aðgerðir sem stjórnvöld hafa ákveðið að grípa til séu því miðurhvergi nærri fullnægjandi. Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisinsmunu 28.500 fjölskyldur á Íslandi (um 30%), skulda meira en þær eiga í árslok2009. Árið 2007 var um að ræða 7.500 fjölskyldur. Þetta er 380%aukning.
Umrædd neikvæð eiginfjárstaða er fyrst og fremst til komin vegna höfuðstólshækkanagengis- og verðtryggðra lána. Lánin hafa rokið upp úr öllu valdi íkjölfar verðbólguskotsins sem orsakaðist af gengishruni krónunnar. Viðhöfnum því alfarið að almenningur verði látinn sæta ábyrgð á efnahagshruninumeð þessum hætti.
Hagsmunasamtök heimilanna vilja:
* Að gengis- og verðtryggð lán verði leiðrétt með almennum aðgerðum
* Að áhætta milli lánveitenda og lántakenda verði jöfnuð
* Afnema verðtryggingu
* Að veð takmarkist við þá eign sem sett er að veði
* Samfélagslega ábyrgð lánveitenda
Ræðumenn:
Bjarki Steingrímsson, varaformaður V.R.
Guðrún Dadda Ásmundardóttir, í stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna
Ólafur Garðarsson, í stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna
Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarstjórnarfulltrúi
Hljómsveitin EGÓ kemur fram.
Rétt hjá Láru Hönnu.
Ég ætla að mæta!!
Mér sýnist að þú misskiljir þetta eitthvað, trítilóða önd. Hagsmunasamtök heimilanna eru ekki flokkspólitísk. Þetta er ekki pólitískur fundur að öðru leyti en því að lífið er pólitískt – en lífið er ekki flokksbundið.
Ég lika..
ég mæti..
Mæti……………
30BEDA55-B2D0-6370-817A-081F7BF5D664