Miðvikudagur 06.01.2010 - 07:27 - FB ummæli ()

Nú er kátt í höllinni

Nú er kátt í Hádegismóum, maður minn! Tilgangur ritstjórans, þ.e. að fjarstýra atburðarásinni og blekkja almenning, hefur bara tekist ansi vel. Þetta hangir allt saman og ég hlakka til að sjá Moggann á eftir og viðbrögð ritstjórans við aðgerðum mannsins sem hann hefur vægast sagt litlar mætur á – en hlýddi honum í þetta sinn. Ritstjórinn á ekki spegil og viðurkennir auðvitað ekki eigin ábyrgð á neinu sem aflaga hefur farið í íslensku þjóðfélagi sem þó er í rúst eftir 20 ára ógnarstjórn hans. Vill fólk þetta aftur? Og í framhaldi af því – ábending til fjölmiðla: Er ekki tímabært að kafa ofan í og fjalla um skuldina sem fyrrverandi seðlabankastjóri (og núverandi ritstjóri) steypti þjóðinni í á síðustu metrunum fyrir hrun? Icesave ku vera skiptimynt í samanburði við þau ósköp!

Það var fróðlegt að fylgjast með viðbrögðum fólks í gær. Facebook er fínn þjóðarspegill þegar mikið gengur á. Sumir fengu hnútinn í magann aftur – þennan sem kom fyrst eftir hrunið. Sumir vilja að Ólafur Ragnar segi af sér. Sumir kætast mjög og þetta er í fyrsta sinn sem ég hef séð harðlínusjálfstæðismenn og öfgafrjálshyggjufólk hrósa forsetanum í hástert. Nú eygja þeir von um stjórnarslit og valdatöku og til þess er nú einmitt leikurinn gerður, gott fólk! Þeim er skítsama um almenning – gleymum því ekki.

En áður en lengra er haldið skulum við rifja upp viðtöl við nokkra af ábyrgðamönnum hrunsins – einkum Icesave. Bara svo það sé á hreinu hverjir bera ábyrgðina.

Sigurjón Þ. Árnason í Kastljósi 8. október2008

Björgólfur Thor Björgólfsson í Kompási 27. október 2008

Björgólfur Thor í mynd Helga Felixsonar – Guð blessi Ísland

Björgólfur Guðmundsson í Kastljósi 13. nóvember 2008

Jamm… rifjast ekki ýmislegt upp? Eru ekki allir með ábyrgðina á hreinu? Í fyrstu, þegar verið var að snúa ábyrgð á öllu sem dynur á okkur yfir á núverandi ríkisstjórn þá fauk í mig. Ekki síst þegar bæjarstjórinn í Reykjanesbæ, og framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins sökuðu Svandísi Svavarsdóttur um að bera ábyrgð á atvinnuleysinu í Reykjanesbæ. Nú hlæ ég að þessu en tek það þó alvarlega. En þetta er í rauninni svolítið fyndið þótt það sé sorglegt um leið. Að fólk skuli gleypa við áróðrinum og gleyma forsögunni er dapurlegt. Við megum aldrei gleyma hvar hin raunverulega ábyrgð liggur.

Ég ætla ekki að fjalla um forsetann og það mál allt í smáatriðum. Reikna með að þeir sem hafa áhuga á málinu á annað borð hafi lesið blogg og hlustað og horft á fréttir og Kastljós í gær. Ég lagði mig hins vegar sérstaklega eftir viðbrögðum erlendra fjölmiðla og hér eru sýnishorn af þeim. En eins og einhver sagði efnislega: „Umheimurinn getur alveg án Íslands verið – en Ísland getur ekki án umheimsins verið.“ Áttum okkur á því.

BBC – 5. janúar 2010

Danska og norska sjónvarpið – 5. janúar 2010

Channel 4 – 5. janúar 2010

Channel 4 – Steingrímur J. Sigfússon – 5. janúar 2010

Mér fannst Steingrímur standa sig helvíti vel í þessu viðtali. Bendi á greiningu hins vísa Egils Jóhannssonar, pistil Teits líka og hugleiðingar Silju Báru eru mjög áhugaverðar. Mér finnst ég vera að gleyma einhverju… en þetta er líklega orðið nóg í bili. Ég árétta að við megum aldrei gleyma hverjir eru hinir raunverulegu sökudólgar í hruninu og Icesave – hverjir bera ábyrgðina. Og ég minni á að ritstjórinn í Hádegismóum er höfuðpaurinn – hvað sem hann og skósveinar hans og -meyjar sprikla, afneita og rífa kjaft.

En í lokin – viðtalið við Michael Hudson í Silfri Egils í byrjun apríl í fyrra. Mjög athyglisvert sjónarhorn í umræðunni. Hlustið og horfið af mikilli athygli.

Silfur Egils 5. apríl 2009

Flokkar: Bloggar

«
»

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Ummæli

  • Hér eru nokkrir punktar úr viðtali við fjármálaráðherra Hollands:

    Hollenskir skattgreiðendur vilja ekki borga fyrir vandræði Íslendinga
    Bankaeftirlit á íslandi var ekki jafn vel skipulagt og í Hollandi, er það ekki ábyrgð almennings á Íslandi?
    Bretar eru enn reiðari en Hollendingar
    Þeir munu saman beita Ísland þrýsting t.d. í gegnum IMF
    Allur heimurinn vill að Ísland borgi
    Megi besta fótboltaliðið vinna

    (skv minni sæmilegu hollensku kunnáttu)

    Sjá:
    http://www.novatv.nl/page/detail/uitzendingen/7504#

  • Heil og sæl Lára Hanna og bestu þakkir fyrir að minna okkur lesendur á hverjir hinir raunverulegu gjörningmenn eru. Tek undir með Agnari Þorsteinssyni og Önnu Ólafs hér að ofan. Ég er ein þeirra sem óttast að þjóðernishyggju og rembu vaxi fiskur um hrygg. Nóg er af henni eins og sakir standa og ekki á hana bætandi. Mig grunar líka að ÓRG hafi eignast óvænta vini í Hádegismóum, alltént hljóta þeir að gleðjast og vona að Icesave deilan dragi athygli almennings frá niðurstöðum rannsóknarskýrslunnar 1.febrúar. Tek líka undir með þér að það vantar að draga fram í dagsljósið hversu há skuldin er sem Seðlabankinn kom íslenska þjóðarbúinu í, í valdatíð Oddsonar á þeim bæ.

    Svona að lokum, fróðlegt að sjá kommentin hér þar sem þú ert sökuð um „væmnissýki“ ég hef nú reyndar aldrei heyrt það orð fyrr og rökréttasta skýringin á því væri auðvitað að þú værir orðin sjúklega væmin, ekki satt? (Sem væri auðvitað grátbrosleg skýring á viðhorfi þínu til Foringjans. Mig grunar hins vegar að fólk eigi við „vænissýki“ sem heitir nú bara á íslensku alþýðumáli noja eða paranoja (paranoia)…. skondið hvað málvöndurinn/málvöndunin/málofvöndunin tekur stundum á sig kostulegar myndir.

  • Það var einfaldlega smá biluni tölvukerfi sem olli þessum hástafa skrifum. En að öllu
    og öðru leiti stend eg við það sem áður er sagt og eg er sú rólegasta á landinu , enda engum hagsmunum að tala fyrir og pólitik hvergi háð og utan allra flokka En hef skoðum á RETTU OG RÖNGU !! Og áróðursmennsku og lágkúrulegum vinnubrögðum !!!!!!!!!!!!!!!!!

  • Sigún G.

    Les pistla þína stundum Lára Hanna – en það gerist æ sjaldnar. Og kemur því ekki á nokkurn hátt við hvort rætt er um Davíð Oddsson eða aðra. En upphafið á þessum pistli er svo kjánalegt að ég nennti ekki að lesa meira.

    Hef þó aðeins rennt yfir athugasemdirnar. Nokkrar ágætar, þ.á.m. frá Ragnhildi H.,
    bendi henni þó vinsamlega á að það er erfitt að lesa texta sem er eingöngu í hástöfum.

  • Sólveig Sigurðardóttir

    Óþarfi að hrópa Ragnhildur, slaka slaka…

  • RAGNHILDUR: ÞÚ ERT MEÐ CAPS LOCK Á – ættir kannski að taka þér frí frekar en Lára Hanna.

  • þAÐ ER ÓTRÚLEGT HVAÐ FÓLK VILL HALDA SIG I FORTIÐARVANDAMÁLUM OG BÚA MEÐAL ÞEIRRA DRAUGA AÐ VIÐBÆTTRI VÆMNISYKI AÐ ÞAÐ HÁLFA VÆRI NÓG !. EFLAUST ÞJÓNA BLOGG ÞIN HANNA LÁRA ÞVI FÓLKI VEL SEM ÞANNIG ER HUGSANDI , FÓLKI SEM ER RÁÐALAUST ,SER EKKERT NEMA AÐ KENNA EINHVERJUM UM , OFTAST SINAR EIGIN ÓFARIR , OG ÞAR FRAMEFTIR GÖTUNUM !! . ÞAÐ SEM ÞARF AÐ SKE HER Á LANDI ER AÐ HREINSA ALL RÆKILEGA TIL I STJÓRNMÁLUM LANSDINS , ALLRA FLOKKA OG SIÐFERÐI BÆÐI STJÓRNMÁLA OG ALLS LANDSINS . ÞAR FINNST MER ÞÚ SEM GÓÐUR PENNI GÆTIR GERT MIKIÐ GAGN HANNA LÁRA EN HÆTT AÐ ALA Á ÓVLD MANNA ! EINS OG ÞINIR PISTLAR GERA AÐ VISSU MARKI AF ÞVI ÞÚ ERT EIN AF ÞEIM SEM HEFUR „TEKIST “ AÐ MYNDA SVONA HJÖRГ JÁ SYSTKINA“ I KRING UM ÞIG OG MATAR FÓLK Á ÞINUM SKOÐUNUM !! ÞAÐ ERU AKKURAT STJÓRNMÁLAFLOKKARNIR LIKA AÐ GERA !!, FÓLK HEFUR EKKI RÁÐRUM TIL AÐ HUGSA OG SKILGREINA MEÐ SJÁLFU SER , FYRIR ÁRÓÐRI ! SAMMÁLA SUMUM HER Á UNDAN MER , EG HELD ÞÚ ÆTTIR AÐ TAKA ÞER HVILD I BILI OG FARA I SVOLITLA NAFLASKOÐUM Á SJALFA ÞIG Á NYJU ÁRI !! GANGI ÞER VEL

  • Hvar eruð þið, ágætu athugasemdaskrifarar sem nú segið mig talsmann vinstri manna og ríkisstjórnarinnar þegar ég gagnrýni og skamma þá sömu vinstri menn og ríkisstjórn? Þá heyrist hvorki hósti né stuna frá ykkur. Þið hefjið bara upp raust ykkar hér ef ég skamma Foringjann! Lesið þið kannski bara þá pistla en ekki alla hina? Maður spyr sig…

  • Ég hef líkt og margir lesið þitt blogg og oft hrifist af sanngirni þinni, stundum af dómhörkunni þegar hún beinist að „réttum“ mönnum.

    Ég er þeirrar skoðunar að þú megir ekki falla í sömu gryfju og ég féll í, en það var algjör blinda í garð míns flokks – Sjálfstæðisflokksins.

    Líf mitt er ekki lengur svarthvítt, heldur í lit og þar að auki í öllum litbrigðum, sem þekkjast.

    Þetta er mun skemmtilegra og fjölbreyttara líf…

  • “væmnissýkin“ í talsmönnum vinstri mann er að ná nýjum hæðum.
    Leitt að sjá annars góðan bloggara fara svona í ruslið með málstað og virðingu sem maður hélt að hún stæði fyrir.

  • Þú ert svo mikill aðdáandi stjórnarinnar, að þú færð örugglega fastráðningu á fréttastofu RUV. Það er nú ein helsta klappstýra stjórnarinnar nú um stundir.

    Maður var annars bara að bíða eftir hvenær menn myndu kenna Davíð Oddssyni um að Ólafur Ragnar myndi neita framgangi þessara ólaga. Það hlaut að koma að því að ein/n myndi geta fundið tengingu á milli þeirra „félaga“. Það tókst að lokum.

    Viðbrögð samfylkingarinnar eru næstum hlægileg. Eins og hjá litlu freku barni sem er buið að vera í of mörgum ríkisstjórnum á of stuttum tíma, og fær ekki það sem það vill.

    Líklega styttist í að össur og co. myndi fjórðu ríkisstjórnina á 30 mánuðum. Með hverjum? Það er spurning?

  • Hafrasprautur

    Byrjar nú söngurinn um að neyðarlögin hafi mismunað innistæðueigendum. Eins og nafnbótin bendir til eru neyðarlög óvenjuleg lög sem sett eru í þeim tilgangi að bjarga málum fyrir horn. Með þeim víkja menn ýmsum viðteknum venjum og lögum til hliðar.

    Íslenska ríkið ákvað að bæta innistæður manna í gömlu bönkunum hér á landi með samsvarandi upphæð í nýju bönkunum. Annað var ekki bætt. Hvorki Íslendingar né útlendingar með innistæður á Icesave fengu bætur. Íslenska ríkið veitir fullt af fólki alls konar bætur sem eru háðar því að það hafi verið HÉR Á LANDI við störf. Td atvinnuleysisbætur og greiðslur í fæðingarorlofi. Er það þá mismunun?

  • Sæl Lára Hanna. Það er afskaplega ódýr leið fyrir þau sem eru blinduð af bjarmanum úr Hádegismóunum að tala um „væmnissýki“. Það sem þú ert að skrifa um og halda til haga er bara hinn blákaldi veruleiki sem við Íslendingar stöndum frammi fyrir. Óstjórnar-flokkarnir hamast nú við að gera eins mikið moldrok og mögulegt er til að leiða athyglina frá eigin misgjörðum og afglöpum. Það er svo margt sem þarf að fela og breiða yfir að ég efast um að venjulegt fólk hafi hugmyndaflug til að átta sig á öllu því. Valda og peningaklíkur tengdar Óstjórnar-flokkunum ná inn í alla atvinnuvegina okkar, hvar sem er, út um allt land. Það eru því svo gríðarlegir hagsmunir í húfi að nú er barist með hinum breiðu spjótum á öllum vígstöðvum. Erum við nokkuð búin að gleyma Olíumálinu, hvað með einokun Mjólkursamsölunnar, bara 2 dæmi af handahófi.

  • Þetta snýst ekki um stjórn og stjórnarandstöðu. Þetta snýst um fjármálaheiminn og raunheiminn.

  • Jakob Þór Haraldsson

    Vissulega ósmekklegt hjá RÁNFUGLINUM og Landsbankar hiskinu að reyna að koma sök yfir á þessa aumu vinstri stjórn. Vissulega bera stjórn, bankastjórar & stærstu eigendur Landsbankans (Björgólfs hiskið) frum ábyrgð á þeim ÞJÓFNAÐI sem þeir ítrekað stóðu fyrir „hérlendis & erlendis“ og ég vona innilega að þetta lið verði dæmt í fangelsi fyrir þátt sinn. Auk þess vil ég gera ALLAR eigur þessa liðs upptækar, en það breytir ekki þeirri sorgleg staðreynd að fráfarandi & núverandi ríkisstjórnir hafa haldið gríðarlega illa á þessu IceSLAVE máli – ítrekað klúðrað því að ná samstöðu inn á alþingi fyrir lausn sem ver hagsmuni Íslands. Verkstjórn skötuhjúanna Jóhönnu & SteinFREÐS hefur verið til skammar og þau hafa ítrekað valið að hlusta ekki á RÖK okkar færustu hagfræðinga sem sögðu að þær „drápsklyfjar“ sem AGS, EB, UK & Holland reyna að leggja á okkar samfélag ná engri átt & eru mjög ósanngjarnar í þokkabót. Ég hvet þig til að birta fljótlega viðtal við hagfræðinginn Michael Hudson (www.svipan.is) og við Sweder van Wijnbergen prófessor í hagfræði við Háskólann í Amsterdam (www.eyjan.is & http://www.mbl.is) – báðir þessir hagfræðingar taka heilshugar undir þá gagnrýni sem okkar færustu hagfræðingar hafa ítrekað haldið fram. Þjóðin vil semja á sanngjörnum nótum, við viljum axla ábyrgð, en það verður að vera á nótum sem við ráðum við. Löngu kominn tími á að fá ríkisstjórnina í lið með ÞJÓÐINNI, og hætta að setja fram blekkjandi & villandi hræðslupplýsinigar um að við getum greitt – ASÍ, SA og Seðlabankinn hafa ítrekað brugðist í því að setja fram réttar upplýsiingar, en setja ítrekað fram villandi upplýsingar til að þóknast þessari aumu ríkisstjórn. Vonandi ber okkur gæfa til að ástunda HEIÐARLEG vinnubrögð, í stað KLÆKJASTJÓRNMÁLA Samspillingarinnar!

    kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is)

  • Þórunn Einarsdóttir

    Frábærar greinar hjá þér Lára þyrti að spila þetta upp aftur og aftur fyrir okkur eins og ræðuna hans Bjarna Ben á þingi í nóv 2008, Menn eta sjálfan sig og vita að kjósendur eru með skammtímamynni.
    Nú ætti ríkisstjórnin að frysta allar eigum þessa bankastjóra og stjórnamanna í bönkunum einnig í seðlabankanum því að það falla hans er og verður okkur íslendingum erfiðast, við þurfum fljótlega að borga vexti af kúluláninu sem Árni Matthíasson tók fyrir Davíð vin sinn svo seðlabankinn færi ekki á hausinn. Allar skattahækanir sem við fáum yfir okkur fara víst beint í þetta núna. Icesave verður eftir 7 ár hvenær hafa íslendingar hugsað svo langt framm í tíman. Þegar Halldór og Davíð einkavæddu bankana hugsuðum við íslendingar ekki, eftir 7-8 ár yrði allt hérna komið á hausinn, Ég ætla að vona að þessi ríkisstjórn haldi velli en finnst samt að hún megi ympra betur á því hverjir það voru sem komu okkur í þess aðstæður og ég vona að það komi eitthvað út úr rannsóknarnefndini og að hún verði birt „óendurskoðuð“ takk fyir vinnu

  • Anna Ólafs

    Tek undir hvert orð Agnars Kr. Þorsteinssonar. Það sem mér finnst verst er hversu margir það eru sem gera sér ekki grein fyrir að þeir eru orðnir heilaþvegnir af málflutningi sem snýst ekki um velferð þjóðarinnar heldur valdabrölt manna sem eiga mikla hagsmuni undir því að Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur komist aftur til valda. Í því valdabrölti er öllum meðölum beitt, líka blekkingum. Svo vita þessir sömu aðilar líka að það dugar vel á brotna þjóð í milliríkjadeilu að ýta undir þjóðernishyggju. Mér óar við þessari þróun.

    Guðrún Guðlaugsdóttir, blaðamaður og rithöfundur lýsir þessum boðberum „Stóra Sannleikans“ sem og áhangendum þeirra mjög vel í Fréttablaðinu í dag í grein um „krossfara nútímans“. Guðrún segir m.a.: „Margt hefur gerst í sögunni fyrir tilverknað krossfara. En því miður er framsýni krossfaranna og áhangenda þeirra sjaldnast í sama hlutfalli og hreyfiafl þeirra. Ekki er að ófyrirsynju talað um að kapp sé best með forsjá. Hættan við krossfaranna er að þeir vilja viðhalda óvissuástandi til að þjóna lund sinni – ekki eyða því. Þetta getur orðið háskalegt á viðsjárverðum tímum, ekki síst ef „krossfarar“ eru nýttir af kaldhömruðum og valdasjúkum mönnum til þess að þeir nái að svala metnaði sínum.“

  • Með neyðarlögunum tryggðum við Íslenskar innistæðureikninga okt.2008 ,við þurftum þess ekki því þetta voru einkabankar.En við gerðum það og getum ekki mismunað eftir þjóðerni.

  • Hörður Tómasson

    Svo bregðast krosstré.
    Aldrei bjóst ég við því að sjá þig draga flokkslínuna.
    Sorglegt.

  • Þegar menn byrja að tala á nótunum „sannir Íslendingar sem eru að berjast fyrir framtíð landsins“ eins og aðrir sem eru þeim ósammála séu þjóðaróvinir, þá fæ ég alltaf hroll, sérstaklega þegar maður lítur í hilluna og sér allar bækur um afleðingar slíks þjóðernisofstækis.

    Ég ætla að skipa mér í lið með föðurlandsvikurunum, landráðamönnumunum og öllum þeim sem eru ósammála niðurstöðu hins stæka þjóðernisofstækis og segja: til hvers að berjast fyrir þjóð óheiðarleika, óréttlæti, ábyrgðarleysi og siðblindu gagnvart öðrum vegna þess að þeir eru útlendingar? Er þjóðin þá ekki bara samansafn skrúðkrimma eins og umheimurinn sér hana?

    Næstu mánuðir verða svo hlaðnir af ofstækisfullum landráðaásökunum, enn meiri heift milli fylkinga, sundrung og illvilja, bræður munu berjast og Hádegis-Móri glaður mun kynda bálið.Og hverjir græða? Þeir sem komu okkur í þessa stöðu, reykskýið mun kæfa skýrslu rannsóknanefndar þingsins, spuninn mun beina athyglina frá öllu sem frekar máli skiptir, stöðnunin verður lengri.

    Íslendingar þurfa ekki óvini, þeir hafa sig sjálfa.

  • Ég tek undir það sem margir segja hérna að ást þín á stjórninni er kannski full mikil, vænisýkin hleypur með þig í gönur

    Í gær var það þjóðinn sem hafði betur og á hún það skuldlaust! Að halda því fram að Mogginn stjórni öllu er með öllu ótækt og röklaust!
    Svo er kannski spurning hvort að þeir sem vilja endilega halda uppi málstað Breta og Hollendinga færi sig þá bara um set eða hætti að vera fyrir sönnum Íslendingum sem eru að berjast fyrir framtíð landsins.
    Því flestir hljóta að vita það núna að Íslendingar og börn framtíðarinnar munu ekki geta staðið undir þessum skuldbindingum!

    Núna eiga svona flokkshollir aðilar að brjóta odd af oflæti sínu og byrja að standa með restinni af þjóðinni. Þá eigum við nokkra von

  • Iceviking

    Þeir vita ekki hvað spegill er…frábær punktur Lára.

    – Því miður horfir ekki öll þjóðin á þessi merku myndbönd á heimasíðunni þinni. En hún hefði svo sannarlega gott af því.

    – En nú kemur það bara aftur í ljós. Fyrri stjórnvöld vanræktu að setja lög um þjóðaratkvæðisgreiðslur, enda eiga hinir útvöldu með peninganna að ráða skv. hugmyndunum fyrir hrunið. Þau klikkuðu líka á því að hafa raunhæfa stefnu í landvernd, kvótakerfinu og banakamálum. Kvótakerfið mun hrynja yfir okkur líka einn daginn, vegna brottkasts og eyðileggingar á hafsbotninum.

  • Ég fæ aulahroll af því að hlusta á enskuna hans Steingríms. Afhverju í ósköpunum notast íslenskir ráðamenn ekki við túlka? Annars gott viðtal.

    Takk fyrir bloggið, Lára; það er fyrsta bjartsýnisglætan sem ég sé eftir fréttaþyngsli gærdagsins.

  • Það er slæmt að „væmnissýkin “ sé farin að hrjá þig, en hún er samt örugglega skárri en svínaflensan. Takk fyrir frábæran pistil og gaman að sjá Björgúlf Thor skýra sína hlið, sérstaklega þar sem rúmt ár er liðið frá viðtalinu og öll hans skítamál hafa komið upp á yfirborðið. Rendar held ég að það séu fleiri en ritstjóri Moggans sem eru ánægðir.

  • Hafrasprautur

    Ríkisstjórnin Íslands og Bretlands bera ábyrgð á tilrauninni til að láta Íslendinga þjóðnýta skuldir Landsbankans.

  • Já það er makalaust hvað sumir vilja kenna ríkisstjórninni um hvernig komið er fyrir okkur. Góður pistill Lára Hanna!

  • Landsbankaforkólfarnir bera vissulega ábyrgð á tilurð Icesave skrímslisins. Stjórnin ber hins vegar ábyrgð á því hvernig íslensk stjórnvöld hafa haldið á spilunum í þeim viðræðum og í þeirri samningagerð um uppgjör við ensk og hollensk yfirvöld. Því verður ekki neitað.

  • Skraddari, uh nei?

  • Takk fyrir að rifja þetta viðtal upp. Ég var búin að gleyma þessu.

    (Ef þeir sem hafa kommentað hér á undan mér hefðu haft fyrir að horfa á það væru þeir nú líklegast ekki að væna þig um stuðning við ríkisstjórnina af þessu kappi. 😉

    Þetta er flókið og margslungið mál, alltsaman.
    Þarf að ígrundast vandlega og ekki í neinu dramakasti.

  • Þorsteinn

    Jæja eg hef nú oft lesið bloggið þitt af mikilli athygli enn frá og með daginum í dag er eg hættur því væmnissykin og aðdáun þín á stjórninni er svo gjörsamlega að fara með þig að það hálfa væri nóg Eg myndi segja að þú ættir nú að taka þér frí smátíma og hugsa þinn gang

  • ragnhildur

    Heyrðu, varstu ekki löngu hætt að lesa Moggann?

  • Skraddari

    Stjórnendur Landsbankans báru vissulega ábyrgð á Icesvae reikningunum.

    Þeir bera hins vegar ekki ábyrgð á því að breskir og íslenskir stjórnmálamenn ætluðu íslenskum skattgreiðendum að gangast í ábyrgð fyrir reikningunum.

    Slík ríkisábyrgð á viðskiptum einkabanka hvarflaði ekki að nokkrum manni fyrr en við hrunið.

  • Hætti að lesa eftir þetta: „Nú er kátt í Hádegismóum, maður minn! Tilgangur ritstjórans, þ.e. að fjarstýra atburðarásinni og blekkja almenning, hefur bara tekist ansi vel.“

    Róleg á vænisýkinni.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af núlli og þremur? Svar:

Höfundur



Eldri færslur

Dagatal

janúar 2010
S M Þ M F F L
« des   feb »
 12
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31