Í janúar og febrúar skrifaði ég tvo pistla um Davíð, Halldór og „lista hinna viljugu þjóða“. Sá fyrri hét Frétt kvöldsins og sá seinni Af skítlegu eðli. Nú spyr ég mig hvort þeir Davíð og Halldór hafi séð Wikileaks-myndbandið á netinu eða Kastljósið í kvöld. Ég velti fyrir mér hvort þeim félögum hafi brugðið – eða hvort þeim sé bara slétt sama. Mér verður hugsað til friðarverðlaunahafa Nóbels sem sagði í þakkarræðu sinni þegar hann tók við verðlaununum eitthvað á þá leið, að stundum yrði að heyja stríð til að tryggja frið. Ætli friðarverðlaunahafanum þyki slátrun á óbreyttum borgurum í massavís óhjákvæmilegur fórnarkostnaður? Dæmið sem við sjáum í Wikileaks-myndbandinu er örugglega ekki það eina, svo mikið er víst. Herir allra þjóða sem komið hafa að stríðunum í bæði Afganistan og Írak hafa gerst sekir um voðaverk þar sem skotið er fyrst og síðan spurt.
Samræður hermannanna og samskipti þeirra vitna svo ekki verður um villst um afmennskun þeirra undir þessum kringumstæðum. Þessir menn þurfa svo að lifa með gjörðum sínum þegar heim er komið. Sumir missa vitið, aðrir taka líf sitt og enn aðrir láta eins og ekkert hafi í skorist. Eins og þeir hafi bara verið að drepa rottur eða viðlíka óbermi. Jóhanna K. Eyjólfsdóttir hjá Amnesty sagði m.a. í Kastljósinu: „Alþjóðalög og lög um hernað, Genfarsáttmálar og öll lög og reglur um hvernig skuli hegða sér í stríði… þetta hefur verið þverbrotið í Íraksstríðinu af öllum aðilunum sem taka þátt í þessum átökum.“ Bandaríkjamenn neita að viðurkenna stríðsglæpadómstólinn í Haag og vilja sjálfir sjá um að rétta yfir og dæma sína menn – hvernig svo sem þeir standa síðan að því.
Wikileaks birti myndbandið seinnipartinn í dag og strax logaði Facebook. Fólk er reitt, sárt og það minnist tvímenninganna sem ötuðu nafn Íslands auri þegar þeir hétu meintum besta vininum, George W. Bush, fullum stuðningi herlausrar þjóðar við innrásina í Írak – án þess að ráðfæra sig við þing eða þjóð. Ég ætla að birta hér nokkrar athugasemdir af Facebook til að gefa þeim sem eru ekki þar innsýn í hug fólks til myndbandsins, verknaðarins og tvímenninganna. Arfleifð þeirra félaganna er blóði drifin.
– Fyrir mitt leyti segi ég ef maður horfir bara út frá fjölmiðlun þá hreyfir stutt frétt af þessu lítið við manni líkt og Stöðvar 2 fréttin á áðan. Hún var eins og fjöldinn allur af öðrum fréttum frá Írak, Afganistan og örugglega Víetnam í den þar sem fólk sat yfir matnum og sagði:“hryllilegt“ og hélt áfram að skófla í sig soðnu ýsunni. Á sínum tíma hefur örugglega fréttin verið:“Tveir starfsmenn Reuters féllu í skotbardaga milli Bandaríkjahers og íraskra uppreisnarmanna sem skutu að þyrlum Bandaríkjahers. Tvö börn særðust í bardaganum (ef það hefur verið minnst á þau)“
Kastljósið í sínu lengra formi sem sýnir og segir meira um bakgrunn og eftirleik, fórnarlömb og gerendur, hreyfir aftur á móti meir við manni, gefur þessa mennsku mynd af atburði sem er örugglega frekar algengur í Írak. Nú vitum við meira, við vitum hvað fólkið hét, við sáum almennilega hvað gerðist, við sáum í samhengi afneitun og feluleik, við sáum að þarna var framinn stríðsglæpur.
– Það verður að fá BNA til að gangast undir Alþjóðastríðsglæpadómstólinn. Þarna var ekki um að ræða nein mistök eða misskilning. Skotmenn fengu leyfið út á lognar upplýsingar til að svala greinilegri fíkn. S.s. fjöldamorðingar. Og þeir ásamt yfirmannakeðju verða að svara til saka. Í þessu máli og öllum hinum sem við höfum ekki séð.
– Við eigum að byrja á að biðja Íraka opinberlega afsökunar á að hafa verið á „lista hinna viljugu þjóða“.
– Sjá þessi dauðu kvikindi, sagði ameríski hermaðurinn í Kastljósi þegar hann hafði myrt nokkra varnarlausa almenna borgara. Svo lýgur ameríski herinn eins og hann er langur til. Auðvitað verður svo enginn láta sæta neins konar ábyrgð í málinu.
– Ætli Halldór Ásgrímsson sé ekki stoltur af hryllingnum sem sýndur var í Kastljósi kvöldsins?
– En vonandi kemur þetta í veg fyrir að Ísland hlaupi eins og leiðitamur hundur á eftir næsta stríðsherra sem ráðherrar eru að sleikja sig upp við.
– Er sleginn yfir afmennskunni sem birtist wikileaks-myndbandinu. Bandaríski þyrluflugmaðurinn lítur á fólkið og börnin sem réttdræpar rottur. Það hlakkar í honum. Íslensk stjórnvöld – Davíð og Halldór – studdu þetta stríð. Norsk stjórnvöld neituðu að gera það.
– Tjáir ritstjóri Morgunblaðsins sig í blaði morgundagsins um myndbandið og þá villimennsku sem bandarísku hermennirnir sýndu óbreyttu borgurunum í Bagdad – og mun hann iðrast?
– Vil fá að vita hvernig Dabbi og Dóri fíla wikileaks-myndbandið. Alltaf sama stuðið í stríðinu, strákar?
Þetta eru aðeins örfá brot af því sem ég hef séð á Facebook í dag og í kvöld – og allt í þessum dúr. Ég sá líka að margir gátu ekki horft á þetta. Byrjuðu að horfa en urðu að hætta. Fólki varð illt – bæði á líkama og sál. En svona hagar sér „ein helsta vinaþjóð Íslendinga“ í stríði þar sem stuðningur Íslands var „bara yfirlýsing á pappírsblaði“ eins og Kolbrún Bergþórsdóttir sagði svo eftirminnilega hér. Ég er innilega ósammála söguskoðun Kolbrúnar.
Þeir sem treysta sér til geta horft hér á Kastljósið og stuttu útgáfuna af myndbandinu. Allir ættu að sameinast um að láta slóðir ganga og fara sem víðast. Vekja athygli á þessum stríðsglæpum. Það er ekki oft sem fást svona beinharðar sannanir fyrir þeim.
Wikileaks-myndbandið – Fréttir RÚV og Kastljós 5. apríl 2010
Jóhanna K. Eyjólfsdóttir hjá Amnesty – Kastljós 5. apríl 2010
Wikileaks-myndbandið – styttri útgáfan
Styttri útgáfan af myndbandinu er tæpar 18 mínútur en sú lengri tæpar 40. Lengri útgáfuna má sjá hér – en fólk þarf að hafa YouTube-aðgang og skrá sig inn til að sanna aldur sinn. Það þarf ekki með styttri útgáfuna sem er hér á YouTube.
Þetta sögðu formenn flokkanna í Morgunblaðinu 21. mars 2003
Fyrstu viðbrögð Morgunblaðsins á mbl.is kl. 21:12 í kvöld
Hér er frétt Reuters frá 12. júlí 2007 um atburðinn og hér er frétt þeirra af birtingu myndbandsins
Hér er frétt á BBC-vefnum um myndbandið. Þar segir m.a.: „The video, released on Monday, is high quality and appears to be authendic, the BBC’s Adam Brookes in Washington says.“
Frétt MSNBC
New York Times birtir Reuters-fréttina og aðra frétt hér
AlJazeera í kvöld
Fox-fréttastofan – netfrétt
Dylan Ratigan hjá MSNBC
CNN
Guardian
Danmarks Radio
Politiken
Times Online
Independent
Sky
Andrew Sullivan – athyglisvert lesendabréf
Salon.com
NRK
Sveriges Radio
Huffington Post
Daily Mail
Vancouver Sun
(Bæti við eftir því sem slóðir finnast af meiri umfjöllun erlendra miðla – ábendingar vel þegnar.)
Það er í raun stór einföldun að kenna Davíð Oddsyni og Halldóri Ásgrímssyni einum um. Þeir höfðu á bak við sig báða stjórnarflokkanna og fengu endurkjör frá þjóðinni skömmu síðar þannig að íslensk þjóð getur í raun ekki flúið sína ábyrgð frekar en á hruninu þar sem þeir treystu mönnum til að stýra og eignarhaldið ásamt einka“vina“væðingunni voru kunn þegar frá 2002/2003 og þetta fólk fékk endurtekið umboð þjóðarinnar.
Skúmur
Aumingja Davíð alltaf að vara við og enginn hlustaði var það ekki það sem þú skrifaðir, skrítið að enginn taki mark á honum, þessum siðblinda harðstjóra
Til að glöggva okkur betur á hvernig læmingjarnir í Davíðsæskunni sjá „Foringjann“ sinn mæli ég með eftirfarandi síðu:
http://www.chucknorrisfacts.com/chuck-norris-top-50-facts
Skiptið bara út nafn Chuck Norris fyrir nafn Foringjans. Ekki flókið.
aumingja kallinn. að leggja blessun sína á innrásarstríð vitandi að óbreyttir borgarar myndu láta lífið. og svo hlustar bara enginn á hann!
Þetta er ósanngjarnt!
Þó að Davíð hafi skrifað undir stuðning Íslendinga við innrásina í Írak, var hann sá eini sem varaði við mannfalli óbreyttra borgara í Írak. Ítrekað varaði hann við þessu, en það hlustaði bara enginn á Davíð.
Því fór sem fór.
Ég tæki DO í sátt á stundinni ef hann bara gæti viðurkennt að stuðningsyfirlýsing Íslands við innrásina voru stórkostleg mistök.
Mistök sem hann nú harmar.
Ætli sá dagur komi?
Áður en Bandaríkjamenn réðust inn í Írak höfðu Al-Qaida menn enga fótfestu þar og síðan hefur ástandið verið skelfilegt. Allflestir Bandaríkjamenn sem og aðrir sjá nú og viðurkenni beint eða óbeint að þessi innrás og það sem fylgdi hefur í raun verið ein skelfileg mistök. Vandamálið leysist ekki ef þeir fara allt í einu, upplausnin verður þá væntanlega alger.
Ísland og Íslendingar lögðu þetta á vogarskálina og verða síðan að lifa með því.
Það er ekki með neinum rökum hægt að réttlæta þessa innrás í Írak. Í raun seldu Bandaríkjamenn og aðrir Írökum vopn í stríðinu við Íran og ekki var Sadam neitt mildari þá.
Tenglin milli Al-Qaida og Saddam Husseins voru engin enda á sitthvorum vængnum. Raunar var Al-Qaida og Talibanar og ekki síst Osama bin Laden sjálfur sköpnarverk CIA og leyniþjónustu Pakistans ISI. Höfuðvígi Talibana í Tora Bora niðurgrafið í Safed Koh fjöllum nálagt Khyber skarði. Var hannað og byggt af CIA í Operation Cyclone áratuga baráttu Mujahideen mót Rússunum. Raunar er það merkilegt að þeir létu mannin sleppa sér úr greipum í orustunni við Tora Bora í upphafi átakanna í Afganistan enda var höfuðáhersla Bandaríkjamannanna olían í Írak.
Bandaríkjamenn eru sjálfum sér hættulegastir enda er framkoma þeirra og einka-/málaliðaherja þeirra eins og Blackwater og annara arftaka þeirra með þvílíkum ósköpum að leitun er að öðru eins. Það hafa hundruð þúsunda óbreytta borgara látist og slasast í Írak síðan herir Bandaríkjamanna og Breta réðust inn í landið undir því yfirskyni að kasta Sadam Hussain frá völdum. Ástæðan sem var gefin var í raun hlægileg að hann væri ógnun við heiminn vegna efnavopna og hugsanlegra kjarnorkuvopna. Þetta var allt saman skjálkaskjól. Hvorki hafa fundist nothæf efnavopn hvað þá heldur kjarnorkuvopn og hefur hverjum steini þar verið velt síðustu árin. Það er raunar búið að lýsa því yfir að það hafi heldur ekki verið neitt þannig var forsenda innrásarinnar galin frá upphafi enda var aðal markmið innrásarinnar að sölsa undir sig einar stærstu olíulindir heims.
Hlutur Íslendinga í þessu ferli var ákaflega hraklegur við vorum í hlutverki hinna „viljugu þjóða“ sem ætti frekar að kalla hinar „viljalausu þjóðir“ ásamt öðrum áhrifalausum og ör- og smáþjóðum sem keyptar voru til lags við þetta. Hér var ekki fyrst og fremst verið að huga að hag Íraka heldur hvort við Íslendingar myndum fá að hanga í herstöðinni á Miðnesheiði, já er hægt að vera lágkúrulegri eða aumkunnarverðari? Varla!
Íslensk þjóð getur heldur ekkert þvegið þetta af sér enda fékk ríkisstjórn Sjálfstæðismanna og Framsóknarmanna meirihluta atkvæða í kosningum skömmu síðar. Þannig ber íslenska þjóðin sína ábyrgð á þessum gjörningi bæði beint og óbeint sem og öðru sem við höfum lent í eða öllu heldur leitt yfir okkur.
Við getum bara lotið höfði og skammast okkar, fyrir að þegja, gera ekkert, klappað með.
Í raun var þessi ríkisstjórn endurkosin eftir þetta av meirihluta þjóðarinnar sem síðan hefur lagt blessun sína yfir þetta.
Er þetta nokkuð meira mál en þeir tugir eða jafnvel hundruðir saklausra borgara sem drepnir eru í sprengjuárásum Talíbana og Al-Qaida vikulega úti í heimi?
Og hvað með allar þær hundruðir sem drepnar eru eða sveltar í heil í Darfur?
Enginn í rétttrúnaðargrátkórnum talar um það þegar Arabískir vígamenn studdir af stjórnvöldum í Súdan slátra kristnum íbúum Darfur.
Af hverju ekki??
Jú, þetta eru ekki Bandaríkjamenn né aðrir Vestrænir aðilar sem gera þetta, og þess vegna á á ekki að tala um þessi dráp.
Það er augljóst af atferli mannan á myndbandinu að þeir eiga sér ekki ills von, heyra þó næstum því örugglega í þyrlunni. Þeir standa og rölta um afslappaðir og ekki á nokkurn hátt þess legir að þeir séu í einhverskonar „stríðsham“. Það held ég að sé ljóst hverjum heilvita manni og jafnvel strákbjálfunum í þyrlunni. Af hverju þeir myrða þetta fólk er á hinn bóginn rannsóknarefni. Er þetta fyrring og grimd ungra manna í stríði eða er þetta skipulögð aftaka á fréttamönnum? Bandaríkin hersitja Írak og vilja telja umheiminum trú um að þarna sé um „frelsun“ að ræða. Á þeim forsendum hafa ýmsar þjóðir þótst styðja þá. En hvar eru mörkin? Hvenær ertu farinn að geta réttlætt að drepa manninn sem þú þykist vera að hjálpa? Við (íslendingar), sem erum í Nató teljum okkur vera að hjálpa Afgönum frá hinum vondu Talibönum. Hvenær segjum við Íslendingar, nei, við viljum ekki styðja dráp Bandaríkjamanna á fólkinu sem við ætluðum að hjálpa, að meðalið sé ekki réttlætanlegt með tilganginum? Hvað þá með Palestínu, þar sem er ekki einu sinni reynt að ljúga því að okkur að Ísrael sé að „hjálpa“ palestínumönnum. Bara blind kúgun. Ætlum við að sitja til hliðar, samsek með þögninni? Jafnvel styðja framferðið eins og Davíð og Halldór gerðu?
Ja, það er nú spurningin, held að ég fái mér meiri ýsu.
Glæpur þeirra sem gerðu Íslendinga ábyrga fyrir þessu stríði er ófyringefanlegur. Það verður að rannsaka hvort landslög voru brotin. Það urðu ummræður á Alþingi um einræðiákvörðun Davíðs og Halldórs.Þar fóru þingmenn í ræðustól,flestir frá Sjálfsræðisflokknum og vörðu gjörningin . Lára Hanna, er það ekki til á fréttamyndum og upptökum frá Alþingi hvaða þingmenn studdu stríðsákvörðun Davíðs og Halldórs ? Væri hægt að fá það birt, hvaða þingmenn eru ábyrgir líka ?
Þessi umræða hér er á fáránlega lágu plani. Að sjálfsögðu er hætta á því að óbreyttir borgarar láti lífið í stríðsrekstri, að tengja nafn Davíðs og Halldórs eitthvað nálægt þessum dauðsföllum er út í hött. Fólk veit líka hversu ömurlegar aðstæður fólks voru í tíð Saddams, það hefur breytst til hins betra.
Það er líka mjög fyndið að hugsa til þess að sumir hér sem virðast vera með mikla heift út í stríð og ofbeldi vilja helst sjá menn hér á landi hálf drepna fyrir að hafa ásamt mörgum öðrum þjóðum samþykkt þetta stríð! Að sjálfsögðu eru þessir atburðir hræðilegir en við skulum ekki ala á heift á mönnum sem okkur líkar illa við og bendla þá við þessi morð.
Stærsta atriðið í samb. við myndbandið er að mínu mati það að þeir sem láku því á netið munu líklega fá mun hærri refsingu, komist upp um þá, heldur en þeir sem skutu úr þyrlunum nokkurntíman.
Að tengja Halldór og Davíð við þá slátrun sem mundbandið sýnir er fráleit. Lára Hanna gefur í skyn að þeir vondu kumpánar Halldór og Davíð sé slétt sama þótt fólk sé myrt með köldu blóði.
Þetta er hatursblogg.
@Rúnsig sérður Davíðshatara í hverju horni? Hver setti Íslendinga á lista viljugra þjóða? Þúsund króna spurning!
Let’s leave it at that!
Við (ísl.stjórnvöld ) eigum að biðjast afsökunar á því að hafa verið á lista
„viljugra þjóða“ það er það minnsta sem við getum gert, ekki seinna enn á morgun, þó fyrr hefði verið.
Enn oft er erfitt að dæma í svona,þó svo að stjórnvöld gerist sek um adrifarík mistök að styðja svona hrylling, ég gríp stundum í þetta viðtal við
hann Þorvald Friðriksson í Mbl.1995.sem lenti í hroðalegum mannraunum í hildarleik Kóreustríðsins. Þetta viðtal kemur alltaf við mann.
„… Þetta voru óbreyttir borgarar sem eru yfirleitt þeir sem mest þjást þegar misvitrir menn etja saman herjum í annarlegum tilgangi…“
Enda segir Þorvaldur að þrátt fyrir margs konar hrylling sem hann sitji uppi með í vitundinni sé ekkert verra en að að sjá neyð óbreyttra borgara sem lenda milli steins og sleggju. Hann undrist að fólkið komist af. Það eigi ekki til hnífs og skeiðar vikum saman og ösli snjóinn skólaust. Og sumir þeirra sem eru vopnaðir hiki ekki við að beina vopnunum að þeim óvopnuðu. „Það er eins og villidýrið í manninum komi fram í svona umhverfi.
http://mbl.is/mm/gagnasafn/grein.html?grein_id=228821
Rétt um sólarhring eftir þessa atburði var fréttaritari frá The New York Times, Khalid W Hassan skotinn þar sem hann var á leið til vinnu sinnar í Baghdad. Sú spurning vaknar hvort einhverjir af öllum þessum myrtu fjölmiðlamönnum hafi haft óþægilegar fréttir fyrir „hinar viljugu þjóðir“ í farteskinu?
Það er fólk sem heldur hér að þetta sé spurning um að vera með eða á móti Saddam Hussein eða hans stjórnarháttum. Bretar og Bandaríkjamenn studdu hann lengst af. Öttu honum og þjóð hans út í áratugs stríð við Íran. Pétur Blöndal talaði í kvöld um barnadauðann í Írak undir Saddam. Bandaríkjamönnum var slétt sama um barnadauða og fjöldamorð S. H. á meðan hann var handbendi þeirra. Hann vildi Kuwait að launum fyrir stuðning sinn við BNA, þeir urðu að velja meira hagsmuni fyrir minni og vörðu Kuwait og Arabisku furstadæmin. Þarf að taka fram að hryðjuverkamennirnir sem flugu á turnana tvo í NY koma langflestir frá Saudi Arabiu það sem best verður vitað. Hverra hagsmuna eru BNA að verja, jú sína eigin.
Eru virkilega menn að halda því fram bláedrú að dráp þessara
morðingja í þyrlunni sé eitthvað sem Dabbi og Dóri bera ábyrgð á ???
Hver ber þá ábyrgð á morðum Saddams á saklausum borgurum ?? eru það
þá þeir sem eru á móti þessu stríði sem geðsjúklingurinn GWbúsh startaði??
Að lesa ummæli sumra hér er alveg ótrúlegt en dapurlegt vitni til um hugsanagang fólks sem virðist líta á strið sem fótboltaleik. Lára er sögð haldin Davíðsþráhyggju fyrir að fyllast viðbjóði á stríðsglæpnum sem framin var og sést á þessu myndbandi, hún er víst ekki í lagi fyrir það að eitt að telja að það sé á engan hátt réttlætanlegt að drepa almenna borgara.
En eru þeir í lagi sem halda því fram? Eru þeir í lagi sem stilla þessu upp sem einhverjum fótboltaleik milli Bandaríkjanna og uppreisnarmanna?
Nei, þeir eru ekki í lagi. Þetta er ekki fótboltaleikur, þetta er ofbeldi, þetta er morð, þetta er helvíti á jörðu þar sem mannslífin eru einskins virði, sérstaklega séð í gegnum skjá þar sem menn flissa yfir líkt og þeir hafi náð að koma bolta í netið þegar þeir taka í gikkinn. Manneskjur á jörðu eru ekki til í augum manna, aðeins stigakeppni fótboltans er í gangi.
Að stilla þessu svo upp sem að illvirki réttlæti annað illvirki líkt og einhver talar hér um að Saddam hafi verið svo vondur og reynir að gera það að réttlætingu fyrir því að börn séu skotin, saklausir menn drepnir og harmleikir fjölskyldna nýbyrjaðir.
Hér heima sitja menn svo bulla og blaðra, fleygja blammeringum um að fólk eigi ekki að lýsa vanþóknun sinni á stríðsglæpum og skella svo fram setningum á borð við þetta.“Það eru allir sammála um að þetta stríð er hryllingur. Let´s leave it at that!“
Let’s leave it at that.Skiljum við það svona.
Skiljum við Rúanda, það var hryllingur en við eigum ekkert að tjá okkur um það eða berjast á móti því að síkt gerist aftur. Skiljum við Bosníu, það var hryllingur en við eigum ekkert að tjá okkur um það eða reyna að berjast á móti því að slíkt gerist aldrei aftur. Skiljum við Víetnam, það var hryllingur en við eigum ekkert að tjá okkur um það eða reyna að berjast á móti því að slíkt gerist aftur. Skiljum við Írak, það er hryllingur en við erum bara haldin Davíðsþráhyggju ef við tjáum okkkur um það og við eigum ekki að ljá því rödd okkar að það stríð sé óhæfa.
Eigum við að skilja svoleiðis við þetta stríð sem var ólöglegt innrásarstríð og í andstöðu við alþjoðasamfélagið, stríðið sem atar nafni Íslands blóðugum höndum vegna grimmdar og stríðsglæpa sem framdir hafa verið með stuðningi þjóðarinnar, stríðið þar sem hvert saklasut mannslíf sem fellur frá er ný gröf tekin með stuðningi íslensku þjóðarinnar?
Nei er mitt svar enda er ég örugglega afturhaldskommatittur haldinn Davíðsþráhyggju sem skilur það ekki að fólk á að halda með sínu liði sama hvernig það hagar sér, sama hvaða óhæfuverk það fremur, sama hvaða sakleysingjar eru myrtir í nafni Íslands og kommúnistadrullusokkur sem getur ekki sætt sig við það að Davíð og Dóri ötuðu hendur mínar blóði með því að segja:“Hey mr. Bush, you can count on us on your quest for more oil. P.S. Can we keep the planes in Keflavik over the next election. You know, it could help us win the election and as somebody said in Valhöll today: Who remembers the Armenians anyways?“
Ég vill svo að lokum þakka Davíð Oddsyni, Halldóri Ásgrímssyni, Sjálfstæðismönnum og Framsóknarmönnum þeim sem lögðu hönd á plóginn við að réttlæta þetta stríð, fyrir að sýna mér að hægt sé að skammast sín ævilangt fyrir að tilheyra sömu þjóð og slíkt fólk.
Ógeðið Halldór Ásgrímsson ætti skilið að vera stjaksettur í gegnum óæðri endan.
Reyndar rifjast það upp núna að þegar Halldór var að lýsa þessu vinasambandi sem hann vildi sýna að komið væri á milli þeirra utanríkisráðherranna þá nefndi hann Colin Powell stríðsböðul gjarnan bara fornafninu Colin. Til að allir gætu nú heyrt hvað þeir væru nánir vinirnir!
Hanna Lára, hættu þessari Davíðsþráhyggju, þú ert greindari en þetta. Það eru allir sammála um að þetta stríð er hryllingur. Let´s leave it at that!
Báðir þessir bófahasarstittir okkar voru svo himinlifandi í fréttaviðtölum að loknu sínu forystustarfi í stjórnmálaflokkunum.
Annar vegna þess að G.W.Bush hafði sagt ….“við erum vinir!“ Og þetta er staðfest!“ bætti hann við hróðugur. Og hinn sagði frá því dreymandi á svip að Powell utanríkisráðherra hafði svarað honum í farsíma með yfirbragði kunningjans og ávarpað hann með fornafni. „Hann sagði: Halldór, það er undarlegt……“
Síðan lagði hann hendurnar fram á borðið og andvarpaði: „Og svona löguðu gleymir maður náttúrlega aldrei.“
Við hverju getum við búist í alþjóðasamskiptum þegar við eigum „þjóðarleiðtoga“ sem eru kjánalegri en leikskólabörn í návist erlendra þjóðarleitoga vegna tilbeiðslu?
Hvenær leyfist að kalla íslenska stjórnmálaforingja hálfvita?
Hvernig er hægt að stilla þessu svona upp er ekki allt í lagi. Ef stríðið hefði aldrei orðið og kastljósið hefði verið að sýna klassískar aftökur Sadams husseins
Hvað þá Lára Hanna var það í lagi?????????? Skammastu þín ferð alltof oft offari
Ég get nefnt einn Íraka á nafn, sem látið hefur af völdum stríðsins: Saddam Hussein.
Svo man ég líka eftir Uday syni hans.
Um hann segir á Wikipaediu: Following the United States-led invasion of Iraq in 2003, he was killed at age 39 by a secretive combined Special Forces Task Force (Task Force 20) during a brief gunfight in Mosul.
Af hverju virðist skipta svona miklu máli að þarna hafi blaðamenn verið drepnir?
Skipta þessir 700þús írakar sem hafa dáið litlu eða engu máli?
Robert Fisk, ein frægasti stríðsblaðamaður spurði á fyrirlestri hvort menn gætu nefnt nafn á einum íraka sem hafði dáið frá því að stríðið byrjaði og engin gatt nefnd einn einasta.
Margir héldu að USA menn hefðu fengið nóg,þegar þeir töpuðu Vietnam stríðinu. En þeirra stórútgerð er stríðstóla framleiðsla. Þessháttar sjálfstætt starfandi iðnaður, kallar á fleiri stríð og fleiri morð, núorðið skiptir USA engu máli hvort um óbreytta borgara er að ræða,þegar sérhæfðu morðsveitirnar eru í aksjón,þetta er nefnilega bara iðnaður,sem má ekki stoppa,því þá fer USA á hausinn. Þessvegna hjálpuðu Dabbi og Dóri við iðnað einkaframtaksins í Írak. Þeim rann blóðið til skyldunnar,búnir að einkavæða undirstöðuiðnaðinn á Íslandi,með þeim afleiðingum að landsbyggðin er gjaldþrota rúst.
Einkavæddi undirstöðuatvinnuvegur USA er á sama hátt að verða búinn að leggja landsbyggðina þar vestra í rúst. Enda Pólstjarna beggja landanna „GRÆÐGI“
http://www.democracynow.org/2010/4/6/massacre_caught_on_tape_us_military
Fleiri linkar.
NRK:
http://www.nrk.no/nyheter/verden/1.7067387
SR:
http://sverigesradio.se/ekot/artikel.asp?artikel=3607087
Huffington post:
http://www.huffingtonpost.com/2010/04/05/wikileaks-exposes-video-o_n_525569.html
The daily mail:
http://www.dailymail.co.uk/news/worldnews/article-1263822/WikiLeaks-Iraq-video-Horrific-footage-shows-U-S-soldiers-shooting-dead-civilians–laughing-bodies.html
Blog Laura Rozen á Politico (áhugaverð umræða):
http://www.politico.com/blogs/laurarozen/0410/Wiki_leaks_US_military_Iraq_video.html#comments
Hvað er verið að kvarta yfir nokkrum mannslífum í Írak?
Græddu ekki Blackwater, Becthel, Halliburton og fleiri stórir verktakar alveg helling á „verkefninu“?
2007 þegar þetta myndband er tekið voru 103.000 USA hermenn í Írak. Þá voru 117.000 málaliðar á vegum Blackwater og fleirum þar. Þeir eru fyrir utan öll alþjóðalög og samninga. Þessvegna vildi Rumsfeld nota þá.
Svo hvað með það þótt það hafi „bara“ 600 til 800 þúsund óbreyttir Írakar verið drepnir?
Þeir eru komnir með McDonalds, Burger King, KFC og Wal Mart. Þá hljóta þeir að vera hólpnir. Maður talar nú ekki um að þeir, þ.e. Írakar, þurfa ekki að hafa áhyggjur af sögu sinni og menning. Það er búið að stela því frá þeim. Nú geta þeir byrjað upp á nýtt. Heppnir.
Nei, svona í alvöru. Dyraverðirnir í ameríska sendiráðinu eru vopnaðir. Eru þeir þá ekki réttdræpir? Eða virka ekki reglurnar í báðar áttir?
Það er alveg með ólíkindum þau viðbrögð sem maður hefur séð á netinu, skammir til rúv vegna peningaeyðslu og að það sé verið að skipta sér af einhverju sem okkur kemur ekki við. Allt lagt undir mannorð og fleira til að koma Davíð til hjálpar. Þvílíkt og annað eins. Er þetta hægralið sem svona talar algjörlega sneitt allri samúð?
Ef við setjum dæmið þannig upp að íslendingar hafi neitað að setja landið á þennan lista, viljugra. Þá hefði það verið notað sem ástæða þess að bandaríkjamenn lögðu niður herstöðina á Miðnesheiði. Það hefði verið vatn á millu hernaðarsinna.
Í þessum fjarlægu stríðum er engin þjóð eins langt frá því að eiga hagsmuna að gæta eins og íslendingar. Þess vegna á engin þjóð eins auðvelt með að taka ákveðna afstöðu gegn hernaði og segja sig úr NATO, við höfum enga afsökun fyrir að taka þátt í þessu. Það gæti haft mikil áhrif í friðar og afvopnunarmálum og ekki síst sparað skattgreyðendum stjarnfræðilegar upphæðir.
Hernaðarsinnar eru stórorðir og segja að það sé einfeldningsháttur að trúa að samningaviðræður og skilningur sé vænlegt til friðar, veruleikinn sé annar og stríð séu nausðynleg. Þá má spyrja: Hafa þessi stríð verið til góðs? Væri ekki minni gjá og óvild milli arabaþjóða og vesturlanda ef bandamenn hefðu aldrei ráðist inn í þessi lönd? Ef bandaríkjamenn hefðu aldrei stutt Ísrael, þá væri Ísrael sennilega ekki til í dag og þá væri ekki verið að sprengja fólk í tætlur í stórum stíl með hátæknivopnum.
Nokkrir linkar í viðbót frá Danmörku þar sem þetta er í fréttatímum og fréttaskýringarþáttum:
http://www.dr.dk/Nyheder/Udland/2010/04/06/061834.htm
http://politiken.dk/udland/article939875.ece
http://jp.dk/udland/usa/article2029709.ece
Þeir sem voru í þyrlunni voru ekki í miðri skothríð, Snorri. Fátt annað hef ég að segja, en ég hef raunar sjálfur sætt skothríð vígamanna á stríðssvæði. Það gefur mér þó ekki neinn frekari rétt til að tjá mig um þeta mál en aðrir hafa, að mínu mati. Mér finnst persónulega rangt að blanda þessu saman.
Það væri gustuk að landinn hysjaði upp um sig brókina og gerði eithvað í því að draga þá til ábyrgðar sem orsökuðu hrun heillar þjóðar og eflaust töluvert fleiri mannslát (mörg af eigin hendi) en þessir ákveðnu hermenn staddir í miðri styrjöld í Írak. Það er af nógu að taka þó svo menn fái ekki niðurgang yfir wikileaks og umfjöllun þeirra um ömurlegt stríð. Það eru væntanlega fáir af þeim sem hér hafa skrifað verið í miðri skothríð. Það er einfalt fyrir þá sem ekkert vit hafa á stríði (ég meðtalinn) að tala af ótrúlegri heimsku. Ef vel er að gáð þá er eins og tveir (ljósmyndarar með myndavélar) haldi á vopnum. Ég er ekki frá því að ef ég hefði verið undir skothríð um nokkurt skeið þá hefði gert það sama. Hafa ber í huga að við erum að horfa á þetta heima í leðursófa, spilað hægt, og væntanlega í betri upplausn en hjá þeim í þyrlunni. Dæmi hver sem vill.
Við skulum samt muna að Íslendingar áttu líka hlut að máli í að koma upp um þennan glæp. Vissulega vorum við á lista „viljugra þjóða“ en það getur kannski hjálpað sálartetrinu á okkur að hugsa til þess að íslendingar hafa þrátt fyrir allt tekið þátt í því að koma upp um þetta tiltekna mál.
En þetta skýrir líka viðkvæmni Wikileaks manna fyrir því að fólk á þeirra vegum sætti eftirliti á meðan það var að vinna við að brjóta upp dulkóðan og texta myndbandið. Mjög hugsanlega var það hrein paranoja, en í ljósi alvarleika málsins var kannski ekki við öðru að búast en að menn væru pínu stressaðir.
Fótafimir þeir á mbl.is, það er ekki sama hver það er.
Hér er eitt af svokölluðum svörum talmanns* hersins sem svo þessi svokallaði fjölmiðll (mbl sic) er að vísa í:
„The military did not reveal how the Reuters staff were killed, and stated that they did not know how the children were injured.“
Þeir sem vilja kalla mbl fjölmiðil er það vissulega heimilt, en ég mundi ráðleggja viðkomandi að horfa á þessar upptökur fyrst.
*löggildir morðingjar hafa „talsmann“ – sofa sjálfsagt betur
Þetta myndband lýsir því best hvað er í gangi þarna og hvað rassasleykjur Bandaríkjanna studdu. Skotvopnin sem eru notuð þarna eru sérhönnuð til að skjóta gegnum skriðdreka. Hvernig fara þau þá með manneskjur? Wikileakes er að gera góða hluti með þessu en við vissum þetta öll innst inni. En sennilega verður þetta eins og með allt annað hér á landi fyrnt eða ástæðulaust til rannsóknar þegar öll kurl komast til grafar.
Það er ömurlegt að horfa upp á þetta, og ömurlegt til þess að vita að við, Íslendingar skulum styðja Bandaríkjamenn í Afganistan þar sem ítrekað kemur fram að óbreyttir borgarar eru myrtir t.d. í loftárásum. Það er ömurlegt að horfa upp á meðhöndlun ísraelsmanna á fólkinu í Palestínu, með dyggri aðstoð Bandaríkjanna. Þetta er sérstaklega ömurlegt vegna þess að maður vill líta á Ísland og Bandaríkin sem lönd frelsis og umburðarlyndis.
En hvað getur maður gert annað en að skófla í sig ýsunni? Ekkert. Það er kanski það ömurlegasta af því öllu.
Ef einhver dugur væri í íslenskum fjölmiðlum krefðust þeir álits Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar á þeim atburðum sem nú hafa verið gerðir opinberir. Minnumst þess að Davíð Oddson er nú ritstjóri Morgunblaðsins. Viðbrögðin munu sannarlega hafa áhrif á trúverðugleika blaðsins !!!!!!!!
Sé af þessum ummælum að herrarnir Davíð og Halldór vonast. Báðir með von um stutt dauðastríð þjóðar. Stríðið er enn, og ég skítskammast mín.