St. Jósefsspítali í Hafnarfirði » St. Jósefsspítali í Hafnarfirði

ÁTTATÍU ár voru í gær liðin frá stofnun Sankti Jósefsspítala í Hafnarfirði. Ráðgert er að halda formlega upp á afmælið síðar á árinu og verður þá systranna, sem voru frumkvöðlar í starfsemi spítalans, minnst sérstaklega. Gunnhildur Sigurðardóttir, fyrrverandi hjúkrunarforstjóri, segir að minningarskjöldur um framlag systranna til íslenskrar hjúkrunarsögu verði vígður af því tilefni og nokkrum systrum úr reglunni boðið að koma og vera viðstaddar. MYNDATEXTI: Í landi Jófríðarstaða – St. Jósefsspítali eins og hann lítur út í dag. Byggt var við húsið 1953 og 1974.


Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af núlli og einum? Svar: