Hún giftist inn í útgerðarfjölskyldu, varð tengdadóttir Einars ríka sem svo var kallaður, útgerðarmanns í Vestmannaeyjum. Sigurður, maður hennar, lést fyrir nokkrum árum. Hún er sögð strangheiðarleg sómakona – og auðugast a kona Íslands. Ég sel það ekki dýrar en ég keypti, því auðævi jöfranna hafa gjarnan reynst skuldsettar bólur, byggðar á lánum sem þjóðinni er nú ætlað að borga. Auðjöfrarnir hafa flestir skráð sig til heimilis í útlöndum þar sem þeir geta notið þess fjár sem þeir stungu undan, óáreittir og fjarri ásakandi augnaráði samlanda sinna og mögulegum aðgerðum þeirra.
Guðbjörg Matthíasdóttir og fjölskylda hennar auðgaðist á sameign þjóðarinnar, fiskinum í sjónum, og eins og aðrir útgerðarmenn hefur Guðbjörg ávaxtað sitt kvótapund með hjálp góðra manna. LÍÚ, sem útgerðarfélag Guðbjargar er aðili að og á stjórnarmann í, hótar að sigla flotanum í land ef hróflað verður við afnotum útgerðaraðalsins á auðlind þjóðarinnar sem téður aðall lítur á sem sína einkaeign. Í Hádegismóum sitja menn við að endurskrifa söguna, skjóta skítabombum og hella áróðri yfir þjóðina – eða þann hluta hennar sem ennþá nennir að lesa Morgunblaðið – í boði Guðbjargar, sem ku vera stærsti hluthafinn og stóð að ráðningu ritstjórans.
Þótt Guðbjörg virðist ekki vita aura sinna tal, berjist í gegnum LÍÚ fyrir áframhaldandi einkarétti á auðlindum sjávar og gegn réttlætinu í gegnum blaðið sitt og Sjálfstæðisflokkinn, gerir hún engu að síður himinháa kröfu í þrotabú Glitnis. Í mínum huga þýðir það að hún geri kröfu á skattborgarana, þjóðina sem gerði hana ríka, þótt aðrir myndu líklega túlka það á annan hátt.
Í byrjun apríl 2009 skrifaði DV grein um Guðbjörgu og kallaði hana heppnustu konu hrunsins. Vel má vera að heppni komi eitthvað við sögu. En ég hallast þó frekar að því, að tengsl hennar við Flokkinn og vinátta helstu ráðgjafa hennar og Hins Mikla Ástsæla Leiðtoga og hirðar hans hafi haft meira vægi. Miklu meira.
Guðbjörg er vinur vina sinna og samkvæmt þessari frétt rétti hún einum helsta ráðgjafa sínum og góðvini þeirra ritstjórans, Gunnlaugi Sævari Gunnlaugssyni, hjálparhönd viku eftir hrun og keypti hann og fleiri út úr einhverri fjárhagsklípu. En ekki virðist hún hafa notað eigin auð heldur tekið lán upp á rúmar tvöhundruð milljónir og það í október 2008, í sjálfu hruninu. Ekki fylgir sögunni hvaða banki lánaði né heldur hvort Guðbjörg hefur endurgreitt lánið.
Fréttir Stöðvar 2 – 19. janúar 2010
Og nú er fyrirtækið sem Guðbjörg reddaði í október 2008 að fá afskriftir í sama banka og Guðbjörg gerir kröfu í upp á 2 milljarða. Sami lögfræðingur, Sigurbjörn Magnússon, semur um afskriftir Lýsis og gerir kröfuna fyrir Guðbjörgu. Sigurbjörn situr einnig í stjórn útgerðarfélags Guðbjargar og Árvakurs, rekstraraðila Morgunblaðsins. Gunnlaugur Sævar er stjórnarformaður bæði útgerðarfélags Guðbjargar og Lýsis.
Ég spyr – og það stórt: Hver er samfélagsleg ábyrgð Guðbjargar Matthíasdóttur gagnvart þjóð í ræsi kreppu, hverrar auðlindum hún auðgaðist á. Kreppu sem hún átti sjálf þátt í að skapa (eða fulltrúar hennar) með ýmiss konar braski. Hve mikið er kvóti fyrirtækja Guðbjargar veðsettur… og hvar?
Smellið á nöfnin og sjáið viðskiptatengsl Guðbjargar Matthíasdóttur og Gunnlaugs Sævars Gunnlaugssonar í boði Rel8 – IT-Ráðgjafar Jóns Jósefs Bjarnasonar. Myndirnar eru frá í september og október í fyrra (eitthvað gæti hafa breyst síðan) en gjaldskrá RSK (skv. reglugerð fjármálaráðuneytis) gerir mér ókleift að endurnýja þær.
Lára Hanna takk enn og aftur fyrir að reyna að koma vitinu fyrir þessa vitskerrtu þjóð.
Er Viðar Már Matthíasson, nýjasti hæstarréttardómarinn bróðir hennar? Ég hélt að hann væri Samfylkingarmaður.
Guðbjörg var í stjórn Landsbankans sem ákvað að fara útí Icesave!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
það er mikil ólykt af þessu, kvótadrottnigin hefur alveg efni á að láta afskrifa hjá sér eins og f5 prósent á ári. Hún hlýtur að geta fengið ráðleggingar hjá honum Davíð;) 😉 ég held hún hafi fengið ráðleggingar hjá honum þegar hún seldi í Glitni, hún launar honum síðar með að ráða hann í vinnu þegar aumingja hann varð atvinnulaus 🙂
Þröstur:
>Nei, ríkið er ekki þjóðin. Ríkið gætir ekki hagsmuna almennings heldur embættismannanna og stjórnmálamannanna. Almenningur á miklu meira undir því að auðlindur séu í einkaeigu en opinberri eigu. Einkaaðilar kunna að fara með fé en ríkið ekki eins og dæmin sanna.>
…og það eru engin dæmi um að einkaaðilar kunni ekki með fé að fara?
Og að ‘ríkið’ fari alltaf illa með fé?
Að ríkisumsvif blási ekki út undir stjórn ‘hægri’-flokka?
Ég hvet fólk til að kynna sér staðreyndir málsins varðandi afleiðingar þess að fyrningarleiðin verði farin. Athugið einnig að yfir 90% þeirra fyrirtækja sem eiga kvóta í dag hafa keypt hann, ekki fengið gefins.
Á landsfundi LÍU í október s.l. voru flutt mörg góð erindi þar sem farið var yfir málin og m.a. má þar finna útreikninga frá Deloitte sem sýna klárlega að fyrningarleiðin eins og stjórnvöld sjá hana fyrir sér gengur ekki upp. Auk þess vil ég benda á erindi frá Sigurgeir Brynjari í Vinnslustöðinni, en hann tekur frábært dæmi sem allir ættu að skilja þegar hann spyr hvað myndi gerast ef borgarstjórn Rvk. færi fyrningarleiðina á húsnæðislóðum? Ég hvet fólk til að skoða þessi erindi og kynna sér staðreyndir áður en það fellir sleggjudóma!
http://www.liu.is/um-liu/adalfundir/adalfundur-2009/erindi-flutt-a-adalfundi-2009/
Hvernig sjá fylgismenn fyrningarleiðinnar fyrir sér að kvóta verði úthlutað í framtíðinni? Ég kalla eftir röksemdafærslu með útreikningum á því hvernig dæmið á að ganga upp hjá sjávarútvegsfyrirtæki ef öllum kvóta er endurúthlutað ár hvert af ríkinu.
Já þröstur, sumir einkaaðilar kunna að fara með fé til Tortola.
Þröstur sér ekki að keisarinn hans gengur um nakinn.
http://icelandtalks.net/
Er ríkið ekki VIÐ = ríkiseign
Þjóðareign = Ríkiseign!
Sjálfstæðisflokkurinn gætti ekki að ríkiseigninni / auði þjóðarinnar
En það má ekki benda á neinn en flokkurinn hafði 84 ár af lýðveldistímanum til að framkvæma! Og tókst vel til ekki satt Þröstur?
Nú er ríkiseignin engin eða hvað?
Hef heyrt því fleygt að einn helsti fjármálráðgjafi Guðbjargar hafi verið Baldur fyrrverandi ráðuneytisstjóri fjármála.
En sætt af Þresti að segja að S.G. hitti naglann á höfuðið, verst þeir báðir hafa ekki enn áttað sig á því að „það fólk“ sem báðir eru að verja er búið að berja þessa þjóð svo í höfuðið að hún liggur helsærð á eftir, lækniskosnaður a.m.k. ca. 1.000 milljarðar
Þessi færsla virðist koma við kaunin á sumu fólki. Sem betur fer er þjóðin mun upplýstari í dag en hún var fyrir bara örfáum mánuðum. Ég og margir fleiri búin að fá upp í kok af svona frösum tilbúnum og heimasmíðuðum í Valhöll. Sem betur fer liðin tíð….. vonandi.
Brynjar: Ja, maður þeirra sem hann lítur á sem fólk. 😉
Stuttbuxnadrengir: Skýtur ekki nokkuð skökku við að þeir sem þið teljið eiga peninga fái skuldirnar (sem þeir ættu þá að hafa efni á að borga) afskrifaðar og gerist kröfuhafar á gjaldþrota þjóð?
Þröstur: Sorry, þessi skítabomba virkar ekki lengur á hugsandi fólk. Hún var algeng í bólunni, þeir sem voguðu sér að minnast á óeðlilega viðskiptahætti voru sagðir öfundsjúkir út í fólk sem átti sand af seðlum.
Virkar ekki lengur. Nú neyðist þú til að vera málefnalegur litli kallinn minn.
Brandara dagsins skrifar Þröstur 20.1 2010 kl. 02:03:
„Það hefur Davíð Oddsson alla tíð mátt eiga að hann var og er maður fólksins.“
Eins og ég hef sagt í amk áratug: það á að gera allan kvóta upptækan strax og leigja hann út á ársgrundvelli.
Þetta var aldrei eign þessa fólks til að byrja með.
Á einni myndinni með henni er pabbi fyrrverandi varaformanns Samfylkingarinnar.
Lára Hanna er greinilega að skrifa um viðkvæmt efni hérna. Stuttbuxnadrengirnir hans Móra eru í mikilli vörn. 🙂
Sæl Lára Hanna – þetta er afar athyglisverð færsla og sýnir vel hvernig eignatengsl geta legið út og suður um samfélagið. Það kemur æ betur í ljós með hverjum deginum hvað spillinin og eignaflækjurnar eru gríðarlegar. Hvað klíkusamfélagið er sterkt og voldugt ennþá þó fjármálakerfið okkar hafi farið á hliðina.
Það mætti halda að Þröstur sé flæktur í einhverju neti, hvort sem það er huglægt, fjárhagslegt eða vinavæðingartengt. Trúverðugleiki Morgunblaðsins er orðinn lélegur hvað varðar allar fréttir af stjórnmálaástandi, fjármálakerfinu, hruninu og endurreysninni. Um almennar fréttir gegnir öðru máli.
Svona rétt í lokin þá segir Ólafur Arnarson í bókinni Sofandi að feigðarósi að Davíð Oddsson sé stærsti efnahagsvandi þjóðarinnar á síðustu árum.
Þröstur, veistu ekki að það er glæpsamlegt að eiga peninga, hvað þá að nota þá í eitthvað.
Hannes… hættu núna. Þröstur í skógi, Hannes í lífi.
Það er ekki laust við að flökurleiki flögri að manni.
Kveðja að norðan.
Það er ekki laust við að greina megi rökþrot í athugasemd Þrastar. Getur hann rökstutt mál sitt? Vill hann kannski lesa þennan pistil sem tæpir ögn á öfundinni, hvernig hugtakið hefur verið notað og í þágu hverra?: http://blog.eyjan.is/larahanna/2010/01/04/daudasyndir-tvaer/
Þarna eru aftur og aftur nöfn úr fjármálaráði Sjálfstæðisflokksins frá síðustu árum.
Það er fullkomlega ótækt ef þessi lykilflokkur með alla þessa lykilgerendur úr viðskiptalífi síðustu ára birtir ekki bæði nöfn þeirra sem styrktu hann og eins lista yfir styrki til allra kjördæmisráða og aðildarfélaga eins og aðrir flokkar hafa gert!
Eðlileg krafa er að þær upplýsingar liggi fyrir opinberlega aðgengilegar almenningi áður en rannsóknaskýrsla Alþingis verður birt.
Flokkurinn hefur sumsé um hálfan mánuð til að ná utan um bókhaldið sitt.